Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 134
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 98
„Ég hef verið að gera
þetta svo mikið undan-
farið að ég hef eigin-
lega misst sjónar á til-
ganginum. Meira að
segja ég þarf að taka
pásu á sjálfum mér og
get ímyndað mér að
áhorfendur þurfi þess
líka.“
LEIKARINN RYAN GOSLING
SEGIST ÆTLA Í SMÁ FRÍ FRÁ
LEIKNUM Í NÝJU VIÐTALI VIÐ
HUFFINGTON POST.
Tónskáld í Ástralíu
Tónskáldið Anna Þorvaldsdóttir, sem
hlaut tveggja milljóna styrk frá Kraumi
tónlistarsjóði á fimmtudag, gat ekki
verið viðstödd athöfnina þar sem
hún er stödd í Melbourne í Ástralíu.
og leggur drög að samstarfi með
tónlistarfólki þaðan. Fjölmörg önnur
verkefni eru í farvatninu hjá Önnu.
Hún er að semja verk fyrir bandaríska
tónlistarhópinn ICE Ensemble sem
verður frumflutt í New
York í desember. Einnig
er hún að ljúka við
tvö önnur tónverk.
Styrkurinn frá Kraumi
verður svo notaður til
að hljóðrita tónverk fyrir
útgáfu næstu plötu
Önnu og til að kynna
hana erlendis. - fb
Vilja sjá Ladda á æfingu
Mikill spenningur er fyrir einleiknum
Laddi lengir lífið sem þeir Karl Ágúst
Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson
standa að í samvinnu við Ladda.
Miðar á allar þær sýningar sem voru
áætlaðar í apríl seldust upp á hálftíma.
Á fésbókarsíðu Ladda var fólk beðið
um að gefa sig fram ef það hefði
áhuga á að sitja rennsli á sýningunni
svo grínistinn gæti æft sig með fólki
í salnum. Viðbrögðin hafa
verið framar vonum því
vel á annað þúsund
manns hafa óskað
eftir því að komast á
æfinguna. - fb
„Það er mjög gaman að fá spreyta
sig á leikritaskrifum enda alveg
glænýtt form fyrir mig,“ segir rit-
höfundurinn Sólveig Jónsdóttir,
sem frumsýnir sitt fyrsta leikrit í
Skotlandi í sumar.
Sólveig gaf út sína fyrstu skáld-
sögu, Kortér, í fyrravor en leikritið
skrifaði hún fyrir skoskan leikhóp.
Leikstjórinn er vinur hennar frá
því hún dvaldi við nám í Skotlandi
fyrir nokkrum árum síðan. „Hann
hafði samband við mig í haust og
bað mig um að skrifa leikrit fyrir
þau en leikhópurinn setti upp
Djúpið eftir Jón Atla Jónasson í
fyrra. Við skiptumst svo á skoðun-
um um efnistökin en vorum nokk-
urn veginn á sömu blaðsíðunni.“
Leikritið nefnist The Sea
Between Us og er dramatískt verk
sem gerist í smábæ fyrir vestan
þar sem kynslóðir bæjarins tak-
ast á. „Spurningin, sem er velt
upp í leikritinu, er hvort halda
eigi tryggð við heimahagana eða
flytjast brott til að elta draumana.
Þetta er mikil samtöl og það var
smá áskorun að búa til skemmti-
legt flæði í þeim,“ segir Sólveig
sem getur vel hugsað sér að skrifa
leikrit aftur, kannski á íslensku
næst. „Þetta var mjög gaman og
ég mundi gjarnan vilja fara út á
frumsýninguna í júní enda hef ég
sterkar taugar til Skotlands.“
Sólveig hefur í nógu að snú-
ast þessa dagana. Samhliða fullu
starfi sínu sem kynningarfulltrúi
UNICEF er hún að skrifa sína
aðra bók og fylgja eftir þýðingu
Kortérs í Þýskalandi. „Rétturinn
var seldur til Þýskalands í desem-
ber og ég hef verið í sambandi við
þýðandann en hún var meðal ann-
ars í vandræðum með að yfirfæra
suma af íslensku lókal bröndurun-
um sem eru í bókinni. Það er mjög
gaman að fylgjast með þessu og
spennandi hvernig viðtökurnar
verða. Ég held að planið sé að hún
komi út þar í byrjun árs 2014.“
Önnur bók Sólveigar verður
ekkert lík Kortéri, sem er flokkuð
sem skvísubók fyrir fullorðna, en
hún verður söguleg skáldsaga og á
að koma út næsta vor. „Það fer mér
best að gefa út bækur á vorin held
ég, sá árstími er góður fyrir mig.“
alfrun@frettabladid.is
Fyrsta leikritið
frumsýnt í Skotlandi
Það er nóg um að vera hjá Sólveigu Jónsdóttur. Hún hefur nýlokið við að skrifa
sitt fyrsta leikverk, The Sea Between Us, fyrir skoskan leikhóp, en leikritið
verður frumsýnt þar í landi í júní. Einnig er hún að keppast við að skrifa sína
aðra skáldsögu og fylgjast með útgáfu Kortérs í Þýskalandi.
