Fréttablaðið - 28.03.2013, Blaðsíða 65
FIMMTUDAGUR 28. mars 2013 | SPORT | 45
Útgefandi
Vátryggingafélag Íslands hf., kennitala 690689-2009, Ármúla 3, 108 Reykjavík.
Vátryggingafélag Íslands hf. („VÍS“) birti lýsingu þann 27. mars 2013, í tengslum við almennt útboð á hlutum félagsins og
umsókn stjórnar félagsins um að hlutir í VÍS verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Lýsingin er
dagsett 27. mars 2013, gefin út á íslensku og birt á vefsíðu félagsins, www.vis.is/fjarfestar.
Lýsinguna má nálgast rafrænt á vefsíðu félagsins næstu 12 mánuði. Lýsinguna má einnig nálgast á vefsíðu umsjónaraðila,
www.arionbanki.is. Frá 3. apríl 2013 má jafnframt nálgast innbundin eintök hjá VÍS í Ármúla 3, 108 Reykjavík og hjá Arion
banka hf. í Borgartúni 19, 105 Reykjavík.
Heildarfjöldi útgefinna hluta í Vátryggingafélagi Íslands hf. nemur 2.502.757.040, en þar af á félagið 0,01% eigin hluta. Allir
útgefnir hlutir í félaginu eru í sama flokki og jafn réttháir. Hlutir félagsins eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar
Íslands hf. og er hver hlutur 1 króna að nafnverði. Auðkenni hlutanna hjá Verðbréfaskráningu er VIS og ISIN númer þeirra er
IS0000007078. Stjórn útgefanda hefur óskað eftir því að VÍS verði auðkenni hlutabréfanna í kerfum NASDAQ OMX
Iceland hf.
Almennt útboð 12.–16. apríl 2013
Klakki ehf. hyggst selja þegar útgefna hluti í VÍS með almennu útboði sem Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingarbankasviðs
Arion banka hf. hefur umsjón með. Stærð útboðsins nemur 60% af útgefnum hlutum, nánar tiltekið 1.501.654.224 hlutum
(sem heimilt er að stækka í allt að 70% eða 1.751.929.928 hluti). Á vefsíðu umsjónaraðila, www.arionbanki.is, verður tekið
við áskriftum frá og með föstudeginum 12. apríl 2013 klukkan 10.00 til og með þriðjudeginum 16. apríl 2013 klukkan 16.00.
Lágmarksáskrift er að andvirði 100 þúsund krónur. Fjárfestum er boðið upp á þrjár áskriftarleiðir, eða svokallaðar tilboðs-
bækur. Ákvörðun á verði þeirra hluta sem seldir verða í útboðinu verður ekki með sama hætti í öllum tilboðsbókum
útboðsins. Í tilboðsbókum A og B óskar seljandi eftir áskriftum á verðbilinu 6,75–7,95 krónur á hlut og mun eftir lok
áskriftartímabils ákvarða eitt endanlegt útboðsgengi til allra kaupenda sem þátt tóku í tilboðsbókum A og B, en það mun
verða á framangreindu verðbili. Í tilboðsbók C þurfa fjárfestar að tilgreina kaupverð í 2,475% eignarhlut og er tekið við
áskriftum sem eru að lágmarki á verðinu 6,75 krónur á hlut, en öllum hlutum sem seldir verða í tilboðsbók C verður
úthlutað á því gengi sem viðkomandi fjárfestir býður. Í tilboðsbók A er gert ráð fyrir að bjóða samtals 10% af útgefnum
hlutum, í tilboðsbók B 30,1% og í tilboðsbók C 9,9%, auk þess sem seljandi mun ráðstafa 10% (stækkanlegt í allt að 20%)
í eina eða fleiri af tilboðsbókunum eftir því sem verð og/eða magn eftirspurnar gefur tilefni til að hans mati.
