Fréttablaðið - 01.03.2013, Side 50

Fréttablaðið - 01.03.2013, Side 50
1. mars 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34 „Sveitin varð þannig til að við Arndís, Guðrún sátum saman á kaffihúsi og þær fóru að tala um að ætla að spila saman tónlist. Ég spurði hvort þær vantaði ekki líka hljómborðsleikara því ég vissi um einn mjög góðan. Þær spurðu hver það væri og ég sagði að það væri ég og úr því var ákveðið að prófa að spila saman allar þrjár. Við tókum þessu mjög alvarlega strax frá upphafi og eftir að hafa æft saman í nokkra mánuði end- uðum við heima hjá mér með tölvu að taka upp plötu. Þegar platan var nánast tilbúin föttuðum við að okkur vantaði slagverksleik- ara. Við leituðum að kvenkyns slagverksleikara í um sex mán- uði þar til við römbuðum fram á Dísu.“ Svo lýsir Harpa Fönn Sigur jónsdóttir tilurð hljómsveit- arinnar Grúsku Babúsku. Sveitina skipa einnig Arndís A. K. Gunn- arsdóttir og Guðrún Birna La Sage de Fontenay. Sveitin gefur út sína fyrstu hljómplötu í usb formi þann 1. apríl næstkomandi. Grúska Babúska er með samn- ing við breska útgáfufyrirtækið Static Caravan sem rekið er af Geoffrey Dolman. Fyrsta plata sveitarinnar verður gefin út í heldur óhefðbundnu formi og að sögn Hörpu vissu stúlkurnar að þær yrðu að leita út fyrir land- steinana að útgefanda. „Við vissum að tónlistin væri of sér- stök til að gefa eingöngu út á Íslandi og ákváðum því að taka viku skömmu fyrir jól og senda „prómó“ disk á allar smáútgáfur í heiminum, þar á meðal Static Caravan.“ Diskurinn verður gefinn út í formi usb-lykils í líki babúsku, en fyrirbærið fundu stúlkurnar með aðstoð Google- leitarvélarinnar. Aðspurð segir Harpa Fönn tónlist sveitarinnar vera and- stæðukennda blöndu af þjóðlaga- poppi og raftónlist. „Krúttleg og „krípí“ lýsir tónlistinni kannski best,“ segir hún. Stúlkurnar munu fylgja plötunni eftir með tónleika- haldi og koma meðal annars fram á nokkrum tónleikum í Englandi. Útgáfutónleikarnir sjálfir fara þó fram á Kex Hostel þann 3. apríl. sara@frettabladid.is Krúttleg og „krípí“ Hljómsveitin Grúska Babúska gefur út sína fyrstu plötu í apríl. Platan er heldur óvenjuleg því hún kemur út í formi usb-lykils sem lítur út eins og babúska. FYRSTA PLATAN Hljómsveitin Grúska Babúska gefur út sína fyrstu plötu í apríl. Platan kemur út í formi usb-lykils. Tónlistarmaðurinn Úlfur sendir frá sér plötuna White Mountain þann 5.mars á vegum bandaríska fyrirtæk- isins Western Vinyl. Platan hefur fengið góða dóma hjá netverjum. Síðurnar Pitch- fork og Spin kynntu lögin So Very Strange og Heaven in a Wildflower á forsíðum sínum í janúar síðastliðnum. Mynd- bandið við Black Shore hefur einnig vakið athygli og hafa rúmlega sjötíu þúsund manns séð það á myndbandasíðunni Vimeo.com. Úlfur hefur komið víða við í íslenskri jaðartónlistarsenu undanfarin ár, þá helst sem liðsmaður Swords of Chaos og sem bassaleikari í tónleika- hljómsveit Jónsa úr Sigur Rós. Úlfur sendir frá sér plötu Rokkararnir í Skálmöld eru á