Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 44
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 44
hef séð nokkrar kvikmyndir
sem eru skrifaðar og leikstýrt af
konum þar sem karlarnir fá sama
hlutskipti og konurnar í main-
stream-kvikmyndunum. Þeir eiga
það til að verða dálítið tvívíðir og
symból fyrir huggulega ídeal karl-
menn. Mér finnst mjög fróðlegt að
sjá það, því þá skynjar maður svo
sterkt hvernig við karlmennirn-
ir skrifum kvenpersónur. Þegar
ég sé þessar myndir þá hugsa ég:
„Gott á okkur. Nú sé ég hvað við
erum að gera í níutíu prósentum af
þeim kvikmyndum sem við höfum
framleitt. Við erum að búa til
steríót ýpur af konum sem eru yfir-
leitt einhver keppikefli, „trophy
wifes“.“ Í gamanmyndum eru þær
mjög oft skynsama úrtölukonan
sem hefur góð áhrif á ólíkindatólið
sem karlmaðurinn er. Klassískasta
dæmið er auðvitað Homer Simpson
og Marge. Ég er alltaf að leita að
verkum og sögum þar sem þetta
er ekki upp á teningnum. Alltaf að
reyna að sparka í rassinn á sjálf-
um mér með að bæta skilninginn
á kvenpersónunum og gera þær
dýpri.“
Gott samkomulag
Óskar og Eva María Jónsdóttir
skildu fyrir rúmum fjórum árum
og hafa sameiginlegt forræði
yfir dætrunum þremur, sem eru
hjá þeim til skiptis. Óskar segir
líf sitt að miklu leyti snúast um
þær. „Líf mitt snýst um stelpurn-
ar mínar annars vegar og vinn-
una hins vegar. Ég reyni að vera
með stelpunum alltaf þegar ég er
ekki að vinna en auðvitað er þetta
tarnavinna þannig að það bygg-
ist á góðu samkomulagi við mína
fyrrverandi, sem er ekki ókunnug
þessum bransa og hefur skilning á
því að þetta er svona. Við reynum
að leysa þau vandamál sem upp
koma í sameiningu, en auð vitað
eru alltaf einhverjir árekstrar,
lífið er bara þannig. Eins og þýska
máltækið segir: Það sem lifir, það
truflar.“
Heilbrigðir vitleysingar
Sagan segir að þú hafir breytt lífs-
stílnum frá a-ö eftir skilnaðinn, er
eitthvað til í því? „Eftir skilnaðinn
hrökk ég aðeins inn í skel mína í
tæp tvö ár og var dálítið út af
fyrir mig. En ég er svo heppinn að
þekkja frábæran hóp af karlmönn-
um á mínu reki sem ég kynntist
í gegnum kajaksportið hérna um
árið. Þetta eru heilbrigðustu vit-
leysingar sem um getur og við
stundum sjósund í hverri viku,
en ekki nóg með það heldur eiga
sér stað alls kyns bulluppátæki
eins og til dæmis að svelta sig
í sólarhring áður en við förum í
sjóinn, sem ég get engan veginn
mælt með. Oft förum við líka í
fjallgöngu fyrir vinnu, og leggj-
um þá af stað fyrir klukkan sex á
morgnana, keppum í skylmingum,
bogfimi og skeggvexti, til dæmis.
Þetta hefur hjálpað mér mikið og
mín stefna eftir skilnaðinn hefur
verið að leita frekar þangað en á
djammið og barina.