Markmið Klakka ehf. með útboðinu er að selja hlutabréfin á ásættanlegu verði, svo og að útboðið geri Vátryggingafélagi
Íslands hf. kleift að uppfylla lágmarksskilyrði um dreifingu hlutafjár sem NASDAQ OMX Iceland hf. gerir til félaga sem fá
hlutabréf tekin til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Stefnt er að því að útboðið marki
þannig grunninn að dreifðu eignarhaldi á VÍS og er þá bæði horft til þess að almenningur og fagfjárfestar eignist hlut í
félaginu. Stjórn seljanda mun falla frá útboðinu ef ekki fæst áskrift í útboðinu fyrir að lágmarki 60% af útgefnum hlutum
í VÍS eða ef NASDAQ OMX Iceland hf. samþykkir ekki fyrir lok maí 2013 umsókn um að hlutir í VÍS verði teknir til viðskipta.
Stjórn seljanda áskilur sér jafnframt rétt til að falla frá útboðinu hvenær sem er fram að tilkynningu NASDAQ OMX Iceland
hf. um að hlutir í VÍS verði teknir til viðskipta ef upp koma einhverjir þeir áhrifaþættir sem stjórn seljandans telur gefa
tilefni til þess, svo sem sérlega neikvæð þróun á efnahagsumhverfi og/eða verðbréfamarkaði á Íslandi.
Niðurstöður útboðs verða birtar almenningi opinberlega á Evrópska efnahagssvæðinu í síðasta lagi miðvikudaginn
17. apríl 2013. Útboðið er með fyrirvara um samþykki á fyrirliggjandi umsókn um að hlutir í Vátryggingafélagi Íslands hf.
verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Slíkt samþykki er tilkynnt opinberlega af NASDAQ OMX
Iceland hf. og sömuleiðis þá hvenær fyrsti mögulegi viðskiptadagur verði með hlutina á hinum skipulega verð-
bréfamarkaði, en NASDAQ OMX Iceland hf. tilkynnir slíka dagsetningu með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara.
Nánari upplýsingar
Fyrirtækjaráðgjöf Fjárfestingabankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með almenna útboðinu og því ferli að fá hluti
félagsins tekna til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Nánari upplýsingar um félagið og skilmála almenna
útboðsins má finna í lýsingu VÍS.
Reykjavík, 28. mars 2013
Stjórn Vátryggingafélags Íslands hf.
BIRTING LÝSINGAR
VÁTRYGGINGAFÉLAGS ÍSLANDS HF.
HANDBOLTI Ísland mætir Slóveníu
í tveimur mikilvægum leikjum
í undankeppni EM 2014 í byrjun
næsta mánaðar. Ísland er með fullt
hús stiga eftir að hafa unnið Hvíta-
Rússland og Rúmeníu í fyrstu
tveimur leikjum sínum í riðlinum
en Slóvenía er í öðru sæti með þrjú
stig.
Tvö efstu liðin komast áfram á
EM en Slóvenar eru með sterkt lið
sem hafnaði til að mynda í fjórða
sæti á HM í handbolta á Spáni.
Ísland hefur endurheimt þrjá
leikmenn sem misstu af HM
vegna meiðsla. Þetta eru þeir
Alexander Petersson, Ingimundur
Ingimundar son og Rúnar Kárason.
Ísland er þó í talsverðu basli
með línumenn. Vignir Svavarsson
er með slitið krossband og ólíklegt
er að þeir Kári Kristján Kristjáns-
son og Róbert Gunnarsson muni ná
fyrri leiknum. Vonast er til að þeir
spili með Íslandi í síðari leiknum
sem fer fram hér heima.
Aron kallaði því á þá Atla
Ævar Ingólfsson og Jón Þorbjörn
Jóhannsson til að fylla í þeirra
skörð.
Arnór Gunnarsson og Hreið-
ar Levý Guðmundsson eru í hópi
þeirra leikmanna sem detta úr
hópnum nú en Ólafur Bjarki Ragn-
arsson, lykilmaður hjá þýska B-
deildarliðinu Emsdetten, kemur
inn í landsliðið á ný.
„Þetta eru tveir afar mikil vægir
leikir,“ sagði Aron við Frétta blaðið
í gær. „Útileikurinn verður sér-
staklega erfiður. En við förum í
hvern leik til að vinna og ætlum
að halda toppsæti riðilsins.“
Nánari umfjöllun um landsliðs-
hópinn má finna á Vísi. - esá
Alexander gefur kost á sér í landsliðið á ný
Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari gerði talsverðar breytingar á liðinu fyrir tvo leiki gegn Slóveníu.