FYRSTA LEIKRITIÐ Sólveig Jónsdóttir skrifaði sitt fyrsta leikrit fyrir skoskan
leikhóp, en verkið verður sett á fjalirnar í Skotlandi í júní. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3
Opið laugardag
10–15
- Karríkókós sósa
- Sinneps og
Graslaukssósa
- Humarsósa
- Toscanasósa
- Hunangs og
Sinnepssósa
Stór Humar
ÞorskgúllasRauðsprettuflök
m/roði
Þorskflök m/roði
Fiskfars . . . . . . . . . . . . . 590 kr.kg
Þorskbitar
roðlausir beinlausir . . .1190 kr.kg
Rauðsprettuflök
roðlaus beinlaus . . . . . .1190 kr.kg
Þorskhnakkar . . . .1190 kr.kg
Skata . . . . . . . . . . . . . . . . 790 kr.kg
Í þessari fallegu og rómantísku
vorferð sem hefst um hvítasunnuna
er dvalið á undurfögrum stöðum
í Austurríki og Þýskalandi og ferðast,
fræðst og rölt um í mestu makindum.
Fararstjóri: Ása María Valdimarsdóttir.
Um ferðina:
LÁGMÚLI 4 108 RVK | S. 585 4000 | URVALUTSYN.IS
Vorferð til Mið-Evrópu
á mann miðað við 2 fullorðna í tvíbýli.
Gist er í Tírol frá 18.-21.maí,
við Bodenvatn 21.-24.maí og í
München 24.-26.maí.
228.300 KR.-
Mjög mikið innifalið
„Ég er bara í skýjunum með þetta, frábært að fá
svona tækifæri á silfurfati,“ segir leikarinn Ívar
Örn Sverrisson en hann skrifaði undir samning við
norska Þjóðleikhúsið í gær.
Ívar mun taka þátt í uppsetningu leikhússins á
barnaleikritinu Ronju ræningjadóttur sem verður
frumsýnt í haust. Leikstjórinn er Cecilie Mosli en
Ívar hefur áður unnið með henni. „Þetta kom nokk-
uð fljótt upp en það var haft samband við mig í síð-
ustu viku og ég spurður hvort ég væri laus næsta
haust. Svo var mér bara boðið hlutverk án þess að
fara í prufur eða neitt sem var góð tilbreyting,“
segir Ívar, sem hefur farið í ófáar prufurnar síðan
hann flutti út til Noregs fyrir tæpum þremur árum.
„Mér datt ekki einu sinni í hug að sækja um hjá
Þjóðleikhúsinu þegar ég flutti hingað fyrst svo það
að fá samning fyrirhafnarlaust er alger draumur.“
Uppsetningin á að vera stór og mikil með bæði
söng og sjónrænum fimleikaatriðum. Ívar grunar
að vegna bakgrunns síns í fýsísku leikhúsi og dansi
hafi hann fengið hlutverkið en hann veit ekki enn
nákvæmlega hvaða hlutverk hann fær. Spurður
hvort hann sé búinn að ná góðum tökum á syngjandi
norskunni svarar Ívar hlæjandi. „Ég vona að ég sé
farinn að hljóma allt í lagi, ég er allavega farinn að
fá hlutverk á norsku svo það boðar gott.“ - áp
Á samning hjá norska þjóðleikhúsinu
Ívar Örn leikur í uppsetningu norska Þjóðleikhússins á Ronju ræningjadóttur.
Í SKÝJUNUM Ívar Örn Sverrisson skrifaði undir samning við
norska þjóðleikhúsið í gær og tekur þátt í uppsetningu þess á
Ronju Ræningjadóttur næsta haust.
KR-ingar þvo bíla
Knattspyrnulið KR í karlaknatt-
spyrnunni er í apríl á leið til Spánar í
æfingaferð. Til að létta undir með fé-
laginu hafa liðsmenn að undanförnu
staðið fyrir fjáröflun vegna ferðar-
innar sem segja má að nái hámarki í
dag. Þá mun KR-liðið nefnilega sölsa
undir sig bílaþvottastöðina Löður við
Fiskislóð og þvo bíla áhugasamra
gegn greiðslu. Ekki fer miklum
sögum af þvottahæfileikum
Bjarna Guðjónssonar,
Kjartans Henry Finn-
bogasonar og félaga í
KR en séu þér í líkingu
við knattspyrnuhæfi-
leikana geta bíleig-
endur í Vesturbænum
átt von á góðu.
BESTU BROTIN
ÚR ÞÁTTUM
BYLGJUNNAR
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag