Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.03.2013, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 30.03.2013, Qupperneq 18
HELGIN 30. mars 2013 LAUGARDAGUR Um páskana fer ég alltaf með föður-fjölskyldunni upp í bústað ömmu og afa og við borðum saman lambalæri á laugardagskvöldinu, vöknum svo saman á páskadags-morgun, förum í páskaeggjaleit og borðum síðan auðvitað páskaeggin. Það er mjög skemmtilegt,“ segir Auður Tinna Aðalbjarnar- dóttir spurð um fyrirætlanir sínar um páska- helgina. Auður Tinna hefur verið í sviðsljósinu í vetur vegna þátttöku sinnar í Útsvarsliði Reykvíkinga en hún hefur reyndar tekið meira og minna þátt í spurningakeppnum síðan hún var unglingur. „Ég byrjaði á þessu þegar ég var í tíunda bekk í Hagaskóla, var síðan í Gettu betur liði MH öll þrjú árin sem ég var þar og þetta er annað árið mitt í Útsvari.“ Hvað veldur þessum ofuráhuga á spurninga- keppnum? „Ég hef alltaf verið mjög fróðleiks- fús og átt auðvelt með að leggja hluti á minn- ið. Svo byrjaði ég í þessu og finnst þetta bara óskaplega gaman. Bæði að prófa hvað ég veit og eins að kynnast öllu þessu skemmtilega fólki sem hefur verið með mér í liði. Það hefur skap- ast alveg ótrúlega skemmtileg stemning í kring- um þetta í gegnum tíðina og maður fengið mikið af jákvæðri athygli í kjölfarið. Það er bara allt jákvætt við þetta.“ Auður Tinna er á öðru ári í lagadeild HÍ, hvað heillaði hana við lögfræðina? „Mér þótti svo lítið erfitt að velja eftir menntaskólann. Ég hafði verið á náttúrufræðibraut, málabraut og félagsfræði- braut og ef ég hefði getað valið alfræði hefði hún orðið fyrir valinu, en ég heillaðist af lögfræð- inni því það er mjög krefjandi nám auk þess sem ég hef mjög sterka réttlætiskennd og langar að leggja eitthvað af mörkum fyrir samfélagið. Ég lít á lögfræðina sem ákveðið tæki til þess.“ Þú ert líka á fullu í stúdentapólitíkinni, ætl- arðu kannski út í pólitík að námi loknu? „Kjör- tímabilið mitt klárast núna í maí reyndar. Þetta hefur verið ágætt en ég hef fundið að pólitík er stundum pínu skrítin. Stúdentaráð er samt að gera frábæra hluti og er nauðsynlegt til að berjast fyrir réttindum nemenda. Kannski var ég bara of ung, nítján ára þegar ég var kosin. Pólitískur ferill heillar mig ekki í dag allavega en kannski á ég eftir að þroskast upp í að geta tæklað þetta betur.“ Fyrir utan námið, pólitíkina og Útsvar, hvað ger- irðu þér til skemmtunar? „Ég eyði stórum hluta af mínum frítíma í spurningakeppnir, pólitík og að þjálfa stelpur í borðtennis og reyndar líka keppnis- lið MH í Gettu betur, en ástæðan fyrir því að ég geri það er að ég fæ svo mikla gleði út úr því að skipuleggja gott starf og uppskera eins og maður sáir. Auðvitað á ég líka fullt af frábærum vinum sem ég nýt þess að læra með og gera eitthvað skemmtilegt með. Svo á ég líka kærasta sem mér finnst mjög gaman að hitta á kvöldin.“ Hefði viljað fara í alfræði Auður Tinna Aðalbjarnardóttir hefur vakið mikla athygli í Útsvarsliði Reykjavíkur og virðist vita nánast allt. Hún segist eyða miklum tíma í spurningakeppnir, en hún stundar líka nám í lögfræði, situr í stúdentaráði fyrir Röskvu og svo á hún kærasta og nýtur þess að hitta hann á kvöldin. EITTHVAÐ FYRIR ALLA Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is ÚTSVARS- NÖRDINN AUÐUR TINNA Eyðir stórum hluta frítímans í spurninga- keppnir. FRÉTTABLAÐIÐ/PÉTUR ➜ Mér þótti svolítið erfitt að velja eftir menntaskólann. Ég hafði verið á náttúrufræðibraut, málabraut og félagsfræðibraut og ef ég hefði getað valið alfræði hefði hún orðið fyrir valinu. Fjölmargar