MEÐ Á NÝ Alexander hefur verið lykil-
maður í liði Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLIKÖRFUBOLTI Birna Valgarðs dóttir,
leikmaður Keflavíkur, bætti
í gær stigametið í efstu deild
kvenna er hún skoraði 22 stig í
sigri Keflavíkur á Fjölni, 89-84,
í lokaumferð Dominos-deildar
kvenna.
Birna hefur nú skorað alls
5.006 stig á ferlinum en líklegt
er að þetta verði hennar síðasta
tímabil og leikurinn í gær hafi
verið hennar síðasti deildar leikur.
Fram undan er úrslitakeppnin en
stig í henni eru ekki talin með.
Gamla metið átti Anna María
Sveinsdóttir, sem lék einnig með
Keflavík, en það var 5.001 stig.
Birna er því annar leikmaðurinn
frá upphafi sem rýfur fimm þús-
und stiga múrinn.
Birna hafði hvílt í síðustu
tveimur leikjum Keflavíkur á
undan en spilaði með í kvöld eftir
ábendingu blaðamanns Frétta-
blaðsins, eins og fjallað var um
í gær. Hún bætti metið með því
að setja niður þriggja stiga skot
undir lok fyrri hálfleiks. - esá
Birna bætti
stigametið
5.006 STIG Birna Valgarðsdóttir er stiga-
hæsti leikmaður efstu deildar kvenna
frá upphafi. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÚRSLIT
DOMINO‘S-DEILD KVENNA
KR - SNÆFELL 68-75
KEFLAVÍK - FJÖLNIR 89-84
GRINDAVÍK - HAUKAR 109-55
NJARÐVÍK - VALUR 71-78
LOKASTAÐAN
Keflavík 28 23 5 2229-1948 46
Snæfell 28 21 7 2033-1756 42
KR 28 18 10 1943-1874 36
Valur 28 16 12 1929-1828 32
Haukar 28 13 15 1905-2002 26
Grindavík 28 9 19 1951-2080 18
Njarðvík 28 8 20 1932-2162 16
Fjölnir 28 4 24 1989-2261 8
ÚRSLITAKEPPNIN
KEFLAVÍK - VALUR
SNÆFELL - KR
Fyrstu leikir er miðvikudaginn 3. apríl kl. 19.15.
HANDBOLTI
Stefán áfram hjá Löwen
Stefán Rafn Sigurmannsson skrifaði í
gær undir nýjan eins árs samning við
þýska stórliðið Rhein-Neckar Löwen.
Hann kom til liðsins frá Haukum fyrr
í vetur og var verðlaunaður fyrir góða
frammistöðu með nýjum samningi.
ÍSHOKKÍ
SA Víkingur meistari
SA Víkingar frá Akureyri varð í gær
Íslandsmeistari í íshokkí í sextánda sinn
eftir sigur á Birninum, 4-0, í oddaleik
liðanna í lokaúrslitunum. Lars Foder
skoraði þrjú mörk fyrir norðanmenn en
ítarlega umfjöllun um leikinn má finna
á íþróttavef Vísis.
HANDBOLTI Aron Rafn Eðvarðs-
son er á leið til sænska liðsins
Guif, en hann hefur skrifað undir
þriggja ára samning við félagið.
Aron Rafn hefur varið mark
Hauka undanfarin ár og unnið
sér sæti í íslenska landsliðinu.
Hjá Guif eru fyrir þrír Íslend-
ingar. Kristján Andrésson þjálfar
liðið og bróðir hans, Haukur,
er fyrirliði þess. Línumaðurinn
Heimir Óli Heimisson, fyrrum
liðsfélagi Arons Rafns hjá Hauk-
um, er nú á sínu fyrsta tímabili
með Guif.
Aron Rafn klárar tímabilið
með Haukum áður en hann held-
ur út til Svíþjóðar. - esá
Aron Rafn
samdi við Guif