Fréttablaðið - 22.03.2013, Síða 40
FRÉTTABLAÐIÐ Heilsa og heilbrigði . Spjörunum úr og helgarmaturinn.
10 • LÍFIÐ 22. MARS 2013
H
venær kafaðir þú í
fyrsta skipti og hvar?
Ég prófaði í fyrsta
sinn að kafa úti á
Grikklandi.
Hver kynnti þig fyrir sportinu
eða hvað kom til að þú ákvaðst
að prófa? Það var í rauninni
hann pabbi minn sem gerði það.
Hann var búinn að prófa þetta
áður og varð strax mjög hrifinn,
við skelltum okkur svo saman á
köfunar námskeið.
Varðstu strax hrifin? Ég varð al-
gjörlega heilluð um leið og hef ekki
stoppað síðan. Ég fór fyrst í svona
prufutíma og fann það strax að
þetta var án efa það skemmtileg-
asta sem ég hafði prófað hingað til.
Ég skráði mig strax á námskeið til
að fá köfunarréttindi.
Kafarðu reglulega hér heima?
Já, oftast kafa ég svona tvisvar
til þrisvar sinnum í viku. Ég er
meðlimur í Sportkafarafélagi Ís-
lands og það er mikið af skemmti-
legum ferðum og uppákomum á
vegum félagsins. Köfunin er ekki
bara frábært áhugamál heldur
líka alveg geggjuð líkamsrækt. Ég
sagði upp kortinu mínu í ræktina
og stunda nú bara köfun af kappi.
Hvar kafarðu helst? Við förum
oft á Þingvelli, í Silfru eða Davíðs -
gjá. Svo reynir maður að fara í
sjóinn ef veður leyfir, þá förum
við oft út frá bryggjunni í
Garði eða til dæmis á Óttars-
stöðum sem eru rétt hjá ál-
verinu í Hafnarfirði.
Hvar dreymir þig helst um
að kafa í heiminum? Draum-
urinn er að fara í hella-
kafanir í Mexíkó. Svo eru
auð vitað Rauðahafið og
Bahama-eyjar á listanum.
Hefurðu orðið hrædd í
þessu sporti eða lent í erf-
iðum aðstæðum? Já, ég lenti
í mjög erfiðum aðstæðum
núna í desember og það var
í fyrsta og eina skiptið sem ég
var virkilega hrædd. Ég var í
djúpköfun í Kleifarvatni þegar
búnaðurinn minn klikkaði og það
fór margt úrskeiðis. Ég var komin
í virkilega slæmar og hættu-
lega aðstæður. Þetta fór svo allt
vel á endanum en ég var mjög
heppin. Mér finnst enn þá pínu
óþægilegt að kafa nákvæmlega
á þessum stað.
Stundarðu einhver fleiri
skemmtileg sport eða úti-
vist? Ég er almennt mjög
aktív og mér líður best
þegar ég hef nóg að gera.
Ég geng mikið á fjöll og
stunda línuskauta. Ég stefni
svo á að prófa fallhlífar-
stökk í sumar.
ÁHUGAMÁL FÓR Á KÖFUNAR-
NÁMSKEIÐ MEÐ PABBA
Magdalena Dubik sagði upp líkamsræktarkortinu og stundar nú köfunarsportið af krafti.
NAFN Magdalena
ALDUR 25 ára
STARF Verkefnastjóri í sölu-
og markaðsdeild Andrár
D
YN
A
M
O
R
EY
K
JA
V
ÍK
Fimm gamlingjar komast að því að það er miklu
betri aðbúnaður í fangelsum en á elliheimilum
og grípa til sinna ráða. En leiðin á bak við rimlana
reynist þyrnum stráð ...
Einstök bók úr smiðju Sirrýjar um hvernig hægt er að
öðlast meiri færni í að koma fram og tjá sig og eiga í
ánægjulegum samskiptum. Lifandi texti, kryddaður
fjölmörgum sögum úr veruleikanum.
SPENNANDI
KÓSÍKRIMMI!
D
YN
A
M
O
RE
YK
JA
V
ÍK
ÁVÍSUN Á BETRI
SAMSKIPTI!
„Þessi bók er fyrir
alla sem vilja
koma skoðun sinni
skilmerkilega á
framfæri.“
STEFÁN JÓN HAFSTEIN
„Hrikalega
skemmtileg!“
RADIO P4 BLEKI
NGE
Magdalena
hefur einu sinni
komist í hættu-
ástand neðan-
sjávar og segist
enn verða
hrædd þegar
hún kafar á
sömu slóðum.
Magdalena Dubik ásamt þaulvönum kafara í Grikklandi.
Magdalena Dubik er aktív kona en fyrir utan vinnu stundar hún stundar köfun, spilar á fiðlu, ferðast og lifir lífinu.