Fréttablaðið - 23.03.2013, Blaðsíða 2
23. mars 2013 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
Vilhjálmur Óli Valsson berst við
krabbamein í vélinda og safnaði mestu
allra þátttakenda í Mottumars þetta árið–
1,2 milljónum. Það er drjúgur hluti þeirra
25 milljóna sem söfnuðust í heild.
Helgi Vilhjálmsson í Góu fékk ákúrur
frá Páli Bergþórssyni veðurfræðingi fyrir
að hafa notað frétt um hann og mynd
í auglýsingu til höfuðs ríkisstjórninni.
Helgi baðst afsökunar og viðurkenndi að
kannski væri eitthvað að auglýsingunni– eins og svo
mörgu.
Jónína Valgerður Örvar, fimmtán ára,
hefur kennt hestinum sínum að telja.
Hún lét þó ekki staðar numið þar heldur
kenndi hestinum, Skuggasveini, líka að
leggja saman. Hann stendur svo
sannarlega undir því að vera kallaður klár.
Katrín Benedikt er annar hand-
ritshöfunda Hollywood-myndar-
innar Olympus Has Fallen með
Gerald Butler sem var frumsýnd
vestra í gær. Íslendingar ættu að
búast við að heyra meira um Katrínu á
næstunni.
FIMM Í FRÉTTUM JÁTNINGAR, AFSAKANIR OG SAFNANIR
➜ Gunnar Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins,
gekkst við því fyrir dómi í vikunni að hafa reynt að bjarga eigin skinni
með því að leka upplýsingum um viðskipti Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar til DV. Hann kvaðst hafa verið undir svo miklu álagi að hann
hefði í raun verið nauðbeygður til að bregðast svona við.
ORMAGRYFJA MISNOTKUNAR
OPNAÐIST Í KJÖLFAR KÆRU 4
FJÖLGA ÞARF LÖGREGLU-
MÖNNUM UM 236 6
UM 350 SKRÁÐIR
FLUGREKENDUR Á ÍSLANDI 8
„Þegar ég kom upp í skóla
þá sat hann bara stjarfur á
bekk, en þegar hann sá mig
brotnaði hann algjörlega
saman.“ 10
Ólöf Önundardóttir, móðir níu ára drengs
GRÍMUKLÆTT
FÓLK Á GÖTUNUM 12
NÁTTÚRA Þótt margir eigi eflaust
bágt með að trúa því upp á íslensku
sauðkindina bendir flest til að hún
bæti upp hina hefðbundnu gras-
tuggu með því að sækja nokkuð í
að éta egg úr hreiðrum fugla. Líf-
fræðingur segir heildstæðar rann-
sóknir skorta en margt bendi til
þess að slíkt gæti verið nokkuð
algengt.
Sauðkindin hefur um árabil verið
talin meðal áhrifavalda í gróður-
eyðingu á hálendinu og ágangi
stofnsins verið kennt um skemmdir
á trjáplöntum, en afrán úr hreiðr-
um hefur ekki verið rannsakað til
hlítar hér á landi þó að skrá settar
heimildir séu til um slíkt, í það
minnsta rúma tvo áratugi aftur í
tímann.
Borgný Katrínardóttir líf-
fræðingur skrifaði meistara-
verkefni á síðasta ári þar sem
umfjöllunarefnið var vistfræði
spóa, en á meðan á rannsókninni
stóð voru settar upp hreyfi næmar
myndavélar við spóahreiður. Náð-
ust þar á mynd þrettán afráns-
tilfelli, þar sem einu eða fleiri eggj-
um var rænt, og reyndust kindur
að verki í sjö af þessum þrettán til-
fellum. Tófan var sek í einu tilviki,
kjói í þremur og hestar í tveimur.
Spurð hvort af þessu megi ráða
að kindur séu skæðar í afráni á
hreiðrum segir Borgný að lítið sé
vitað um málið en áhugavert væri
að rannsaka það nánar.
„Það kom mér á óvart að kind-
ur hefðu verið að verki í svo mörg-
um tilfellum og þetta gæti verið
algengara en maður hefði haldið.
Það væri fróðlegt að skoða þetta í
stærra samhengi,“ segir Borgný.
„Það var reyndar nokkuð mikið
af kindum á rannsóknarsvæðunum
mínum og því ef til vill meiri líkur
á að þær rækjust á hreiður. En ef
svo ber undir virðast þær stundum
leggja sér egg til munns. Egg eru
auðvitað fyrirtaksfæða!“
Hún bætir því við að afrán kinda
úr fuglahreiðrum sé einnig þekkt
erlendis, þar sem meðal annars
hafi komið í ljós að kindur á Hjalt-
landseyjum stunda umfangsmikið
afrán í kríuhreiðrum og éta þaðan
unga. Er það talið tengjast stein-
efnaskorti.
Þrátt fyrir að fyrir liggi að kind-
ur sæki í að éta egg úr hreiðrum er
alls óljóst hvort þær hafi mælanleg
áhrif á fuglastofna. Borgný segir
erfitt að fullyrða nokkuð í þeim
efnum án frekari rannsókna.
