Fréttablaðið - 30.03.2013, Síða 20
30. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20
leiddi slíkt starf í átta ár fyrir vest-
an.“
Hver eru svo helstu áhugamálin
fyrir utan starfið?
„Ég stunda engin áhugamál en
það sem ég hef mest gaman af er
fólk og mannlíf. Um það fræðist ég
með því að tala við fólk og lesa ævi-
sögur. Svo lærði ég á píanó í upp-
vextinum og spila stundum, helst
þegar enginn heyrir til.“
Færðu ekki að heyra að þú sért
lík Vigdísi Finnbogadóttur?
„Jú, það er oft sagt við okkur
báðar. Þó veit ég ekki til að við
séum sérstaklega skyldar, umfram
það sem flestir Íslendingar eru.
Mér finnst ekki slæmt að vera líkt
við Vigdísi Finnbogadóttur. Það
gæti ekki verið betra.“
Einhver lokaorð til þjóðarinnar
á páskum?
„Það gerðust miklir at burðir
í sögu kristninnar frá skírdegi
til páskadags. Við getum heim-
fært þá upp á lífið sjálft. Þegar
við erfið leika er að etja er gott að
líta til upprisunnar og nú hefur
þjóðin gengið í gegnum efnahags-
þrengingar, hálfgerðan föstutíma,
þá er gott að hafa páskasólina fyrir
augum.“
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Hvernig líður þér í emb-ætti biskups?„Mjög vel. Þetta er fjölbreytt starf. Suma daga er kannski full-margt að takast á
við en hins vegar finnst mér allt
bara svo skemmtilegt – enn þá að
minnsta kosti.“
Er ekki dálítið ólíkt að sitja í
prestsetrinu í Bolungarvík, einu
húsi uppi á hól við hlið kirkjunn-
ar, eða hér við aðalverslunargötu
borgarinnar?
„Já, það er annar lífstaktur.
Þegar maður er prestur í sókn þá
er viðfangsefnið að sinna sóknar-
börnunum þar en hér hef ég sam-
band við presta og sóknarfólk út
um allt land. Um þessar mundir er
ég til dæmis að vísitera í Kjalarnes-
prófastdæmi, byrjaði á Bessastöð-
um 17. mars og var í Reynivalla-
prestakalli á pálmasunnudag, þar
eru þrjár kirkjur. Eftir páska fer
ég í Garðinn, Sandgerði, Keflavík
og Njarðvík. Svona heldur þetta
áfram og endar í Grindavík 9. júní.
Garðabær og Hafnarfjörður eru
inni í þessu.“
Alltaf ný og ný ræða?
(Hlæjandi) „Já, já, alltaf ný og ný
ræða, enda nýjar og nýjar aðstæður
og alltaf eitthvað að gerast.“
Kemur fólk hingað inn af götunni
og skriftar fyrir þér?
„Skriftar? Já, það má kannski
segja það. Þrjá til fjóra daga í viku
er ég meira og minna í viðtölum
sem fólk sem hefur pantað tíma.
Þau eru af öllum toga.“
Gott að konur urðu prestar
Heldurðu að það breyti embættinu
að þú ert kona?
„Já, ég held að þrátt fyrir öll
kerfi og allt sem við setjum niður
á blað, svo sem reglur og lög, mót-
ist starf alltaf af þeim einstaklingi
sem sinnir því. Ég horfi á lífið og
starfið með kvenmannsaugum
og við konur lítum á ýmislegt frá
öðrum sjónarhóli en karlar. Ég
held líka að það hafi áhrif að það
sé kona í brúnni. Það skiptir máli
fyrir samfélagið að konur séu sýni-
legar eins og karlar. Meðal annars
þess vegna tel ég gott að konur
urðu prestar og kona biskup.“
Varst þú ekki meðal fyrstu
kvenna sem tóku prestsvígslu á
Íslandi?
„Ég var númer þrjú. Fyrstu tvær
voru Auður Eir og Dalla dóttir
hennar. Ég var vígð árið 1981, í
september.“
Hvernig metur þú stöðu íslensku
þjóðkirkjunnar? Hefur tekist að
snúa vörn í sókn eftir áföll sem hún
varð fyrir vegna kynferðisofbeldis-
mála?
