Fréttablaðið - 22.03.2013, Page 8

Fréttablaðið - 22.03.2013, Page 8
22. mars 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 SAMKEPPNI Samkeppniseftirlitið er byrjað að rannsaka meint brot innkaupadeildar Landspítalans (LSH) á samkeppnislögum. Það var fyrirtækið Logaland ehf. sem kærði spítalann til eftirlitsins í síð- asta mánuði vegna vinnubragða í innkaupum á heilbrigðisvörum og -tækjum. Fyrirtækið áætlar að meirihlut- inn af um níu milljarða árlegri veltu á þeim markaði fari í gegn- um innkaupadeildina. Ástæðan var fyrirvaralaus ákvörðun LSH um að hætta að kaupa vörur frá Loga- landi og beina viðskiptum sínum til Hátækni. Um var að ræða sömu vöru frá sama framleiðanda. Í tölvupósti á milli tveggja starfsmanna Landspítala kemur fram að verð Logalands sé lægra en í Hátækni en í svari verkefna- stjóra innkaupasviðs kemur fram: „Viltu reyna að pressa verðin niður meira?“ Landspítalinn hefur frest til 30. apríl til að skila inn gögnum til Samkeppniseftirlitsins. - sv Ergo veitir frumkvöðlum umhverfisstyrki Lumar þú á hugmynd? Ergo veitir tvo styrki að fjárhæð 500.000 krónur hvorn til að styrkja frumkvöðlaverkefni á sviði umferðar- og umhverfismála. Þannig vill Ergo leggja sitt af mörkum við þróun framtíðarlausna til sjálfbærrar nýtingar og verndunar náttúruauðlinda. Sendu inn þína hugmynd Einstaklingar og fyrirtæki geta sótt um styrkina á ergo.is. Viðskiptaáætlun þarf að fylgja umsókninni ásamt greinargerð fyrir því til hvers nýta skal styrkinn. Umsóknarfrestur er til 10. apríl en styrkjum verður úthlutað á degi jarðar 22. apríl. Kynntu þér málið nánar á ergo.is sími 440 4400 > www.ergo.is Umhverfi Efnahagur Samfélag Samkeppniseftirlitið krefst ítarlegra upplýsinga frá innkaupasviði Landspítalans vegna meintra brota: Rannsókn á innkaupamálum LSH er hafin Samkeppniseftirlitið hefur meðal annars óskað eftir: ➜ Ítarlegri lýsingu á vinnuferlum LSH við innkaup sem ekki eru útboðsskyld. ➜ Lýsingu á svokölluðum „þróunarsamningum“ LSH við birgja. ➜ Ítarlegri lýsingu á vinnuferlum við innkaup. ➜ Upplýsingum um ráðstöfun LSH á gjafafé. ➜ Yfirliti yfir innkaup vara sem eru undir innlendum viðmiðunarfjár- hæðum um opinber innkaup. Liðirnir í innköllun Samkeppniseftirlitsins eftir gögnum frá LSH eru sam- tals fjórtán og margir hverjir mjög ítarlegir og langir. Meðal annars er óskað eftir öllum samskiptum innkaupasviðs spítalans við Logaland og Ríkiskaup. Innköllun í fjórtán liðum 1. Hvað er talið að stangveiði á Íslandi velti mörgum milljörðum? 2. Hvenær fór Herjólfur sína fyrstu ferð í Landeyjahöfn á þessu ári? 3. Í hvaða íþrótt keppir Kefl víkingur- inn Arnar Helgi Lárusson? SVÖR 1. 20 milljörðum. 2. Á mánudag. 3. Hjóla- stólaakstri. ÍSRAEL, AP „Rétt eins og Ísraelar byggðu ríki í sínu heimalandi eiga Palestínumenn rétt á að vera frjálsir í sínu eigin landi,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti á fundi með stúdentum í Ísrael í gær. Obama er í þriggja daga opinberri heimsókn þar. Forsetinn sagði frið milli þjóð- anna nauðsynlegan til að tryggja framdrátt Ísraels. „Réttur Pal- estínumanna til sjálfsyfirráða og réttlætis verður að vera viður- kenndur. Setjið ykkur í þeirra spor, lítið á heiminn með þeirra augum. Það er ekki sanngjarnt að palestínskt barn geti ekki alist upp í eigin ríki, og lifi öllu sínu lífi í návígi við útlenskan her sem stjórnar ferðum þess á hverjum einasta degi,“ sagði forsetinn einnig. Hann sagði einnig við nemendurna að á meðan Banda- ríkin væru til stæðu Ísraelar ekki einir í baráttu sinni. Hann sagði Bandaríkjamenn vera bestu vini Ísraels. Ísraelar þyrftu hins vegar að draga úr einangrun sinni á alþjóðavettvangi. Obama tók vægar til orða um landnemabyggðir Ísraela en oft áður og krafðist þess ekki að hætt yrði að byggja. Hann sagði þó að landnemabyggðirnar eyðilegðu fyrir friðarmöguleikum, enda hafi Palestínumenn gert stöðvun þeirra að forsendu fyrir friðarvið- ræðum. „Pólitískt séð, sé litið til almenns stuðnings Bandaríkja- manna við Ísrael, væri auð- veldast fyrir mig að leggja þetta deilumál til hliðar. Lýsa yfir ótak- mörkuðum stuðningi við hvað sem Ísraelar ákveða að gera, það væri auðveldasta pólitíska brautin að feta. En ég vil að þið vitið að ég tala við ykkur sem vinur sem hefur miklar áhyggjur og mikinn áhuga á framtíð ykkar.“ Bandaríkjaforseti hitti einnig forseta Palestínu, Mahmoud Abbas, í gærmorgun á Vestur- bakkanum. Hann fordæmdi þar eldflaugaárásir Palestínumanna. Hann sagði Bandaríkjamenn vera á móti auknum landnema byggðum Ísraela en sagði einnig að þær ættu ekki að vera notaðar sem afsökun fyrir aðgerðaleysi. „Ef væntingarnar eru þær að aðeins sé hægt að hafa beinar friðarvið- ræður þegar búið er að ákveða allt fyrirfram, þá er enginn til- gangur með viðræðunum, svo ég tel mikilvægt að komast áfram þótt margt pirri báða deiluaðila,“ sagði forsetinn á sameiginlegum fundi með Abbas. thorunn@frettabladid.is Obama vill sjálfstætt ríki Palestínu Barack Obama Bandaríkjaforseti segir Palestínumenn eiga rétt á eigin ríki og hefur trú á tveggja ríkja lausn á deilum þeirra við Ísraela. Forsetinn segir það einu leiðina til að tryggja öryggi og framþróun Ísraels. Réttur Palestínu- manna til sjálfsyfirráða og réttlætis verður að vera viðurkenndur. Setjið ykkur í þeirra spor, lítið á heiminn með þeirra augum. Barack Obama Bandaríkjaforseti HORFT YFIR SALINN Gripið var fram í fyrir forsetanum á fundinum í Jerúsalem í gær, og hér leitar hann að viðkomandi. Hann gerði létt grín að því að hann væri vanur því að gripið væri fram í fyrir honum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.