Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 126
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| SPORT | 90
VALDIR LEIKIR ÚR UNDANK. HM
SAN MARÍNÓ - ENGLAND 0-8
0-1 Sjálfsmark (12.), 0-2 Alex Oxlade-
Chamberlain (28.), 0-3 Jermain Defoe (35.), 0-4
Ashley Young (39.), 0-5 Frank Lampard (42.), 0-6
Wayne Rooney (54.), 0-7 Daniel Sturridge (70.),
0-8 Defoe (77.).
TÉKKLAND - DANMÖRK 0-3
0-1 Andreas Cornelius (57.), 0-2 Simon Kjær
(67.), 0-3 Niki Zimling (82.)
ÍSRAEL - PORTÚGAL 3-3
0-1 Bruno Alves (2.), 1-1 Tomer Hemad (24.), 2-1
Eden Ben Basat (40.), 3-1 Rami Gershon (70.),
3-2 Hélder Postiga (72.), 3-3 Fábio Coentrão
(90.+3)
KASAKSTAN - ÞÝSKALAND 0-3
0-1 Bastian Schweinsteiger (20.), 0-2 Mario
Götze (22.), 0-3 Thomas Müller (74.)
AUSTURRÍKI - FÆREYJAR 3-0
1-0 Philipp Hosiner (8.), 2-0 Philipp Hosiner
(20.), 3-0 Andreas Ivanschitz (28.).
SVÍÞJÓÐ - ÍRLAND 0-0
SPÁNN - FINNLAND 1-1
1-0 Sergio Ramos (49.), 1-1 Teemu Pukki (79.)
KRÓATÍA - SERBÍA 2-0
1-0 Mario Mandžukić (23.), 2-0 Ivica Olić (37.).
BOSNÍA - GRIKKLAND 3-0
Edin Džeko 2 (29., 52.), Vedad Ibisevic (36.).
HOLLAND - EISTLAND 3-0
1-0 Rafael van der Vaart (47.), 2-0 Robin van
Persie (72.), 3-0 Ruben Schaken (84.)
ÚRSLIT
Vinningar:
Fermingarleikur
Fermingarleikur
TVÖ STÓRKOSTLEG MÖRK Gylfi Þór Sigurðsson hefur skorað sigurmarkið í síðustu tveimur útileikjum íslenska liðsins en hér
fagnar hann öðru marka sinna í gær ásamt landsliðsfyirliðanum Aroni Einari Gunnarssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson
töfraði fram tvö glæsileg mörk
sem dugðu til að tryggja Íslandi
2-1 sigur á Slóveníu í Ljubljana
í gær. Það var reyndar fátt sem
benti til sigurs eftir slakan fyrri
hálfleik en Íslandi spilaði vel úr
sínu í þeim síðari.
Milivoje Novakovic færði
sér hik í íslensku vörninni í nyt
þegar hann kom heimamönnum
yfir í gær en Gylfi jafnaði metin
með stórglæsilegri aukaspyrnu
snemma í síðari hálfleik og inn-
siglaði svo sigurinn á 78. mínútu
eftir góðan undirbúnings vara-
mannsins Eiðs Smára Guðjohnsen.
„Þetta var góð tilfinning, sér-
staklega eftir slappan leik af okkar
hálfu. Við náðum aldrei boltanum
niður og að komast í þann venjulega
gír sem við viljum vera í. En þetta
var erfiður leikur og sérstaklega
gott að hafa unnið hann á útivelli,“
sagði Gylfi, sem neitar því ekki að
aukaspyrnumarkið hafi verið eitt
hans besta á ferlinum til þessa.
„Þetta var frekar langt frá og
gaman að sjá hann í skeytunum.
Kolli var eitthvað að gera sig lík-
legan til að taka spyrnuna en það
kom ekki til greina,“ sagði hann
brosandi.
„Það var svo jafnvel enn sætara
að skora síðara markið og halda
forystunni til loka. Við vörðumst
allir vel síðustu 15-20 mínúturn-
ar og Hannes tók 5-6 erfiða bolta.
Hann á mikið hrós skilið, eins og
allir í liðinu.“
Lars Lagerbäck var ekki ánægð-
ur með frammistöðu Íslands í fyrri
hálfleik. Hann ákvað að breyta til
með því að setja Jóhann Berg Guð-
mundsson inn á fyrir Alfreð Finn-
bogason og setja Gylfa Þór fremst-
an með Kolbeini. Enda hafði lítið
komið út úr Gylfa á kantinum, eins
og fleirum í íslenska liðinu.
„Gylfi er sífellt á hreyfingu og
ég vildi fá hann framar á völl-
inn og betur inn í leikinn,“ sagði
Lager bäck. „Jóhann hafði líka
staðið sig vel gegn Rússlandi enda
með mikinn hraða og er öflugur í
návígjum. Þetta tvær breytingar
gengu eftir.“
Hann hrósaði svo öllu liðinu
fyrir viðsnúninginn í seinni hálf-
leik. „Allt liðið sýndi annað og
betra viðhorf í seinni hálfleik og
það skipti mestu. Svo erum við
með leikmann eins og Gylfa sem
skoraði tvö frábær mörk. Það er
alltaf hægt að vinna leiki með
slíka leikmenn.“
Ísland komst mjög vel frá leikn-
um í gær, sérstaklega miðað við
slakan fyrri hálfleik. Það gerir
sigurinn enn sætari fyrir vikið.
Ísland er nú í lykilstöðu í riðlin-
um og með þessu áframhaldi eru
spennandi tímar í vændum fyrir
íslenska knattspyrnuáhugamenn.
Galdramaðurinn Gylfi
Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Íslands er hann skoraði bæði mörkin í 2-1 útisigri
í Slóveníu í gær. Með sigrinum komst Ísland upp í annað sæti riðilsins.
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
var í hlutverki varamanns gegn
Slóveníu í gær en hann hafði
mikil áhrif á leikinn. Stuttu eftir
að hann kom inn á lagði hann
upp sigurmarkið fyrir Gylfa Þór
Sigurðsson.
Til stóð að Eiður kæmi fyrr inn
á en hann gerði, en jöfnunarmark
Gylfa breytti því. „Ég sagði nú
við Lars að við hefðum unnið
stærra hefði ég byrjað,“ sagði
Eiður í léttum dúr. „En það er oft
í svona leikjum að ef maður hitar
ekki vel upp getur maður staðið á
öndinni eftir tvær mínútur. Það
var gaman að koma inn og taka
þátt í sigurmarkinu.“
Eiður hefur spilað lengi með
landsliðinu og með mörgum
leikmönnum í gegnum tíðina. „Ég
vil kannski ekki vanmeta aðra
leikmenn sem við höfum átt en ég
tel að þessi hópur leikmanna sem
við eigum nú sé jafnasti hópur
sem við höfum átt. Við eigum
nánast heila kynslóð af hágæða
knattspyrnumönnum og erum
með nokkra menn sem geta gert
gæfumuninn,“ sagði Eiður.
„Ég vil ekki segja að þetta sé
besta lið sem Ísland hefur átt en
þetta getur klárlega orðið það,“
sagði Eiður Smári, sem lék sinn
sjötugasta landsleik í Ljubljana í
gærkvöldi. - esá
Getur orðið besta landslið Íslands
Það tók Eið Smára Guðjohnsen aðeins tvær mínútur að leggja upp mark.
Eiríkur Stefán Ásgeirsson
eirikur@frettabladid.is skrifar frá Ljubljana.
HM 2014
Í BRASILÍU
SPORT
8 - Hannes Þór Halldórsson markvörður: Steig vart feilspor og var bestur þegar mest á reyndi.
6 - Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður: Lenti í alls kyns vandræðum í leiknum en slapp fyrir horn.
7 - Ragnar Sigurðsson miðvörður: Góður. Er að festa sig betur í sessi með hverjum landsleiknum.
5 - Sölvi Geir Ottesen miðvörður: Það sást greinilega að Sölvi Geir er ekki í góðri leikæfingu.
6 - Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður: Tók stundum óþarfa sénsa miðað við mann í hans stöðu en
komst vel frá þessu.
6 - Birkir Bjarnason, hægri kantur: Gerði minna en oft áður en margt mikilvægt, eins og að fiska
aukaspyrnuna í fyrra markinu.
7 - Aron Einar Gunnarsson tengiliður: Gerði margt gott í leiknum og stóð sig mjög vel.
7 - Emil Hallfreðsson tengiliður: Kaflaskipt. Margt gott en tók stundum nokkrar slæmar ákvarðanir.
9 - Gylfi Þór Sigurðsson, vinstri kantur: Tvö frábær mörk, sérstaklega aukaspyrnumarkið. Það var í
heimsklassa.
6 - Kolbeinn Sigþórsson framherji: Týndur í fyrri hálfleik og klikkaði á dauðafæri í síðari.
5 - Alfreð Finnbogason framherji: Var ekkert verri en aðrir í fyrri hálfleik. Það þurfti breytingu og
honum var fórnað.
7 - Jóhann Berg Guðmundsson, varamaður fyrir Alfreð á 46. mín.: Kom inn með ógnun af kantinum.
Varðist líka vel.
- Eiður Smári Guðjohnsen varamaður fyrir Emil á 76. mín.: Spilaði ekki nóg til að fá einkunn en var
frábær. Lagði upp sigurmarkið.
- Helgi Valur Daníelsson varamaður fyrir Kolbein á 90. +3 mín.: Spilaði ekki nóg.
Frammistaða íslensku strákanna í gær ÚRSLIT
UNDANKEPPNI HM 2014
SLLÓVENA - ÍSLAND 1-2
Mörk: 1-0 Milivoje Novakovic (34.), 1-1 Gylfi Þór
Sigurðsson (55.), 1-2 Gylfi Þór (78.)
Tölfræðin í leiknum: Skot (á mark): 15-6 (6-3),
Varin skot: Handanovic 1 - Hannes 5, Horn: 11-2,
Aukaspyrnur fengnar: 14-13, Rangstöður: 1-0
Lið Íslands: Hannes Þór Halldórsson - Birkir Már
Sævarsson, Ragnar Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen,
Ari Freyr Skúlason - Birkir Bjarnason, Aron Einar
Gunnarsson, Emil Hallfreðsson (76., Eiður Smári
Guðjohnson), Gylfi Þór Sigurðsson - Kolbeinn
Sigþórsson (90., Helgi Valur Daníelsson ), Alfreð
Finnbogason (46., Jóhann Berg Guðmundsson).
NOREGUR ALBANÍA 0-1
STAÐAN Í E-RIÐLINUM
Sviss 4 3 1 0 7-1 10
Ísland 5 3 0 2 6-5 9
Albanía 5 3 0 2 6-5 9
Noregur 5 2 1 2 6-6 7
Kýpur 4 1 0 3 4-8 3
Slóvenía 5 1 0 4 4-8 3