Mér finnst alveg gaman að
kíkja út á lífið annað slagið, en
ég reyni að gera ekki mikið af
því vegna þess að það tekur sinn
toll og það er margt annað í líf-
inu sem heillar mig meira. Núna
er ég til dæmis kominn með nýtt
hobbí, sem er að gera upp fjárhús
og hlöðu vestur á fjörðum. Það er
við Patreksfjörðinn hjá yndislegu
fólki sem rekur bændagistingu í
Hænuvík. Ég hef farið til þeirra
með stelpurnar mínar undanfar-
in tólf sumur og við höfum alltaf
gist í litlu steinhúsi niðri á fjöru-
kambinum. Þar rétt hjá eru fjár-
hús og hlaða frá millistríðsárun-
um sem ég hef í gegnum tíðina
verið að horfa á og hugsa að þetta
gæti orðið eitthvað. Í haust ræddi
ég þetta svo við hjónin á bænum,
Gutta og Maríu, og það var bara
eins og þau hefðu beðið eftir að
ég styngi upp á þessu. Í nóvember
fór ég svo vestur með kerru fulla
af byggingarefni og byrjaði, vann
baki brotnu í tólf daga og kom
miklu í verk með aðstoð hjónanna
í Hænuvík, dætra þeirra og verð-
andi tengdasonar. Í næsta mán-
uði fer ég svo vestur og byrja að
steypa og tek næstu skref. Þetta
verða mörg hænu skref og á eftir
að taka mörg, mörg ár.“
Ertu svona dellukarl? „Mér
finnst þetta alls engin della, en
jú – ég verð dálítið heltekinn af
hinu og þessu. Þessa framkvæmd
finnst mér ég hins vegar hafa ráð-
ist í að vandlega yfirveguðu máli.
Kvikmyndagerð er auðvitað dellu-
áhlaupa-þráhyggjuviðfangsefni
þannig að það er ágætt að hafa
þann karakter til brunns að bera.“
„Við Sjón skrifuðum
handritið upp úr leikriti
Árna Ibsen, Fiskar á þurru
landi. Við lásum ansi mörg
verk, bæði sviðsverk og
skáldsögur, en þetta þótti
okkur skemmtilegast. Vel
skrifað verk og samtölin
steinliggja. Við stokkuðum
leikritið töluvert upp og
skrifuðum útisenur sem
voru ekki í sviðsverkinu,
en upphafið og endirinn
eru eins og Árni skilaði frá
sér og söguþráðurinn er í
stórum dráttum sá sami.“
Fiskar á þurru landi
fjallar um parið Gumma
og Gúu, sem flytja inn
á gistiheimili í litlu
sjávarplássi úti á landi.
Gistiheimilið er rekið af
furðufuglunum Knúti
og Efemíu, sem eru ekki
öll þar sem þau eru séð.
Gummi er á leið í fram-
boð, spiluðu væntanlegar
alþingiskosningar inn í
valið? „Alls ekki, það er
bara skondin tilviljun. Sá
þáttur var reyndar ekki
ofarlega á baugi í verki
Árna, en þegar við Sjón
fórum að skrifa útisen-
urnar, sem snúast allar
um tilraunir frambjóð-
andans til að slá í gegn
í þorpinu, fékk sá þáttur
aukið vægi.“
Verkið fjallar um tvö
pör, er eitthvert aðalhlut-
verk? „Þetta eru tveir
karlar og tvær konur og
allar persónurnar eru
mjög vel skrifaðar. Mér
finnst kona frambjóð-
andans vera í aðalhlut-
verki, en Knútur gæti líka
fengið þá skilgreiningu.
Það voru reyndar skiptar
skoðanir um það í undir-
búningsvinnunni, þar
sem öll hlutverkin eru
álíka stór. Í heild er
verkið mjög gott innlegg
í umræðuna í dag. Það
kemur inn á jafnrétti
kynjanna, kapítalisma,
heimilisofbeldi og fleira
og fleira. Þannig að þegar
maður fer að rýna í það
er Fiskar á þurru landi
mun dýpra verk en það
virðist við fyrstu sýn.“
Fiskar á þurru landi
Gott á okkur. Nú sé
ég hvað við erum að gera í
níutíu prósentum af þeim
kvikmyndum sem við
höfum framleitt.
MYNDIR AF SETTI FISKA Á ÞURRU LANDI Myndin var tekin upp á átta dögum og það var handagangur í öskjunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Opið frá kl. 11–20 alla daga
Engihjalla og Granda
1.399kr. pk
Kínvers
kir platt
ar 75 bi
tar
TILVALI[ Í AFMÆLI[ E[A
FERMINGARVEISLUNA
PLATTERS
PARTÝ
/Ú FÆ
R[ M
EIRA
FYRIR
PENI
NGIN
N
Í ICEL
AND
1.399kr. pk
Indvers
kir platt
ar 75 bi
tar
1.399kr. pk
Eftirrétt
aplatta
r 75 bit
ar
Ótrúlegt úrval af tilbúnum
smáréttum á frábæru verði