„En miðað við mínar niður stöður
gætu áhrif á varp verið umtalsverð
á svæðum þar sem mikið er um
sauðfé.“ thorgils@frettabladid.is
FRÉTTIR 2➜13
SKOÐUN 16➜22
HELGIN 24➜66
SPORT 90➜92
MENNING 74➜88
AÐEINS Í DAG!
kíktu inn á www.pfaff.is
Pfaff // Grensásvegi 13 // Sími 414 0400
Opið í dag kl. 11-16.
50%
50% KYNNINGARAFSLÁTTUR
Thera Pearl vörur
FULLT VERÐ 1.695,-
Í DAG 850,-
AUGNGRÍMA
TheraPearl eru hita- og kælivörur hannaðar af lækni og
eru lyfjalaus leið til að losna við verki og bólgur.
VANDI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS 16
Þorsteinn Pálsson um stjórnmál.
ÞAÐ ER AÐEINS EIN LEIÐ FÆR 18
Einar K. Guðfi nnsson um efnahagsmál.
STÖÐUGLEIKI OG AUKIN HAGSÆLD 22
Ragna Árnadóttir og Katrín Olga Jóhannesdóttir um
efnahagsmál.
VONANDI NÓGU SJÓAÐUR 74
Daði Guðbjörnsson sýnir á Mokka.
SVARTHVÍTA HETJAN MÍN 80
Vortískan er svört og hvít.
ALÞINGISBANDIÐ GÆTI SLEGIÐ Í GEGN 84
Hvaða alþingismenn gætu haldið uppi stuðinu?
EISTNESKA LEIÐIN Í TÍSKU 88
Tinna tæklar Eurovision.
FRAMTALSSKILIN BETRI
EN UNDANFARIN ÁR 34
Skattlagning einstaklinga á Íslandi.
AF HEFJA SIG UPP YFIR
VANVIRÐINGU 36
Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnar-
formaður Bjartrar framtíðar, vill
breyta stjórnmálamenningunni.
KAÞÓLSKIR GEGN
KIRKJU PÁFANS 40
Kaþólska kirkjan hefur átt í vök að
verjast vegna kynferðisbrotamála og
einstrengingslegrar afstöðu í ýmsum
málum.
BAKTJALDAMAKK OG
SPILLING 58
Borgen, Boss og fl eiri þættir halda
sjónvarpsáhorfendum límdum við
skjáinn.
DÖGURÐUR UM
HÁTÍÐARHELGI 60
Óhefðbundnir réttir í páskabrönsinn. Kindur staðnar að
verki við spóaeggjaát
Íslensku sauðkindinni hefur verið kennt um ýmislegt í gegnum tíðina en nú hafa
náðst myndir af kindum að éta spóaegg úr hreiðrum. Líffræðingur segir ekki
hægt að fullyrða um hversu stórtæk kindin er en það megi rannsaka nánar.
GRIPIN GLÓÐVOLG Þetta lamb náðist á mynd að gæða sér á eggjum úr spóahreiðri. Þetta er þekkt fyrirbæri en hér á landi
hefur ekki verið rannsakað til hlítar hve stórtæk sauðkindin er í eggjaáti. MYNDIR/BORGNÝ KATRÍNARDÓTTIR
Kristlaug Pálsdóttir, fuglaáhugakona og bóndi í Engidal í Suður-Þingeyjar-
sýslu, hefur orðið vitni að því þegar kindur sækja í fuglahreiður og skrifaði
meðal annars um það grein í tímaritið Blika árið 1992.
„Ég var hér um árið að reka örfáar kindur, kannski um 50 í hóp, á beit. Þá
flýgur upp heiðlóa, greinilega af hreiðri, og fremsta kindin hleypur af stað
og vissi nákvæmlega hvað þarna væri að finna. Svo röðuðu kindurnar sér
þarna í kringum hreiðrið og voru kámugar upp á nef við að éta eggin!“
Kristlaug segir þetta hafa komið sér mjög á óvart í fyrstu, en síðan
hafi hún oft orðið vitni að slíku. Til dæmis horfði hún upp á kind gera
dauðaleit að hreiðri sem grátittlingur hafði flogið af.
„Svo hafa fleiri fuglaáhugamenn sem ég þekki orðið vitni að því að
kindur borða unga. Líka hefur orðið vart við að hagamýs éta egg ef þær
finna þau.“
Kristlaug segist hins vegar ekki telja að fuglastofnum standi mikil ógn
af ágangi sauðkindarinnar. „Nei, þetta eru sennilega bara afföll eins og
gerast í náttúrunni, og svo er ég viss um að það eru ekki allar kindur sem
gera þetta.“
Kindurnar „kámugar upp á nef“
En ef svo
ber undir
virðast þær
stundum
leggja sér egg
til munns.
Egg eru auð-
vitað fyrirtaksfæða!
Borgný Katrínardóttir
liffræðingur
GALDRAMAÐURINN GYLFI 90
Gylfi Þór Sigurðsson var hetja Íslands þegar hann skoraði tvö
stórglæsileg mörk í 2-1 sigri liðsins í Slóveníu í gær.
YNGSTUR YFIR 30 STIGIN 92
Martin Hermannsson endurskrifaði metabókina í körfunni.