Fréttablaðið - 28.03.2013, Blaðsíða 61
FIMMTUDAGUR 28. mars 2013 | MENNING | 41
Playboy-kóngurinn Hugh Hefner
segist aldrei hafa haldið framhjá
en að hann hafi sængað hjá yfir
þúsund konum í gegnum tíðina.
Hefner er í forsíðuviðtali í nýjasta
tölublaði Esquire þar sem ýmsar
upplýsingar koma fram um kapp-
ann. Spurður hversu mörgum
konum hann hefði verið með svar-
ar Hefner: „Hvernig á ég að vita
það? Örugglega um þúsund en á
þeim tíma sem ég var giftur hélt
ég aldrei framhjá. En ég var þeim
mun duglegri þegar ég var á lausu
og bætti upp fyrir tímabilið sem
ég var í hjónabandi,“ segir Hefner.
Hann er nú kvæntur Playboy-
fyrirsætunni Crystal Harris.
Hefur aldrei
haldið framhjá
TRÚR EIGINKONUNNI Hugh Hefner er
í forsíðuviðtali í Esquire þar sem meðal
annars kemur fram að hann hefur sængað
hjá um þúsund konum. NORDICPHOTOS/GETTY
Tónlistarhátíðin Reykjavík
Music Mess fer fram í þriðja
sinn um hvítasunnuhelgina,
dagana 24. til 26. maí. Megin-
dagskrá hátíðarinnar verður
á skemmtistaðnum Volta við
Tryggvagötu. Einnig verður
boðið upp á tónleikadagskrá á
Kexi Hosteli.
Fjölmargar ólíkar hljómsveit-
ir víðsvegar að úr heiminum
koma fram á Reykjavík Music
Mess. Áströlsku partíhundarnir
í DZ Deathrays koma í heimsókn
sem og skoska jaðarsöngva-
skáldið Withered Hand. Eins
munu hljómsveitirnar Blood-
group, Oyama, Mammút og
Muck spila á hátíðinni.
RVK Music
í þriðja sinn
DZ DEATHRAYS Áströlsku partíhundarnir
spila á Reykjavík Music Mess.
Hljómsveitin Captain Fufanu,
sem er skipuð Hrafnkatli Flóka
Kaktusi Einarssyni og Guðlaugi
Halldóri Einarssyni, kemur fram
á Hróarskelduhátíðinni í Dan-
mörku í sumar.
Sveitin bætist þar með í hóp
Of Monsters and Men, Ásgeirs
Trausta og Sigur Rósar sem
spila einnig á hátíðinni í ár. Þetta
verður í fyrsta sinn síðan 2006
sem Sigur Rós spilar á hátíðinni.
Meðal annarra flytjenda eru
Rihanna, Slipknot, Queens of
the Stone Age og The National.
Hróarskeldu hátíðin verður haldin
dagana 5. til 8. júlí.
Fufanu
á Hróarskeldu
Á HRÓARSKELDU Captain Fufanu spilar
á Hróarskelduhátíðinni í sumar.
Veitingastaðurinn Bryggjan
opnar í gamla Gránufélags-
húsinu við Strandgötu á Akur-
eyri á morgun. Rík áhersla var
lögð á að skapa fjölskylduvænt
umhverfi á staðnum og voru
dætur Hebu Finnsdóttur, eins
af eigendum staðarins, með í
ráðum þegar barnamatseðill-
inn var skapaður.
„Dæturnar fengu að vera
með í þessu, þær smökkuðu
meðal annars réttina á barna-
matseðlinum og betrumbættu
þá. Þeim fannst til dæmis
ekki gott að hafa salsasósu í
heilhveitivefjunum, þannig að
við slepptum því,” segir Heba
sem rekur staðinn ásamt Sig-
urði Jóhannssyni og Róberti
Häsler.
Á Bryggjunni má einnig
finna svonefnda frægðarstóla
sem eigendurnir hafa merkt
heiðursborgurum Akureyrar.
„Við merkjum þekktum Akur-
eyringum stól og höfum þegar
merkt Kristjáni Jóhannssyni
óperusöngvara, Alfreð Gísla-
syni handboltaþjálfara og
ömmu Stellu stóla. Amma fékk
heiðursstól því hún er alveg
einstök kona og hefur fjölgað
Akureyringum svo um munar,
niðjar hennar telja brátt um
tvöhundruð manns,“ segir
Heba og bætir við: „Við eigum
eftir að veita fleirum heiðurs-
stóla og tökum því fegin við
ábendingum frá fólki.“
Opið hús verður í Bryggj-
unni í dag á milli klukkan 13
og 17 þar sem boðið verður upp
á kaffi og konfekt en formleg
opnun verður á morgun. - sm
Amma Stella fær frægðarstól á Bryggjunni
Veitingastaðurinn Bryggjan opnar á Akureyri á morgun. Þar eru stólar sem merktir eru heiðursborgurum.
FJÖLSKYLDUSTAÐUR Heba Finnsdóttir ásamt
dætrum sínum Bríeti, Birtu Rún og Mörtu
Maríu Jóhannesdætrum. MYND/AUÐUNN NÍELSSON