bækur hafa komið út hjá bókaforlögunum undanfarnar vikur og því af nógu að taka fyrir lestrarhesta. Fjölbreytnin ræður ríkjum en meðal bóka sem ratað hafa í verslanir undanfarið er Skýrsla 64 eftir danska spennu- sagnakónginn Jussi Adler-Olsen, Meistarinn eftir Hjorth Rosen- feldt kom nýverið út í kilju og annar sænskur krimmi, Verndar- englar eftir Kristinu Ohlsson er sömuleiðis ferskur úr prent- smiðju. Bókaormar sem ekki hafa smekk fyrir glæpasögum geta til dæmis kynnt sér verðlauna- skáldsöguna Svifflug eftir hol- lensku skáldkonuna Anne-Gine Goemans sem segir frá tilraun- um unglingsstráks til að fanga athygli móður sinnar sem dvelur við þróunarstörf í Afríku. Handbókaútgáfa er líka blómleg en nýverið hafa komið út bækurnar Burt með draslið sem fjallar um það hvernig best sé að losna við ruslið úr lífinu, sjálfshjálpar- bók eftir Sigríði Arnar dóttur og bókin Tiplað með Ein- stein sem fjallar um listina að muna. Spenna og hasar um páskana Sú tíð er liðin að bækur komi bara út fyrir jólin en kiljur ráða ferðinni í vorútgáfunni. Berglind Pétursdóttir danslistamaður Skoðar málshætti Ég ætla að fá mér einn lítinn páskabjór og fara í gegnum málshættina sem ég hef fengið síðastliðin ár. Svo ætla ég að fræða soninn um páskana og hver hefur for- gang í páskaeggið hans (ég). Birna Hrönn Björnsdóttir, einn eigenda Pink Iceland Í Náttúrulaug á Vestfj örðum Helgin mín verður æði! Ég ætla að finna náttúru- laug á Vestfjörðum og drekka þar eitt hvítvíns- glas, svo ætla ég að rokka inn í nóttina á Aldrei fór ég suður og íhuga hvern ég á að gabba 1. apríl. Bíó The Croods er ný þrívíddarteikni- mynd frá Dreamworks um forsögu- lega fjölskyldu sem neyðist til að halda af stað í sitt fyrsta ferðalag þegar hellirinn þeirra hrynur saman. The Croods er eftir þá Kirk De Micco og Chris Sanders sem saman og hvor í sínu lagi eiga að baki nokkrar þekktustu teiknimyndir síðari ára, eins og Aladdín, Mulan, The Lion King, Lilo og Stitch og How to Train Your Dragon svo einhverjar séu nefndar af mörgum. Myndin er sýnd í Smárabíói, Há- skólabíói, Laugarásbíói, Egilshöll, Álfabakka, Ísafirði, Sauðarkróki, Akranesi og Borgarbíói Akureyri. Forsöguleg fj ölskylda The Croods um land allt Tónleikar Stórhljómsveitin Todmo- bile með þau Andreu, Eyþór Inga og Þorvald Bjarna í broddi fylkingar hitar upp fyrir 25 ára afmælið á Græna hattinum á Akureyri í kvöld. Öll bestu Todmobile-lögin og gott betur. Öll bestu lögin á Akureyri Todmobile á Græna hattinum Kría Birgisdóttir útgefandi Rólegheit og frí Ég stefni á yfirmáta rólega páskahelgi. Ég ætla ekki að lyfta litla putta nema helst til að lesa góða bók, hanga á kaffihúsum og njóta þess að hitta vinina. Svo gæti afnvel verið komið að því að finna hlaupaskóna. Kjartan Yngvi Björnsson rithöfundur Framhald Hrafnsauga Fyrst og fremst mun ég skrifa. Svo ætla ég að skipu- leggja ferð til Rúmeníu, elda indverskt páskalamb fyrir fjölskylduna og svo auðvitað hverfa í barndóm og borða páskaegg. Tónleikar Kammerkór Reykjavíkur flytur óratóríuna The Crucifixion eftir breska tónskáldið John Stainer í tengslum við guðsþjónustu í Aðventkirkjunni við Ingólfsstræti 19, klukkan 12 í dag, 30. mars. Stjórnandi er Julian M. Hewlett og einsöngvarar eru Dagur Jónsson, Guðbjörg Tryggvadóttir, Heiðrún Kristín Guðvarðardóttir, Kristín R. Sigurðardóttir, María Björk Jónsdóttir, Vilborg Helgadóttir og Þorsteinn Pétur Manfredsson. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Óratóría í Aðventukirkjunni Kór og einsöngvarar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.