Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 28
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28 Hólmsheiði Flugvöllur Fangelsi Vegna vatnsverndar-sjónarmiða er ein-dregið lagst gegn því að hafin verði frekari upp-bygging ferða þjónustu á Bláfjalla svæðinu áður en mótuð hefur verið heildstæð samgöngustefna fyrir svæðið. Ljóst er að vegir í Bláfjöllum eru fjarri því að uppfylla kröfur um vegöryggi, en svæðið er viðkvæmt með tilliti til grunnvatns mengunar. Litið er til fyrir hugaðrar upp- byggingar við Þríhnúkagíg, þar sem áætlanir til næstu ára gera ráð fyrir mörg hundruð þúsund ferða- mönnum á ári, auk þess sem hug- myndir eru að auka enn starfsemi á skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Sótt að vatnsverndarsvæði Þetta kemur fram í gögnum fram- kvæmdastjórnar um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu (FVH); árs- skýrslu 2012 og fundar gerðum stjórnarinnar. Eins í gögnum frá heilbrigðisnefndum sveitar- félaganna á höfuðborgarsvæðinu. Guðmundur H. Einarsson, fram- kvæmdastjóri heilbrigðis eftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogs, segir að hafin sé heildarendurskoðun vatnsverndar fyrir höfuðborgar- svæðið á vegum Sambands sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH). Núgildandi vatnsvernd er fimmtán ára gömul. „Það er sótt að vatnsverndarsvæðinu og því höfum við kallað eftir því að gerðar séu rannsóknir sem styðja myndu endurskoðunina og á því hvort sé hægt að breyta áherslum eða halda vatnsverndinni óbreyttri frá því sem nú er.“ Heilbrigðisnefndir hafa litið svo á að skipulag frá 1999 og heilbrigðis samþykktir frá 1997 dugi ekki einar og sér til að tryggja nægilega vatnsverndar- hagsmuni höfuðborgarsvæðisins. Útilokað er að fallast á uppbygg- ingu fyrr en verkefninu er lokið, áætlað er að það verði á fyrri hluta næsta árs gangi áætlanir eftir. Hún tekur ekki síst til skíða svæðis- ins í Bláfjöllum og Þríhnúkagígs og hugmyndum um ferðaþjónustu. „Að bæta Bláfjallaveginn er mál dagsins í dag, óháð allri frekari uppbyggingu,“ segir Guð mundur, sem jafnframt e r f o r - maður FVH. Heilbrigðiseftirlit Reykja- víkur hefur gengið lengra og sagt í sínum umsögnum að skoða eigi visthæfari samgöngumáta upp í Bláfjöll en tíðkast; að hver og einn fari á einkabíl þangað til að njóta útivistar á svæðinu. Vegurinn upp í Bláfjöll, sama hversu góður hann er, er alltaf áhættuþáttur vegna legu og veðurfars á svæðinu, að mati heilbrigðiseftirlitsins. Þörf er á samgönguáætlun Á 95. fundi FVH 17. ágúst síðast- liðinn var bókað í samhengi við úttektir um mengunarhættu vegna hugsanlegra óhappa á veginum til Bláfjalla: „Vegna viðkvæmni svæðisins og annarrar starfsemi sem þar er og sem er í skoðun að auka verður að mati framkvæmda- stjórnar vatnsverndarsvæðis höfuðborgar svæðisins að fara fram heildstætt mat á umhverfis- áhrifum, stjórnsýslu á svæðinu, aukinni ferðaþjónustu og rekstri skíðasvæðis, samgöngumann- virkja og almennrar útivistar áður en hægt verður að fallast á frek- ari uppbyggingu innan svæðis- ins. Að slíku mati er nauðsynlegt að umráðaaðilar svæðisins komi.“ Þá segir að nauðsynlegt sé að gera sérstaklega samgönguáætlun fyrir Bláfjallasvæðið í þessu ljósi vegna grunnvatnshagsmuna. Viðkvæm vatnsból Guðmundur segir jafnframt að hugmyndir um uppbyggingu í Blá- fjöllum snúist fyrst og síðast um ferðamenn. „En við segjum að það verði að horfa á svæðið sem heild. Ef þetta gengur eftir er vilji til að taka á móti ferðamönnum allt árið um kring, og þá allt að 500 þúsund manns. Fyrir er skíða svæðið þar sem menn fara um skipulags lítið. Ef menn vilja hafa þessa starf- semi verður að bæta veginn. Hvað öryggi varðar er hann ekki boð- legur fyrir þá umferð sem þar er núna, hvað þá ef við bætist hálf milljón ferðamenn. Ef það verð- ur olíumengunarslys, og það þarf ekki að vera stórvægilegt, eru vatnsbólin farin á stundinni.