Fréttablaðið - 22.03.2013, Qupperneq 26
FÓLK|HELGIN
Sýningin Ori-
gami – brot
í brot hefur
notið mikilla
vinsælda og
hafa fjölmörg
börn fengið
kennslu í
origami-papp-
írslistinni. Á
sýningunni
eru verk eftir
hjónin Dave
og Assiu Brill.
Þau hafa
hannað fjölda bréfbrota, gefið út bækur,
fengist við kennslu og sýnt verk sín víða um
heim. Grunnreglur origami eru einfaldar; að-
eins má brjóta pappírinn en hvorki klippa né
líma. Möguleikarnir eru óþrjótandi eins og
hin stórkostlegu listaverk í Gerðubergi sýna.
Sýningin er samstarfsverkefni Gerðubergs
og Origami Ísland þar sem þeir Björn
Finnsson og Jón Víðis eru í forsvari. Á
sunnudaginn tekur Björn á móti gestum
og leiðir þá í sannleikann um galdurinn
á bak við origami.
Þetta vilja börnin sjá! er sýning á mynd-
skreytingum úr nýútkomnum ís lenskum
barna- og unglingabókum. Markmið sýn-
ingarinnar er að beina athyglinni að gildi
myndskreytinga en þetta árið eiga 28
myndskreytar verk á sýningunni. Auk þess
að skoða myndverkin sjálf geta gestir
látið fara vel um sig og gluggað í bæk-
urnar. Umgjörð sýningarinnar er notaleg
þar sem lækur, brýr, hellir, klettar og
mjúkir púðar spila stórt hlutverk.
Þetta er í ellefta sinn sem sýningin
Þetta vilja börnin sjá! er haldin í
Gerðubergi.
Opnunartími sýninganna á
laugardag og sunnudag er frá
kl. 13 til 16.
ORIGAMI Möguleikar
origami-listarinnar eru
óþrjótandi.
ÞETTA VILJA BÖRNIN
SJÁ Skemmtileg sýning
á myndskreytingum úr
nýútkomnum íslenskum
barna- og unglinga-
bókum.
ÓTRÚLEG LIST
Grunnreglur origami
eru þær að aðeins
má brjóta pappírinn
en hvorki klippa né
líma.
Viðtökurnar hafa farið fram úr öllum vonum,“ segir Rós-hildur Jónsdóttir vöruhönn-
uður, en nú stendur yfir í Sparki á
Skólavörðustíg sýning á fiskbeina-
módelum sem hún hefur þróað í
samvinnu við íslensk framleiðslu-
fyrirtæki í fiskiðnaði. Módelin eru nú
tilbúin til fjöldaframleiðslu eftir sjö
ára ferli og segir Róshildur næsta
skref vera markaðssetningu, bæði
á Íslandi og erlendis. Þegar hafi
erlendir dreifingaraðilar haft sam-
band.
„Þeir höfðu samband að fyrra
bragði, sem er frábært, og spenn-
andi að sjá hvað kemur út úr því,“
segir Róshildur en vill ekki nefna
nein nöfn að svo stöddu. Þá hefur
verið fjallað um fiskmódelin á vef
hönnunartímaritsins Dezeen, á
www.disegnodaily.com og á Emmas
Design blogg. „Erlenda pressan sem
mætti á HönnunarMars sýndi mikinn
áhuga og ég hef fengið pósta um að
það muni birtast umfjöllun um vör-
una víða. En ég er mjög ánægð með
hvað margir vilja kaupa vöruna því
það fer ekki endilega saman að finn-
ast vara flott og tjá sig um það og að
fjárfesta í henni,“ segir Róshildur.
Fiskbeinamódelin voru útskriftar-
verkefni Róshildar frá Listaháskóla
Íslands árið 2006. Eftir það tók við
þróunarvinna við að finna hag-
kvæma leið við að hreinsa beinin.
Háskólinn á Akureyri lagði til þekk-
ingu og þróun á notkun ensíma til
hreinsunar á beinunum. Þá lögðu
Sero ehf. á Blönduósi, Norðurströnd
á Dalvík og Sútunarverksmiðjan á
Sauðárkróki til þekkingu og reynslu
svo hægt yrði að framkvæma verk-
efnið á stórum skala. Róshildur segir
ferlið hafa verið erfitt og oft hafi hún
ætlað að gefast upp.
„Módelin hafa í raun alltaf fengið
mikil viðbrögð hvar sem ég hef sýnt
þau en ég gat aldrei fylgt því eftir.
Ég hef því beðið eftir þessari stundu
að geta sýnt módelin sem raun-
hæfa söluvöru,“ segir Róshildur.
„Ég er að springa úr hamingju. Það
hafa margir lagt hönd á plóg og nú
er komið að því að markaðssetja
vöruna svo öll vinnan fari að borga
sig. Það er líka svo ótrúlega gaman
að sjá hvað módelin vekja mikla
gleði hjá fólki á öllum aldri. Fólk er
að kaupa módelin jafnt í fermingar-
gjafir sem í sjötugsafmælisgjafir og
jafnvel í innflutningsgjafir líka. Mód-
elin höfða til allra.“
Fiskmódel Róshildar fást í Sparki
á Skólavörðustíg 33 og stendur sýn-
ingin á þeim til 31. maí.
■ heida@365.is
SKEPNURNAR SLÁ Í GEGN
ÁHUGAVERÐ SÝNING Fiskbeinamódel Róshildar Jónsdóttur vöktu mikla athygli á HönnunarMars. Þau eru nú komin í fjöldafram-
leiðslu eftir þróunarsamvinnu við íslensk fyrirtæki í fiskiðnaði. Módelin eru sýnd í Sparki á Skólavörðustíg 33.
MARKAÐSSETNING NÆSTA SKREF Fisk-
módel Róshildar Jónsdóttur vöktu mikla
athygli á HönnunarMars og hafa erlendir
dreifingaraðilar þegar sýnt áhuga. Margra ára
þróunarvinna með íslenskum framleiðslufyrir-
tækjum í fiskiðnaði er að skila sér.
MYND/PJETUR
SKEPNUSKÖPUN
Setja má beinin saman á
ýmsa vegu og mála eftir
kúnstarinnar reglum.
MYND/RÓSHILDUR JÓNSDÓTTIR
SNIÐUG GJÖF Beinin
koma í sérhönnuðum
umbúðum ásamt litum
og lími. Róshildur segir
módelin höfða til allra
aldurshópa og fólk gefi
þau jafnt í fermingar-
gjafir sem í sjötugsaf-
mælisgjafir.
MYND/PJETUR
PAPPÍR OG LIST
Tvær skemmtilegar sýningar í Gerðubergi renna
sitt skeið um helgina en á sunnudaginn er síðasti
sýningardagur þeirra. Annars vegar er það Origami
– brot í brot og hins vegar Þetta vilja börnin sjá!
ht.is
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700 • GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600
• GLERÁRGÖTU 30 AKUREYRI S: 460 3380 • KAUPVANGI 6 EGILSSTÖÐUM S: 414 1735 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
Fissler hraðsuðupottar fyrir hraðari,
hollari og bragðbetri eldamennsku
Fissler hefur framleitt hágæða potta
og pönnur í Þýskalandi í 167 ár.
Kynnið ykkur málið. Íslenskur bæklingur á www.ht.is