leið- inni í tíu daga tónleikaferð um land- ið sem ber yfirskriftina Myrkur, kuldi, ís og snjór 2013. Á meðal áfangastaða er Litla-Hraun en vistmenn hafa nokkuð oft lýst yfir áhuga á að fá Skálmöld í heimsókn. Fyrstu tónleikarnir voru í Hnífsdal í gærkvöldi en þeir síð- ustu verða á Gamla Gauknum í Reykjavík 9. mars. Miðaverð er 3.000 krónur og fer miðasala fram við inn ganginn nema annað sé aug- lýst sérstaklega. Tíu daga tónleikaferð Hljómsveitin Skálmöld fer í tónleikaferð um landið. Í TÓNLEIKAFERÐ Rokkararnir í Skálmöld eru á leiðinni í tónleikaferð um landið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Breskir fjölmiðlar eru yfir sig hrifnir af The Next Day, fyrstu plötu Davids Bowie í áratug. Alls staðar fær platan fimm eða fjórar stjörnur og telja sumir hana jafnast á við hans bestu verk. Gagnrýnandi The Telegraph gefur henni fimm stjörnur og segir hana grípa mann heljar- tökum undir eins og sé ópus sem er sveipaður dulúð. Blaðamaður The Independent gefur einnig fimm stjörnur og fullyrðir að Bowie hafi sent frá sér bestu endurkomuplötu rokksögunnar. „Þetta er plata sem sem fjallar um vandamál heimsins og yfirborðskenndar stjörnur í fjölmiðlum.“ Gagnrýnandi tíma- ritsins Q er einnig í skýjunum og splæsir fimm stjörnum, eða fullu húsi, á plötuna. The Guardian gefur The Next Day fjórar stjörnur og segir að efasemdarmenn gætu sett út á ein- faldleika plötunnar. Tónlistin sé í anda verka Bowie á áttunda ára- tugnum en jafnist ekki á við þau. Hann bætir samt við að platan fái mann til að hugsa, sé skrítin og uppfull af góðum lögum. Gagn- rýnandi The Times er einnig jákvæður, segir plötuna frábæra og dularfulla og gefur henni fjórar stjörnur. Þá gefur NME The Next Day átta af tíu mögulegum. The Next Day kemur út um miðjan mars. Annað smáskífu- lagið af plötunni, The Stars (Are Out Tonight), er nýkomið út en með aðalhlutverk í myndbandinu fer Hollywood-leikkonan Tilda Swinton. Stjörnum prýddur David Bowie ytra Breskir fj ölmiðlar eru afar hrifnir af fyrstu plötu jálksins Davids Bowie í áratug, The Next Day. DAVID BOWIE Gagnrýnendur eru mjög hrifnir af nýjustu plötu Davids Bowie. NORDICPHOTOS/GETTY 24 25 26 27 28 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös. Lau. Hnífsdalur 21.00 Félags- heimilið Selfoss 22.00 Hvíta húsið Sauðár- krókur 22.00 Mælifell Akureyri 21.00 Græni hatturinn Húsavík 21.00 Íþrótta- höllin Eskifj örður 21.00 Valhöll Höfn 21.00 Sindrabær Litla- Hraun Lokaðir tónleikar Vestmanna- eyjar 22.00 Höllin Reykjavík 22.00 Gamli Gaukurinn TÓNLEIKAFERÐ SKÁLMALDAR febrúar - mars 2013 NÝ PLATA Tónlistarmaðurinn Úlfur hefur sent frá sér plötuna White Mountain. G E I M „Mögnuð spennusaga... Plottið er pottþétt og heldur manni fram á síðustu blaðsíðu.” Politiken S U M A R Á N K A R L M A N NA Dulin og opinská átök, leyndir draumar og sagðar og ósagðar sögur. NÝJAR KILJUR 2.499 KYNNINGAR- VERÐ 2.499 KYNNINGAR- VERÐ G ild ir til 1 1. m ar s.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.