“ Vatn á flöskum Guðmundur segir að sé vilji til að byggja upp starfsemi af þess- ari stærðargráðu, auka rekstur og um leið viðhalda vatns- vernd, þurfi að vera til staðar „plan B“ ef eitthvað fer úrskeiðis. Ef illa fer þarf jafnvel að sækja ferskvatn annað, og jafnvel upp í Þingvallasveit. „Já, eða kaupa það á flöskum,“ segir Guðmundur og varar sterklega við þeim sofanda- hætti sem einkennir umræðu um vatnsverndarmál, eða að málið sé talið léttvægt. Árný Sigurðardóttir, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðis eftirlits Reykjavíkur, segir að vatns takan sé þó einungis neyðarplan ef eitt- hvað gerist inni á vatnsverndar- svæðinu. „Þá væri heitavatns- lögnin frá Nesjavöllum notuð til að hleypa á köldu vatni til höfuðborgar svæðisins. Þetta er einungis skammtímalausn þar sem þá yrði ekki heitu vatni veitt til svæðisins á meðan. Vatnsverndar- svæði höfuðborgarbúa í dag er þannig upp byggt að ekki eru öll eggin í sömu körfunni og hægt er að taka neysluvatn frá fleiri en einu vatnstökusvæði. Hins vegar er verið að þrengja sífellt meira að þessum öryggisventli.“ Í umhverfismatinu vegna Þrí- hnúkaframkvæmdarinnar eru allar þessar áhyggjur tíundaðar. Mat framkvæmdaaðila er þó að mengunarhætta sé ekki veruleg. Þó sé það háð því að ráðist verði í umbætur á vegum og fyllstu var- úðar gætt á framkvæmdatímanum. Úrbætur ekki ráðgerðar Í umsögn Skipulagsstofnunar á umhverfismatinu er tekið undir það sjónarmið að hættan sé lítil á mengunarslysi; þó sé erfitt að greina þá áhættu sem fram- kvæmdin hefi í för með sér með vissu. Stofnunin tekur undir mikil- vægi heildarúttektar á vatns- verndarsvæðinu. Hún þurfi meðal annars að felast í greiningu á allri starfsemi á vatnsverndarsvæðinu og mati á hvað sé ásættanlegt að fari þar fram með tilliti til grunn- vatns og vatnsbóla höfuðborgar- svæðisins. Eins og áður segir stendur endur skoðunin yfir og telur Skipu- lagsstofnun að niðurstöðu hennar eigi að nýta við gerð skipulags- áætlana á svæðinu, sem síðar yrðu grunnur leyfisveitinga til fram- kvæmda innan vatnsverndar- svæðisins. Í svari Vegagerðar- innar við fyrir spurn Fréttablaðsins segir að engar áætlanir eru uppi á borðum um að byggja Blá- fjallaveg upp. Því ríkir óvissa um hvenær og hvernig verður ráðist í úrbæt- ur á aðkomu- leiðu m að Bláfjöllum og Þríhnúkagíg. Í ÞRÍHNÚKAGÍG Gígurinn er mikilfenglegur og áætlanir gera ráð fyrir að aðdráttar afl hans sé mikið fyrir ferðamenn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Eins og komið hefur fram í fréttum eru uppi hugmyndir að gera Þrí- hnúkagíg aðgengilegan fyrir ferðamenn. Hugmyndin er að leggja veg að gígnum, byggja þjónustubyggingu og gera 300 metra löng jarðgöng inn í gíghvelfinguna. Þar verði komið fyrir útsýnissvölum og jafnvel hringstiga niður á botn gígsins. Spár fyrir aðsókn ganga út frá því að árið 2023 sæki 450 þúsund gestir Þríhnúkagíg heim. Fyrir liggur mat á umhverfisáhrifum og álit Skipulagsstofnunar. Í umhverfismati er gert ráð fyrir að hefja fram- kvæmdir í ár og að gígurinn verði opnaður fyrir ferðamenn árið 2015. Allt framkvæmdasvæðið er innan vatnsverndarsvæðis höfuðborgar- svæðisins; Þríhnúkagígur er um fjóra kílómetra vestur af skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Áhyggjur manna snúa að þeirri hættu sem fylgir fólksflutn- ingum um svæðið eftir Bláfjallavegi, jafnvel þúsundum manna dag hvern þegar mest verður. HORFT TIL UPPBYGGINGAR VIÐ ÞRÍHNÚKAGÍG Sótt að viðkvæmum vatnsbólum Tómt mál er að tala um uppbyggingu ferðaþjónustu á Bláfjallasvæðinu áður en endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgar- svæðinu er lokið. Vegir á svæðinu standast ekki öryggiskröfur og þarf að bæta strax. Mikil fjölgun ferðamanna á áætlun. Þríhnúkagígar Kaldárbotnar Myllulækjarsvæði Vatnsendakrikar Fossvallaklif Straumsel Mygludalir Gvendarbrunnar og jaðarsvæði Bláfj allavegur Suðurlandsvegur Suðvesturlína Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Hins vegar er verið að þrengja sífellt meira að þessum öryggisventli. Árný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðis eftirlits Reykjavíkur Ef það verður olíumengunarslys, og það þarf ekki að vera stór- vægilegt, eru vatnsbólin farin á stundinni. Guðmundur H. Einarsson, framkvæmdastjóri heilbrigðis eftirlits Hafnarfjarðar og Kópavogs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.