Fréttablaðið - 22.03.2013, Síða 28
KYNNING − AUGLÝSINGVeiðibyssur FÖSTUDAGUR 22. MARS 20132
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Sigrún Kristinsdóttir, sigrunk@365.is, s. 512-5455 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Hinn aldagamli byssuframleiðandi, Franchi, hefur sett á markað framúr-skarandi línu hálfsjálfvirkra hagla-
byssa undir heitinu Affinity.
„Fyrsta sendingin af Affinity seldist upp
á örskömmum tíma og var einstaklega
vel tekið af skotveiðimönnum og -konum
um land allt,“ segir Kjartan Lorange hjá
Veiðihúsinu Sökku, sem flytur inn þessar
skemmtilegu og vel hönnuðu byssur frá
Franchi.
Kjartan segir Affinity-línuna saman-
standa af fimm mismunandi útfærslum;
Affinity Wood, Affinity Synthetic Black, Aff-
inity Synthetic Camo Max4, Affinity White
og Affinity Sporting.
„Affinity Wood-byssan er einstaklega
lipur og þægileg og vegur ekki nema 2,85
kíló. Affinity-byssurnar eru allar út búnar
TSA/Twin Shock Asorber-bakslagspúða
sem minnkar bakslag um allt að 43 prósent.
Skiptibúnaður Franchi er svo byggður upp
á bakslagsskipta snúningsboltanum Front
Inertia frá Benelli og hefur reynst frábær-
lega,“ útskýrir Kjartan.
Hann segir alla meginhluta skiptinganna
vera aðgengilega með því einu að taka
hlaupið af byssunni.
„Það gerir þrif og umhirðu bæði þægilega
og fljótlega. Reynslan er virkilega góð og
gaman að heyra jákvæða umsögn ánægðra
byssueigenda. Franchi hefur sannarlega
hitt naglann á höfuðið með Affinity og til að
kóróna afbragðs gæði á frábæru verði býður
framleiðandinn sjö ára ábyrgð á byssunni,
sem er einstakt,“ segir Kjartan.
Affinity var valin „Haglabyssa ársins 2013“
af Félagi bandarískra byssueigenda (NRA) og
Franchi verða afhent Golden Bullseye-verð-
launin í maí næstkomandi af samtökunum.
„Það er mikill heiður og áfangi fyrir
þennan virta framleiðanda sem hefur fram-
leitt byssur síðan 1868. Veiðihúsið hefur átt
langt og gott samstarf við Franchi og það
er virkilega spennandi að geta boðið þessa
rómuðu byssu í svo mörgum útfærslum. Með
Affinity geta allir fundið útfærslu við hæfi og
verðið kemur skemmtilega á óvart,“ upp lýsir
Kjartan.
Franchi er samstarfsaðili byssuframleið-
andans Benelli og fer framleiðslan fram í
verksmiðjum Benelli í Urbino.
„Á þeim bæ er enginn afsláttur gefinn af
gæðum eða vandvirkni og framleiðsluferlið
margvottað vegna gæða og tryggðar. Allar
ítalskar haglabyssur eru prófaðar samkvæmt
CIP-stöðlum sem tryggir öryggi og gæði og er
sannarlega vert að huga að í dag.“
Með hækkandi sól og hlýnandi veðri
verður Veiðihúsið með kynningar á Affinity-
byssum víða um land. Kynningarnar verða
vel auglýstar svo að sem flestir fái tækifæri
til að kynna sér gripinn og reyna við raun-
aðstæður.
„Sumarið er kjörtími til æfinga fyrir kom-
andi veiðitímabil. Það tryggir góðan árangur
og með því sýnum við bráðinni hámarks-
virðingu.“
Affinity er haglabyssa ársins 2013
Fram undan eru spennandi tímar fyrir áhugamenn um skotvopn og veiðar með Affinity-byssunum frá Franchi sem NRA útnefndi
haglabyssu ársins 2013. Affinity-byssurnar eru liprar, aðgengilegar, á frábæru verði og með sjö ára ábyrgð. Þær verða kynntar víða
um landið með hækkandi sól.
Kjartan Lorange með glæsilega Affinity-haglabyssu frá ítalska byssuframleiðandanum Franchi. MYND/GVA
Affinity Wood
12-20 ga
(NEW) Affinity Sporting
12 ga
Affinity Black Synt
12-20 ga
Affinity Camo MAX 4
12-20 ga
(NEW) Affinity White
12 ga
Veiðihúsið Sakka ehf
Hólmaslóð 4
101 Reykjavík
Iceland
Tel: + 354-562-0095