„Bæði og. Einhver skaði hefur
skeð og hann verður kannski
aldrei bættur. Hins vegar held
ég að almennt sé meiri jákvæðni
gagnvart kirkjunni en var fyrir
einu ári. Þá tilfinningu fæ ég í
samtölum mínum við fólk og könn-
un sem gerð var á þessu ári sýndi
nálina fara örlítið upp á við. En
við megum aldrei sofna á verðin-
um heldur þurfum að vanda okkur.
Lífið heldur alltaf áfram og ný við-
fangsefni taka við.“
Nú er talað um að færri börn
fermist en áður, sérstaklega hér í
Reykjavík. Hefur þú áhyggjur af
því?
„Ekki áhyggjur, en mér finnst
það umhugsunarvert og tel að við
þurfum að skoða hvað við getum
gert betur. Kirkjunnar fólk er, að
mínum dómi, að vinna gott starf
með fermingarbörnum úti um allt
land. Börnin mæta í kirkjuna og
kynnast starfi hennar og flest fara
í fermingarbúðir í nokkra daga. Við
erum að útbúa nýtt kennsluefni og
koma því til skila þannig að börnin
skilji það. Þegar ég var í fermingar-
fræðslu átti ég að læra þrjátíu
sálma utan að, ritningarvers og hitt
og þetta en í nútímanum eru aðrar
aðferðir notaðar, myndbönd og alls
konar efni. En eitt af því sem hefur
áhrif er að mun erfiðara er að vera
foreldri núna en var fyrir nokkrum
áratugum, það er svo mikil krafa
um að þeir fylgi börnunum í öllu
og vissulega vill kirkjan hafa gott
samstarf við foreldra barnanna og
það umhverfi sem þau eru í.“
Telur þú skólakerf ið hafa
haft áhrif á að fækkað hefur í
fermingarbarna hópunum?
„Ég tel að samfélagið allt og
kirkjan hafi lifað í dálitlum ótta
við nýja strauma í samfélaginu og
finnst að við ættum heldur að snúa
óttanum í virðingu og jákvæðni.“
Hvað áttu við?
„Ég get tekið dæmi sem ég
þekki úr Bolungarvík. Þar er fullt
af útlendingum með ólíka trú.
Börn úr þessum fjölskyldum eru
í sama bekk og börnin sem eru í
fermingartímum. Ég bauð þeim að
vera með í fermingarfræðslunni, í
samráði við foreldrana, þó að þau
fermdust ekki, í stað þess að gera
þetta að einhverju vandamáli. Mér
finnst að við verðum sem þjóð að
ákveða út frá hvaða gildum við vilj-
um ganga. Þess vegna er svo mikil-
vægt að það sé sátt um stjórnar-
skrána og að við byggjum hana á
þeim grunni sem við þekkjum. Sá
grunnur útilokar engan frá því að
vera með okkur í þessu samfélagi.
Ef einhver biður um þjónustu
kirkjunnar þá spyrja starfsmenn
hennar ekki: „Bíddu, ert þú í þjóð-
kirkjunni? Ert þú kristin mann-
eskja?“ Við þjónum bara fólki,
alveg sama í hvaða trúfélagi það
er. Þessi tenging er svo skýr í
litlum samfélögum en ekki eins
hér í Reykjavík. Þess vegna er
umræða um hvort samstarf eigi
að vera milli kirkju og skóla miklu
meiri hér í þéttbýlinu en á smærri
stöðum.“
Ömmutáknið
Snúum okkur að þinni persónu.
Hver er Agnes M. Sigurðardóttir?
„Ég er bara lítil stelpa að vestan.
Pabbi var prestur á Ísafirði. Ég
hékk – ekki í pilsfaldi móður minn-
ar heldur í hempufaldi hans, fannst
allt sem hann gerði svo áhugavert
að ég ákvað ung að verða prestur
eins og hann. Ég útskrifaðist sem
stúdent frá Menntaskólanum á Ísa-
firði 1975 og þá fór ég fyrst suður,
í háskólann, en hef varið fjörutíu
árum af ævi minni á Vest fjörðum
– í því stórkostlega umhverfi. Svo
eignaðist ég mann og þrjú börn
sem eru orðin fullorðin og öll flutt
hingað suður. