Fréttablaðið - 28.03.2013, Side 48
28. mars 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
EIRÍKS JAKOBS HELGASONAR
fyrrverandi verkstjóra,
Kelduhvammi 22, Hafnarfirði.
Ólafía Þórey Erlingsdóttir
Haukur Eiríksson Brynja Björk Kristjánsdóttir
Helgi Eiríksson Berglind Gylfadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HALLDÓRU KRISTINSDÓTTUR
Neshaga 14, Reykjavík.
Ólafur Þórhallsson
Þorbjörg Ólafsdóttir Jón M. Benediktsson
Ólöf Þórhildur Ólafsdóttir Necmi Ergün
Júlíus Heimir Ólafsson Vigdís Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
SVAVA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Bogahlíð 9,
lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk,
fimmtudaginn 21. mars. Útförin hefur farið
fram. Þökkum samúð og vinarhug.
Gerða Björg Kristmundsdóttir
Ómar H. Kristmundsson Steingerður Sigurbjörnsdóttir
Hrafnhildur Ómarsdóttir
Helga Ómarsdóttir
Jóhannes Ómarsson
Elísabet Eva Valdimarsdóttir
Okkar ástkæri sonur, bróðir,
mágur og frændi,
ANDRI MÁR ÞÓRÐARSON
lést af slysförum í Flórída, laugardaginn
23. mars. Útförin verður auglýst síðar.
Alda Kolbrún Haraldsdóttir Guðmundur Sveinsson
Þórður Kristjánsson
Jóhann Geir Karlsson Stefanía Gunnarsdóttir
Birgir Örn Karlsson Tinna Valbjörnsdóttir
Lív Eyþórsdóttir
Eydís Eyþórsdóttir Björn Óskarsson
Adrían Birgisson
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Sími 551 3485,
svar ða allan
sólarh ir nginn.
www. du o.is
Hinrik Davíð Jóhanna Óli Pétur
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
JAKOB ÞÓR JÓNSSON
(KOBBI Á KLIFI)
húsgagna, húsa- og módelsmiður
frá Patreksfirði,
lést fimmtudaginn 21. mars sl. Hann verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 5. apríl, kl. 13.00.
Kristján Arnar Jakobsson Þórhildur Ída Þórarinsdóttir
Guðmundur Páll Jakobsson Maríanna Hugrún Helgadóttir
Jóhannes Þór Jakobsson María Vilborg Guðbergsdóttir
Viktor Jóhannes Rolzitto
James Albert Rolzitto Donna Lee Rolzitto
Jeannie Brown Ken Brown
Eugene Durham
og barnabörn.
Útför elskulegrar systur okkar og mágkonu,
KRISTÍNAR BRAGADÓTTUR
Efstalandi 4, Reykjavík,
sem lést á heimili sínu 16. mars, fer fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
3. apríl. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Geðhjálp.
Angela Baldvins Stefán Valur Pálsson
Grímhildur Bragadóttir Haukur Guðlaugsson
Baldur B. Bragason Esmat Paimani
Halldór Bragason
Steingrímur Bragason Sesselja Einarsdóttir
Kormákur Bragason Þórdís Pálsdóttir
Matthías Bragason Gréta Gunnarsdóttir
Þorvaldur Bragason Ólöf Sighvatsdóttir
„Það er allur skalinn innan þessa
félagsskapar. Ungt fólk frá kúabúum,
í hrossarækt, minkarækt, fjárrækt,
skógrækt og grænmetisrækt. Það eru
meira að segja krakkar sem ekki eru
úr sveit en hafa áhuga á landbúnaði og
málefnum landsbyggðarinnar,“ segir
Jóhanna María Sigmundsdóttir, for-
maður Samtaka ungra bænda. Hún
var kosin í það embætti á nýafstöð-
um aðalfundi. Áður hafði hún verið í
stjórn samtakanna í eitt ár og einnig
hafði hún setið í stjórnum félaga ungra
bænda á Vesturlandi og Vestfjörðum.
Jóhanna er 21 árs, að verða 22, og lauk
búfræðinámi frá Hvanneyri á síðasta
ári. Hún er uppalin á Látrum í Mjóa-
firði við Ísafjarðardjúp. „Foreldrar
mínir eru bændur hér. Við búum með
sauðfé, kýr og hross og í dag er ég
aðallega í sauðfjárbúskapnum,“ segir
hún. Þegar forvitnast er um hvort hún
sé með margt á fóðrum svarar hún:
„Þegar ég fór í framhaldsskóla skár-
um við dálítið niður en nú erum við að
fjölga aftur og erum komin upp í 150
fjár, sem er fínt þegar maður er aldrei
heima. Ég er náttúrulega búin að vera
í námi síðustu fjögur ár og svo er ég í
endalausu félagsstarfi fyrir Búnaðar-
félagið, Búnaðarsambandið og unga
bændur.“ Er það allt sjálfboðastarf?
