Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 26
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 26
Ragna Fossberg tekur á móti blaðamanni í her-berginu sínu í Efsta-leitinu. Sminkherberg-ið á Ríkissjónvarpinu er rúmgott og heimilislegt
með eigin kaffivél og sófa svo eitt-
hvað sé nefnt. Þarna inni ræður
Ragna ríkjum. Allir þeir sem eiga
erindi í útsendingu koma við í stóln-
um hjá Rögnu fyrst og þannig hefur
það verið síðan árið 1971 þegar
Ragna varð fastráðin hjá sjónvarp-
inu. Þangað kom hún beint frá Kaup-
mannahöfn þar sem Ragna hafði
verið að vinna á hárgreiðslustofu í
nokkra mánuði.
„Ég man ekki eftir því að hafa
ætlað að verða eitthvað sérstakt
þegar ég var lítil. Það var ekki svo
mikið í boði, annaðhvort fórstu í
Iðnskólann eða menntaskóla. Ég
hef alltaf verið betri í höndunum en
á bókina svo þess vegna varð hár-
greiðsla fyrir valinu,“ segir Ragna
en henni var svo kennt að farða upp
á Rúv af Auðbjörgu Ögmundsdóttur,
fyrstu sminku sjónvarpsins.
„Mér var hálfpartinn ýtt út í
þennan bransa. Byrjaði á því að
greiða þulunum þegar þess þurfti og
svo hvött til að sækja um þegar það
losnaði staða. Ég kunni ekkert að
mála þegar ég byrjaði og man hvað
ég var stressuð og hversu langan
tíma það tók að setja „eyeliner“ í
fyrsta sinn.“
Sérstök fjölskylda
Ragna er alin upp í Hlíðunum og bjó
þar til 22 ára aldurs. Hún lýsir fjöl-
skyldumunstri sínu sem sérstöku en
Ragna er alin upp á heimili ömmu
sinnar ásamt einstæðri móður sinni
og eldri bróður.
„Ég er ættleidd af ömmu minni þó
að mamma byggi með okkur. Það
hefur alltaf verið mjög gott sam-
band milli okkar mæðgnanna en hún
lést 92 ára síðastliðið sumar.“ segir
Ragna sem hefur hins vegar aldrei
þekkt föður sinn.
„Það er svo merkileg saga
með bróður minn, Cyril Edward.
Foreldrar hans unnu hjá breska
sendiráðinu en þurftu að flýja land í
stríðinu og það má eiginlega segja að
hann hafi verið skilinn eftir á tröpp-
unum heima sjö mánaða gamall.
Þetta var áður en ég fæddist en við
höfum talað opinskátt um þetta í
fjölskyldunni alla tíð. Bróðir minn
býr enn þann dag í dag á Íslandi,
orðinn algjör Ísfirðingur.“
Nafnið Fossberg er komið frá afa
hennar, Gunnlaugi Fossberg, sem
tók það upp er hann nam vélafræði
í Kaupmannahöfn. Ragna er skírð
í höfuðið á móðursystur sinni sem
var búsett ásamt fjölskyldu sinni á
Jamaíka en lést í fellibyl þar árið
1952 ásamt eiginmanni og dóttur.
„Hún rak sportklúbb á Jamaíka
ásamt manni sínum en það þótti
mjög sérstakt í þá daga. Fyrir tíu
árum fórum við mæðgur, ásamt
Guðrúnu vinkonu minni, í hálfgerða
pílagrímaferð til Jamaíka á hennar
slóðir. Það vildi svo skemmtilega
til að hótelið sem við gistum á var
í garðinum þar sem sportklúbbur
þeirra var.“
Rúv-par
Ragna er nú búsett í Breiðholtinu
ásamt sambýlismanni sínum Birni
Emilssyni í húsi sem hún byggði
ásamt fyrrum eiginmanninum
sínum. Þau eru svokallað Rúv-par
en Björn starfar sem framleiðandi
hjá sjónvarpinu og tóku þau saman
árið 1982. Spurð hvort það sé nokk-
uð erfitt að vinna með sambýlis-
manni sínum svarar Ragna neit-
andi. „Það hefur gengið vel að vinna
saman því það koma dagar sem við
hittumst ekki neitt þó að við séum
í sama húsinu. Við erum svo hvort
með sín áhugamálin, ég er á fullu
í hestamennskunni og á skíðum en
hann er á kafi í bílunum. Það gengur
vel upp.“
Ragna á einn strák, Ívar Örn
Helgason, úr fyrra hjónabandi og
tvö barnabörn en Björn á tvær stelp-
ur og barnabörn svo þau eru stór
fjölskylda þegar allir koma saman.
