Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 62
| ATVINNA |
Eftirlit og þjónusta fasteigna
Fyrirtæki sem sérhæfir sig í fasteignaþjónustu óskar eftir að ráða
jákvæðan, dugmikinn og reyklausan einstakling til starfa.
Í starfinu felst ábyrgð á eftirliti og þjónustu með eignum á
höfuðborgarsvæðinu.
Leitað er að jákvæðum einstaklingi með færni í mannlegum
samskiptum. Viðkomandi þarf að hafa ríka skipulagshæfileika og
þjónustulund auk þess að vera laghentur og að geta unnið sjálfstætt.
Íslenskukunnátta er skilyrði.
Um er að ræða 100% starf auk bakvakta.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst og þurfa að
hafa hreint sakavottorð. Umsóknir ásamt ferilskrá með mynd berist á
netfangið fasteignaumsjon@gmail.com fyrir miðvikudaginn 27. mars.
Mannauðsráðgjafi
Velferðarsvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavikurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Ertu að leita að starfi þar sem hæfileikar þínir fá notið sín?
Velferðarsvið óskar eftir að ráða öflugan mannauðsráðgjafa til starfa í mannauðsþjónustu sviðsins. Við bjóðum uppá fjölbreytt
og krefjandi starf í metnaðarfullu starfsumhverfi, þar sem hæfileikar starfsmanna fá notið sín. Við bjóðum uppá þátttöku í þróun
starfsumhverfis og verkefna.
Starfssvið
• Skipulagning og stefnumótun símenntunar og starfsþró-
unar.
• Ráðgjöf við stjórnendur og fræðslufulltrúa vegna símennt-
unar og starfsþróunar.
• Ráðgjöf og kennsla varðandi starfsþróunarsamtöl og gerð
símenntunaráætlana.
• Stuðningur, ráðgjöf og fræðsla til stjórnenda varðandi
mannauðstengd málefni.
• Stuðningur, eftirfylgd og ráðgjöf vegna vinnustaðagreininga.
• Þátttaka í vinnuhópum á sviði starfsmannamála bæði innan
sviðs og borgarkerfis.
• Ýmis önnur verkefni sem lúta að því að gera starfsstaði
velferðarsviðs að eftirsóknaverðum vinnustöðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun á
sviði mannauðsmála.
• Þekking og reynsla á sviði mannauðsmála.
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Við leitum að starfsmanni í fullt starf sem getur hafið störf
sem fyrst. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur-
borar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur er vinsamlega beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storfibodi. Umsókn-
arfrestur er til og með 3.apríl nk.
Nánari upplýsingar veitir Lóa Birna Birgisdóttir starfsmannastjóri, loa.birna.birgisdottir@reykjavik.is og í síma 411-9024.
Vakin er athygli á þeirri stefnu Reykjavíkurborgar að jafna hlut kynja í störfum.
Aðstoðarkona óskast
Hjartahlý, kærleiksrík, róleg og umvefjandi kona við
góða líkamlega heilsu á aldrinum 35–55 óskast til að
aðstoða langveika konu um þrítugt og sérstaklega vera
henni tilfinningalegur stuðningur en einnig mögulega
að geta aðstoðað við ýmsa hluti eins og að fara með
hundinn, versla fyrir hana og þrífa.Vinnutími yrði
óreglulegur en samt yrði gert vinnuplan og skipulag.
Aðstoðarkonan þyrfti að hafa vítt þekkingarsvið
og áhuga á vinnunni sem og hafa mikinn skilning
á líkamlegum og andlegum veikindum og vera
góður hlustandi. Best væri ef viðkomandi hefði
einhverja grunnþekkingu á geðröskunum og
reynslu úr heilbrigðisgeiranum. Unnið verður eftir
hugmyndafræðinni um notendastýrða persónulega
aðstoð. Áhugasamir sendi tölvupóst á netfangið
adstodarkona@gmail.com.
Reynslumikill markaðsráðgjafi —
Account director
Starfið:
– Umsjón með ráðgjöf til stærri viðskiptavina stofunnar.
– Utanumhald og eftirfylgni með einstökum verkefnum.
– Leiða verkefni innan stofunnar í samvinnu við
hugmynda- og hönnunarteymi.
– Dagleg samskipti við viðskiptavini.
Markaðsráðgjafi —
Account executive
Starfið:
– Utanumhald og eftirfylgni með einstökum
verkefnum í samráði við stjórnendur.
– Samvinna við hugmynda- og hönnunarteymi
stofunnar varðandi ýmis verkefni.
– Ráðgjöf til viðskiptavina stofunnar.
– Dagleg samskipti við viðskiptavini.
Digital ráðgjafi —
Digital strategist
Starfið:
– Skipulagning, eftirlit og stjórnun á auglýsingaherferðum
á Google, Facebook og öðrum vefjum (PPC, CPM) og
ráðgjöf í leitarvélabestun til viðskiptavina stofunnar.
– Greiningar og eftirfylgni með markaðsaðgerðum á netinu
og eftirlit með að markaðsefni sýni jákvætt ROI.
– Hugmyndasmíði vefauglýsinga (auglýsingatextar,
vefborðar o.s.frv.)
– Náið samstarf með vefhönnuðum og hugmynda-
smiðum (t.d. við hönnun á vefauglýsingum,
ábyrgð á lendingarsíðum).
Hreyfihönnuður —
Motion graphics
Starfið:
– Að skapa framúrskarandi efni fyrir hina ýmsu
nýmiðla í samvinnu við hugmynda- og hönnunarteymi,
og markaðsráðgjafa stofunnar.
Textasmiður —
Copywriter
Starfið:
– Skrif á skýrum, spennandi og hnitmiðuðum texta
sem vekur tilfinningar með lesendum.
– Skrif á kjarnyrtri íslensku og lýtalausri ensku
fyrir prent, sjónvarp og netmiðla.
– Löngun til að leggja sig fram á milli níu og fimm
og oftar en ekki milli fimm og níu.
Birtingaráðgjafi —
Media planner
ABS media, dótturfyrirtæki Íslensku,
óskar eftir birtingaráðgjafa.
Starfið:
– Birtingaráðgjöf, framkvæmd.
áætlana og eftirfylgni með þeim.
– Samskipti við viðskiptavini og birtingamiðla.
– Greining og úrvinnsla gagna í tengslum
við áætlanagerð.
Vegna aukinna umsvifa leitum við að kraftmiklu og
hæfileikaríku fólki til starfa á Íslensku auglýsingastofunni.
Umsókn sendist rafrænt á starf@islenska.is ekki síðar
en 27. mars 2013. Allar umsóknir eru trúnaðarmál.
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á www.islenska.is
VILTU VINNA Í KREFJANDI, LIFANDI
OG SKAPANDI UMHVERFI?
Íslenska hefur verið í fremstu röð íslenskra auglýsingastofa í 25 ár og er stolt af því
að hafa komið að kynningu öflugustu vörumerkja á Íslandi. Íslenska er auglýsingastofa
númer eitt á Íslandi í árlegri könnun Capacent meðal markaðsstjóra 2012 og 2013
og eina auglýsingastofan í hópi framúrskarandi fyrirtækja Creditinfo árið 2011 og 2012.
23. mars 2013 LAUGARDAGUR4