Fréttablaðið - 22.03.2013, Page 32

Fréttablaðið - 22.03.2013, Page 32
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og annað frábært. Hönnun og hugmyndir. Ebba Guðný Guðmundsdóttir. Veru-leiki. Heilsa og heilbrigði. Spjörunum úr og helgarmaturinn. 2 • LÍFIÐ 22. MARS 2013 HVERJIR HVAR? Umsjón blaðsins Kolbrún Pálína Helgadóttir kolbrunp@365.is Umsjón Lífsins á Vísir.is Ellý Ármanns elly@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Valgarður Gíslason Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Lífið Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 www.visir.is/lifid Lífi ð Hamingja, fólk og annað frábært Hver er maðurinn RFF GUMMI JÖR OG ELLA BÁRU AF Lífi ð fékk álit hjá fjórum RFF-gestum á nýliðinni tískuhá- tíð. Stúlkurnar voru sammála um að Guðmundur Jörunds- son og ELLA hefðu staðið upp úr í ár. Jóhanna Björg Christensen ritstjóri Nude Magazine. „Eins og svo mörgum fannst mér sýning Guðmundar Jörundssonar standa upp úr. Línan var vel unnin og mjög flott og það var kraftur í sýningunni sem mér fannst vanta í aðrar. Hrafnhildur Hólmgeirs- dóttir átti svo sinn þátt í að gera upplif- unina enn flottari; tónlistin, lýsingin og fötin spiluðu vel saman. Ég sá líka ELLU og Farmers Market sem lögðu líka mikið upp úr sýningum sínum, mér finnst það skipta miklu máli. Það þarf að skapa upplifun og stemningu á sýningunum og fanga þannig áhuga áhorfenda. Að lokum fannst mér hátíðin vel heppnuð í ár, hún verður betri með hverju árinu og það er fagmannlegra að halda sýning- arnar að degi til.“ Ýr Þrastardóttir fatahönnuður. „Mér fannst Gummi Jör standa upp úr. Þetta var heilsteypt lína og sniðin voru falleg. Mér fannst tónlistin, sviðs myndin og stíliseringin líka mjög flott. Það spil- aði sterkt inn í að hann fékk flottan stíl- ista til liðs við sig. Ég tel að það sé nauðsynlegt að fá aðstoð frá stílista fyrir sýningar, það setur punktinn yfir i-ið. Ég hefði viljað sjá fleiri unga hönn- uði sýna í ár en í heildina litið fannst mér hátíðin vel skipulögð og flott.“ Hildur Ragnarsdóttir, bloggari hjá Trendnet. „Mér fannst Jör-sýningin langflottust. Fötin, hárið, förðun- in, tónlistin og sviðið var töluvert flottara en hjá hinum. Svo þótti mér Farmers Market líka mjög flott. Ég fílaði hljómsveitina, fossinn í bakgrunninn og hvernig allt var stíliserað þó svo að línan sjálf hafi ekki verið mjög ný. Þetta tvennt stóð upp úr að mínu mati. Hvað hátíðina sjálfa varðar þá heppnaðist hún þokkalega vel þó að það hafi orðið eitthvað vesen með sætaskipanina.“ Þórunn Antonía Magnúsdóttir söngkona. „Ég sá þrjár sýningar, Jör by Guðmundur Jör- undsson, ELLU og Munda. Af þessum þremur sýningum fannst mér ELLA flottust. Hún var sam- kvæm sjálfri sér og fötin voru kvenleg og klæði- leg og sýningin sjálf var líka mjög falleg. Mér fannst góð tilbreyting að halda sýningarnar að degi til og mín upplifun var sú að það hafi verið vel að hátíðinni staðið í ár.“ Gunnar Már Sigfússon, lík- amsræktarþjálfari og ráð- gjafi, gaf út bókina Lág- kolvetna lífsstílinn við mikla gleði í Eymundsson fyrr í vikunni. Fullt var út úr dyrum af vinum, vandamönnum og aðdáendum þjálf- arans. Meðal þeirra voru þær Sara, Dag- björt og Sólrún Regins- dætur, Andrea Magnúsdóttir fata- hönnuður, Draupnir Rúnar, Berg- lind Guðmundsdóttir, Melkorka Árný Kvaran þjálfari, Þórunn Marinós dóttir og margir fleiri. Aldur 34 (til 1. júlí, þá verð ég 34,1‘s ) Starf Tónlistarmaður og „sales rep“ hjá S. Guðjónsson Maki Þorbjörg Sif Þorsteinsdóttir (Tobba). Börn Embla Margrét og Þorsteinn Heiðar. Áhugamál Tónlist, fótbolti, golf og allt með familíunni. Hvað stendur upp úr eftir vik- una Útgáfa lagsins Í Nótt með hljómsveit minni Made in Sveitin. Fjööör! Hvað á að gera um helgina Spila á árshátíð BootCamp. Snilldar- fólk, allir sem einn, ég mæli með því að æfa þarna. Eitthvað að lokum Hljómsveit- in Made in Sveitin er á Facebook, finnið okkur þar. Við erum að spila á fullu um páskana. Peace! Hreimur Örn Heimisson

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.