Fréttablaðið - 22.03.2013, Síða 54
22. mars 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 26
„Ég er alveg viss um að þau
eiga öll eftir að sigra heiminn,“
segir Stefán Jónsson, fag stjóri
leik listar brautar Listaháskóla
Íslands, en hann leikstýrir út-
skriftarnemum LHÍ í verkinu
„Draumur á Jónsmessunótt“ sem
frumsýnt er í kvöld. Tíu leikarar
útskrifast af leikarabrautinni í
vor og segir Stefán allt lagt undir
í þessu lokaverkefni hópsins.
„Þetta er mjög góður hópur
og við ákváðum að tefla fram
klassíkinni á þau. Draumurinn er
eitt mest leikna verk Shakespea-
res og reynir vel á leiktæknina.“
Nú þegar hafa þrír leikarar úr
árganginum gengið frá samning-
um við stóru leikhúsin, þau Arnar
Dan Kristjánsson og Hildur Berg-
lind Arndal, sem fengu samning
við Borgarleikhúsið og Elma
Stefanía Ágústsdóttir, sem gerði
samning við Þjóðleikhúsið. Bindið
þið ekki miklar vonir við hópinn?
„Jú, við gerum það. Það er að
sjálfsögðu allur gangur á því
hverjir fara beint inn í leik húsin
eða hvort það sé yfirleitt það sem
krakkarnir vilja. Sumir ætla í
framhaldsnám og svo fer þetta
bara eftir því hvernig staðan er
hjá leikhúsunum, hvað vantar á
hvaða aldursbili, hvernig útliti
þau eru að leita eftir og annað.
Svo þetta er að sjálfsögðu ekki
endanlegur mælikvarði á það
hver sé góður og hver ekki,“ segir
Stefán, en bætir við að þessir
samningar séu þó mikið gleðiefni.
Hann segir undirbúninginn
hafa gengið vonum framar og að
hópurinn sé vel samstilltur. „Svo
koma við sögu nemendur á fyrsta
ári sem bæði leika og aðstoða.
Það tíðkaðist í gamla daga að
yngri bekkingar tækju þátt en
svo var því hætt. Við ákváðum
hins vegar að hafa þau með í
þetta skiptið,“ segir Stefán. Hann
segir sýninguna einnig marka
ákveðin tímamót. „Þetta er í
fyrsta skipti sem við útskrifum
leikara með BA-gráðu eftir þrjú
ár svo þetta verður fyrsta sýn-
ingin á þeim tímamótum. Ég get
ekki, þó ég segi sjálfur frá, sagt
og séð annað en að þau séu tilbúin
til að fljúga úr hreiðrinu.“ Nánari
upplýsingar um sýninguna má
finna inn á heimasíðu Listahá-
skólans, www.lhi.is.
kristjana@frettabladid.is
TILBÚIN AÐ
FLJÚGA ÚR
HREIÐRINU
Hildur Berglind Arndal
Þór Birgisson
Elma Stefanía Ágústsdóttir
Þorleifur Einarsson
Hafdís Helga Helgadóttir
Arnmundur Ernst Björnsson
Fram koma
GÓÐUR UNDIRBÚNINGUR Stefán Jónsson leikstýrir útskriftarárgangi LHÍ í Draumi á Jónsmessunótt. Hann bindur miklar vonir
við hópinn sem útskrifast í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Útskrift arárgangur leiklistardeildar Listaháskóla
Íslands frumsýnir Shakespeare-verkið Draumur á
Jónsmessunótt í Smiðjunni í kvöld. Þetta er í fyrsta
skipti sem deildin útskrifar leikara með BA-gráðu af
leikarabraut leiklistar- og dansdeildar.
Þetta er í fyrsta
skipti sem við útskrifum
leikara með BA-gráðu
eftir þrjú ár svo þetta
verður fyrsta sýningin á
þeim tímamótum. Ég get
ekki, þó ég segi sjálfur
frá, sagt og séð annað en
að þau séu tilbúin til að
fljúga úr hreiðrinu.
Stefán Jónsson, leikstjóri
Thelma Marín Jónsdóttir
Oddur Júlíusson
Arnar Dan Kristjánsson
Salóme Rannveig Gunnarsdóttir
Leikstjóri: Stefán Jónsson, fagstjóri
leikarabrautar
Leikmynd, lýsing og myndvinnsla:
Egill Ingibergsson
Búningar: Agnieszka Baranowska
Tónlist: Úlfur Hanson
Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » Sími: 528 5050 » Opið 10-18 virka daga og 12-18 um helgar
Syngur í stað Voigt
á tónleikum 22. mars
Bandaríska sópransöngkonan Deborah Voigt
hefur afboðað komu sína á tónleika Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands föstudaginn 22. mars vegna
veikinda. Í hennar stað syngur þýska söngkonan
Nadja Michael.
Michael er tíður gestur í frægustu óperuhúsum
heims og margverðlaunuð fyrir túlkun sína á
Salóme sem er á efnisskrá tónleikanna. Michael
er ein helsta stjarnan í óperuheiminum í dag og
því mikill fengur að fá hana hingað til lands.
Fös. 22. mars » 19:30
Johannes Brahms Serenaða í D-dúr, op. 11
Richard Strauss Sjöslæðudansinn
Richard Strauss Lokaþáttur úr Salóme
James Gaffigan hljómsveitarstjóri
Nadja Michael einsöngvari
Aðeins örfá sæti eru laus á þessa óvæntu
og einstöku tónleika. Tryggðu þér miða.
Þeir sem óska eftir að skipta eða skila miðum
sínum geta haft samband við miðasölu Hörpu.
NADJA MICHAEL SYNGUR STRAUSS
Óperutónleikar
á morgun, 23. mars
kl. 20:00 í Kaldalóni
Þóra Einarsdóttir og
Garðar Thór Cortes
syngja aríur eftir
DONIZETTI / MOZART / PUCCINI
Miðasala á www.harpa.is
MENNING