Fréttablaðið - 28.03.2013, Blaðsíða 13
Að gefnu tilefni
Álverið í Straumsvík hefur árum saman verið í hópi þeirra
lögaðila sem greiða hæstan tekjuskatt á Íslandi.
Fyrirtækið hefur greitt mörg hundruð milljónir króna í
tekjuskatt á hverju einasta ári í a.m.k. 15 ár. Er áreiðanlega
vandfundið það einkafyrirtæki hér á landi sem greitt hefur
hærri tekjuskatt á því tímabili.
Tekjuskattur Rio Tinto Alcan á Íslandi hf.
Rekstrarár
2007
2008
2009
2010
2011
Alls
* Tekjuskattur, almennt tryggingagjald, atvinnutryggingagjald, iðnaðarmálagjald, Ábyrgðarsjóður
launa, markaðsgjald.
ATH. Orkuskattur (u.þ.b. 360 milljónir á ári), fasteignagjöld og ýmis önnur opinber gjöld eru ótalin hér.
Opinber gjöld*
1.457.000.000
985.000.000
537.000.000
2.051.000.000
1.467.000.000
6.497.000.000
Þar af tekjuskattur
1.277.000.000
769.000.000
297.000.000
1.738.000.000
1.115.000.000
5.196.000.000
Rio Tinto Alcan
Straumsvík
Pósthólf 244
222 Hafnarfjörður
Sími 560 7000
www.riotintoalcan.is
Fram til ársins 2005 greiddi fyrirtækið
33% tekjuskatt samkvæmt upphaflegum
fjárfestingarsamningi. Um tíma greiddi því
fyrirtækið mun hærri tekjuskattsprósentu en
nokkurt annað fyrirtæki hér á landi, enda var
almenn skattprósenta fyrirtækja lækkuð í 18%
árið 2002.
Frá árinu 2005 hefur fyrirtækið fallið undir
almennar skattareglur og nýtur engra sérkjara
um tekjuskatt.
Fyrirtækið greiddi langhæst opinber gjöld
allra lögaðila í Reykjanessskattumdæmi vegna
rekstraráranna 2007 og 2008, eða þrisvar til
fjórum sinnum hærri gjöld en þeir sem næstir
komu, sem voru sveitarfélög.
Þá greiddi fyrirtækið hæst opinber gjöld allra
lögaðila fyrir utan ríkið, Reykjavíkurborg og
fjármálafyrirtæki vegna ársins 2010, og var
einnig meðal 10 hæstu gjaldenda vegna
ársins 2011.
Hér eru ótaldar ýmsar greiðslur til ríkis og
sveitarfélaga, svo sem raforkuskattur sem
nemur um það bil einni milljón króna á dag.
Rio Tinto Alcan á Íslandi hf. hefur að nær
öllu leyti fjármagnað sjálft þær 60 milljarða
framkvæmdir sem staðið hafa yfir í Straumsvík
undanfarin misseri og skuldar móðurfélagi sínu
óverulega fjármuni.
>
>
>
>
>
>