„Mér finnst mjög gaman að vera
amma og held að ég sé ekkert verri
en hver önnur í því hlutverki. Það
er allt annað en að vera mamma.
Maður getur dekrað þau og svo
skilað,“ segir Ragna glottandi en
gott samband er milli mæðginanna.
„Ívar hefur séð til þess að ég er lang-
tæknivæddust í vinahópnum mínum
og ég hringi fyrst í hann ef það er
eitthvað,“ segir Ragna og veifar
nýjum Iphone sem hún notar mikið.
Vill meiri samkeppni
Það má segja að Ragna sé ákveðinn
frumkvöðull í sminkufaginu. Hún
er ekki sérstaklega lærð sminka
en hefur farið nokkrum sinnum út
til Danmerkur þar sem hún hefur
sótt námskeið á vegum danska
ríkis sjónvarpsins, meðal annars í
hárkollugerð og gervum. Í smink-
herberginu upp í Efstaleiti hanga
einmitt tugir hárkollna sem allar
eru úr smiðju Rögnu.
„Ég set starfsreynslu ofar námi í
þessu fagi. Reynslan sem þú sank-
ar að þér í bransanum er ómetan-
leg. Svo er það líka þannig að ann-
aðhvort á þetta við þig eða ekki.
Maður getur verið sprenglærður en
kann svo ekkert að fara með það.“
Ragna hefur unnið fimm Eddu-
verðlaun og verið tilnefnd til sex
fyrir bæði Áramótaskaupið, Spaug-
stofuna og bíómyndir. Hún gerir þó
lítið úr yfirburðum sínum í faginu
og viðurkennir að hún hefði gjarna
viljað hafa meiri samkeppni í þess-
um geira.
Vinnur best ein
Ragna er með yfir 30 bíómynd-
ir á ferilskránni, bæði innlendar
og erlendar. Ragna hefur unnið
við þær erlendu bíómyndir sem
hafa verið teknar upp hér á landi,
eins og síðasta sumar er hún vann
við gerð Noah eftir leikstjórann
Darren Aronofsky.
„Það var mjög skemmtilegt þó
að ég taki samt íslenskar bíómynd-
ir fram yfir útlenskar. Það er allt
annað að eiga við Hollywood-leik-
ara en íslenska. Miklu heimilis-
legra og eðlilegra hér,“ segir Ragna
brosandi en hún viðurkennir einnig
að hún vinni best ein.
„Mér finnst best að vinna ein
því þá get ég ekki kennt neinum
öðrum um ef það verða mistök.
Þegar maður er að vinna í bíó-
mynd verður maður einn hlekk-
ur í kvikmyndakeðju sem þarf að
halda gangandi. Ég er samt ekki
fullkomnunarsinni og vil frekar
meina að ég sé hæfilega kærulaus
þegar allt kemur til alls.“
Fagmaðurinn Baltasar
Djúpið var síðasta bíómynd Rögnu
en hún vann einmitt sína fimmtu
Eddu fyrir hana á nýafstaðinni
Edduhátíð. Undanfarið hefur
Ragna unnið mikið með Baltasar
Kormáki en þegar hann berst í tal
byrjar Ragna ósjálfrátt að brosa.
„Við Baltasar erum miklir vinir
enda eigum við sama afmælisdag.
Ég hafði nokkrum sinnum unnið
með honum er hann var að leika
en Hafið var fyrsta bíómynd sem
ég gerði sem hann leikstýrði. Það
er frábært að vinna með honum.
