Fréttablaðið - 28.03.2013, Blaðsíða 36
FRÉTTABLAÐIÐ Lilja Ingvadóttir. Förðun og flottheit. Skref fyrir skref. Spjörunum úr og helgarmaturinn.
6 • LÍFIÐ 28. MARS 2013
M
anstu hvernig þér
leið daginn sem þú
ákvaðst að breyta
um lífsstíl og hvað
var það sem fékk þig
til gera það? Ég fékk einfaldlega
nóg af þessu megrunarbulli og
varð þreytt á ástandinu, þreytt á
að vera með stanslaust samvisku-
bit og svekkt út í sjálfa mig fyrir
að standa mig aldrei nógu vel í
mataræði og hreyfingu. Svo sá ég
gamalt myndband af mér þar sem
ég var dansandi á skóla árshátíð,
grönn og flott. Ég hugsaði bara
með mér, hvað varð um þessa
glöðu konu. Það fór um mig skrít-
in vellíðunartilfinning þar sem ég
vissi að nú myndi líf mitt breytast
til frambúðar. Ég lokaði einfald-
lega hurðinni að fortíðinni og við
það sama opnaðist ný hurð með
nýjum tækifærum.
Ég fékk upplýsingar um að Garð-
ar Sigvaldason í Sporthúsinu væri
mjög góður í lífsstílsbreytingum
og ég hafði samband við hann. Þá
varð bara ekki aftur snúið.
Ekki misst úr æfingu í fjögur ár
Hverjar voru helstu breytingarn-
ar sem þú gerðir á lífi þínu og voru
þær þér erfiðar? Mesta breyt-
ingin var að setja sjálfa mig í for-
gang og að skilja það að maður
þarf að rækta sjálfan sig og setja
sig í fyrsta sæti til að geta gefið af
sér til annarra. Að tíminn minn sé
jafn dýrmætur og annarra, og það
er í lagi að segja nei. Ég get verið
svo mikil já-manneskja, þannig
að þetta hefur reynst mér erfitt á
köflum. En ég er að læra að bera
meiri virðingu fyrir sjálfri mér.
Hefurðu haldið stífum takti
síðan eða hafa komið einhver bak-
slög? Ég hef haldið stífum takti og
fundið mjög gott jafnvægi. Ég hef
ekki misst úr æfingu í fjögur ár
og hef verið í þjálfun hjá Garðari
allan þann tíma. Persónulega hefur
það verið nauðsynlegt fyrir mig
að hafa einhvern sem heldur mér
við efnið og hristir upp í æfingun-
um og mataræðinu reglulega. Það
kemur í veg fyrir leiða. Svo er auð-
vitað bara frábært að vera í þess-
um skemmtilega félagsskap sem
ríkir í Sporthúsinu.
Margir fylgt fordæminu
Hver er heildarárangurinn frá
upphafi átaks og þar til í dag?
Ég er búin að missa 35 kíló, en
ég missti fyrstu 32 kílóin á fyrsta
árinu. Síðan þá hef ég verið að
móta líkamann, bæta á mig vöðva-
massa og unnið í því að ná fitu-
prósentunni niður úr rúmum 40%
niður í íþróttaform, sem er 12-
15%. En ég myndi segja að væri
búin að missa um það bil eitt þús-
und kíló af sálinni, sem er fyrir
mestu.
Hefur þessi lífsstílsbreyting
virkað hvetjandi á fólk í kringum
þig? Alveg rosalega, og ég er svo
ánægð með hvað þetta hefur verið
smitandi og hvað margir hafa fylgt
mér eftir í að breyta sínum lífsstíl
og sagt mér frá því. Ég verð alltaf
jafn glöð í hjartanu að fá að heyra
það að mín barátta geri það að
verkum að fólk fari loksins að trúa
á sjálft sig.
Hvað með afbrýðisemi – hefurðu
mætt henni á þessu ferðalagi? Því
miður er stutt í afbrýðisemi og
öfund hjá mörgum og ég hef aðeins
fengið að finna fyrir því. Ég hef
reynt að taka því ekki persónulega
því mér líður mjög vel og hver veit
það best nema ég sjálf.
Hver er helsti ávinningur þessa
breytta lífsstíls fyrir utan augljósa
útlitsbreytingu?
Andleg og líkamleg heilsa. Að
geta skoppað um eins og táningur í
frábæru formi og hafa enga verki í
líkamanum. Að vera ánægð í eigin
skinni og að hafa endurheimt trúna
á sjálfri mér. Mér finnst ég geta
sigrað heiminn og brosi alla daga.
Vildi komast í toppform
Þú ert að fara að keppa í Fitness-
kvenna, 35 ára plús, sem fram fer í
dag. Stefndirðu allan tímann á það
að enda á sviði eða þróaðist þetta
bara svona? Þetta einfaldlega þró-
aðist. Eftir þrjú ár í þjálfun fannst
mér kominn tími á nýtt markmið.
Það er nefnilega himinn og haf á
milli þess að vera í góðu formi og í
toppformi – og ég vildi koma mér í
toppform. Ég þurfti góða áskorun
til að koma þér á þann áfanga-
stað og fitness var einfaldlega
málið. Eftir smá umhugsun ákvað
ég að kýla á þetta. Það er nú svo-
lítið skemmtilegt að segja frá því
að þegar ég stíg á svið í Háskóla-
bíó verða fjögur ár upp á dag frá
því að ég breytti yfir þennan nýja
lífsstíl.
Hvað hefur reynst þér erfiðast
við þennan undirbúning? Fórn-
irnar sem snúa að fjölskyldunni
og vinunum. Í svona undirbún-
ingi sleppir maður ferðalögum,
skemmtunum og öllu sem að getur
raskað rútínunni. Þetta verkefni
1000 KÍLÓUM LÉTTARI Á SÁLINNI
Fyrir sléttum fjórum árum fékk Lilja Ingvadóttir nóg af eigin líkama og hugarástandi og ákvað að taka heilsuna föstum tökum. Í dag, 35 kílóum léttari og í
betra andlegu jafnvægi, stígur hún á svið og keppir í fi tness. Hún er einnig nýbökuð amma og hefur því margt til að vera þakklát fyrir.
ALDUR 41 árs
STARF Snyrtifræðimeistari og starfa
sem kennari í Snyrtifræði í Fashion
Academy Reykjavík.
BÖRN Ása Lind, 23 ára,
og Ingvi Björn, 17 ára.
MAKI Birgir Guðbjörnsson
FYRIR
HÁMARKS
BRENNSLA
Með Sci-MX
SHRED-X™ HARDCORE
nærðu bestu mögulegu
brennslu sem völ er á.
Fæðubótarvara sem
einkaþjálfarar mæla með!
Let Sci-MX power you.
scimx.is