„Já, ég er að reyna að láta gott af mér
leiða.“
Samtök ungra bænda voru stofnuð
árið 2009. Í þeim eru 300 félagar og fer
ört fjölgandi að sögn Jóhönnu Maríu.
En þurfa ungir bændur sérstök sam-
tök? „Já,“ segir hún ákveðin. „Ég tel að
eins og félagskerfi bænda er sett upp
hafi það ekki verið nógu góður vett-
vangur fyrir ungt fólk að koma fram
með sínar skoðanir. Með stofnun sam-
takanna náðum við að sameina unga
bændur hringinn í kringum landið.
Núna eru um áttatíu manns í búfræði-
námi á Hvanneyri. Það er mikil aðsókn
í það nám og samtökin okkar eru
félagsskapur handa þessu fólki.“
Hver eru aldursmörkin? „Þau eru
18 til 35. Við teljum að þegar bóndi
er orðinn 35 ára þá sé hann búinn að
skila sínum hugmyndum inn og sinni
vinnu og með þessu erum við að koma
í veg fyrir stöðnun innan samtakanna
og forðast að þau festist í einum gír.
Það er alltaf að koma inn ungt fólk með
nýjar hugmyndir.“
Starf formannsins segir Jóhanna
María aðallega felast í að sjá um far-
veg þeirra mála sem koma fyrir aðal-
fund og hún nefnir dæmi. „Við vilj-
um sterkara dreifingarkerfi raforku
kringum landið og önnur ályktun síð-
asta fundar var um að taka hæð kúa
inn í kynbótamatið. Það er hlutverk
formannsins að fylgja þessu eftir. Líka
að hafa samband við aðildarfélögin í
hverjum landshluta. Ef eitthvert mál
snertir sérstaklega Suðurland, þá
sinnir fólk innan Félags ungra bænda
á Suðurlandi því.“ gun@frettabladid.is
Forðast að samtökin
festist í einum gír
Ungir bændur um allt land eiga forystumann vestur við Ísafj arðardjúp. Jóhanna María
Sigmundsdóttir að Látrum í Mjóafi rði er nýkjörin formaður Samtaka ungra bænda.
FORMAÐUR SAMTAKA UNGRA BÆNDA Sinnir sauðfjárbúskap að Látrum við Ísafjarðardjúp
og málefnum bænda af áhuga.
Þennan dag árið 1997 fundust lík 37
félaga sértrúarsafnaðarins Himna-
gættarinnar (Heavens Gate) í úthverfi
í San Diego í Kaliforníuríki í Banda-
ríkjunum. Fólkið hafði svipt sig lífi. Af
hinum látnu var 21 kona og 18 karlar.
Þegar líkin fundust var þeim haganlega
komið fyrir og öll voru þau klædd í eins
fatnað og nýja Nike-íþróttaskó. Í ljós kom
að leiðtogar safnaðarins boðuðu að með
sjálfsmorði myndi andi fólksins yfirgefa
jarðneskan íverustað sinn og fara um borð
í geimskip sem leyndist á bak við Hale-
Bopp halastjörnuna sem hafði þá nýlega
verið uppgötvuð.
Leiðtogi safnaðarins hét Marshall App-
lewhite, en kallaði sig Do, og var prófessor
í tónlistarfræðum áður en hann gekk í
söfnuðinn árið 1972. Hann fékk fleiri til
að ganga í söfnuðinn og lofaði fólki að
geimskip myndi nema sálir þess á brott og
fylgja því til „konungdæmis á himnum“.
Smám saman fækkaði í söfnuðinum
eftir því sem nær dró komu geimskipsins
en á tíunda áratugnum óx Applewhite
ásmegin og fór að safna nýjum félögum
í söfnuðinn. Applewhite boðaði skírlífi
og sumir í söfnuðinum fylgdu fordæmi
hans og létu vana sig. Eftir að Hale-
Bopp halastjarnan fannst árið 1995 varð
söfnuðurinn viss um að geimskipið sem
hann beið eftir væri á leið til jarðar. Í
marsmánuði kom halastjarnan næst jörðu
og Apple white og félagar drukku banvæna
blöndu af eitri og vodka og lögðust til
hinstu hvíldar.
ÞETTA GERÐIST 28. MARS 1997
Himnagættin fremur fj öldasjálfsmorð