Hann er fagmaður fram í fingur-
góma, fókuseraður og man allt sem
hann segir,“ segir Ragna en ef allt
gengur eftir verður þeirra næsta
samstarf í sumar er Baltasar tekur
upp Hollywood-myndina Everest
hér á landi.
Rögnu finnst gaman að geta tekið
að sér bíómyndir samhliða starfi
sínu hjá sjónvarpinu og líkir því við
sjómann sem fer á vertíð. „Maður
dettur út úr samfélaginu í nokkra
mánuði. 15 tíma dagar og töku-
liðið verður fjölskyldan manns. Ég
er mjög þakklát stjórnendum Rúv
fyrir að leyfa mér að fara í önnur
verkefni inn á milli.“
Hvorki femínisti né rauðsokka
Í aðdraganda Edduhátíðarinnar í
ár var rýrt hlutfall kvenna í kvik-
myndageiranum í umræðunni og
mörgum fannst nóg um hversu fáar
konur voru tilnefndar. Ragna var
vör við þá umræðu en gefur lítið
út á hana. „Við konur erum okkur
sjálfum verstar. Ég er orðin þreytt
á þessu kvennakjaftæði, við þurf-
um að hætta að kvarta og kveina og
framkvæma í staðinn. Það er eins
og við séum búnar að ákveða að við
getum ekkert áður en við prufum
það,“ segir Ragna ákveðin og bætir
við að hún sé hvorki femínisti né
rauðsokka. „Ég er líka enginn póli-
tíkus né hef ég áhuga á stjórnmál-
um. Er komin með leið á því eins
og það leggur sig eftir síðustu ár.“
Hestamennska og skíði eru
áhugamál Rögnu þegar hún er ekki
í vinnunni, en hún fer til útlanda
einu sinni á ári á skíði með vinum
sínum. Ragna hefur einnig fallið
fyrir hestamennskunni á seinni
árum en hún á merina Mónu.
„Ég reyni að fara á bak tvisvar
til þrisvar. Þar get ég kúplað mig
út, það má eiginlega segja að það
sé mín hugleiðsla,“ segir Ragna
og er ekki í vafa hvað tekur við
þegar starfsferillinn er á enda
eftir nokkur ár. „Þá fer ég bara á
bak og verð þar.“
Álfrún
Pálsdóttir
alfrun@frettabladid.is
Orðin þreytt á kvennakjaftæðinu
Ragna Fossberg er einn elsti starfsmaður RÚV og ein af þeim sem hafa rutt brautina fyrir sminkur landsins. Á ferilskránni
eru 5 Eddur og 30 bíómyndir en Rögnu var hálfpartinn ýtt út í starfið á sínum tíma. Hún gefur lítið fyrir lítinn hlut kvenna í
kvikmyndabransanum og segir að konur verði að hætta að væla og byrja að framkvæma.
STARFSREYNSLAN ÓMETANLEG Ragna Fossberg er menntuð hárgreiðslukona en hún segir starfsreynslu vega mikið í faginu. „Maður
getur verið sprenglærður í faginu en kann svo ekkert að fara með það.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
NÁNAR MÆÐGUR Mæðgurnar saman í pílagrímsför til Jamaíka þar
sem þær heimsóttu slóðir móðursystur og nöfnu Rögnu sem lést þar
í fellibyl árið 1952. Móðir Rögnu lést í fyrra, 92 ára gömul.
GÓÐ GERVI
Ragna sá
um gervin
og sminkið
í mynd
leikstjórans
Hal Hartley,
Monsters.
Eins og sjá
má voru mörg
þeirra frekar
ófrýnileg.
MIKLIR VINIR
Ragna og Baltasar
Kormákur eru góðir
vinir en hún hefur
oft unnið með
honum, bæði sem
leikstjóra og leikara.
Hér má sjá hann
ásamt leikkonunni
Julie Christie fyrir
myndina No Such
Thing eftir Hal
Hartley en Ragna sá
um sminkið þar.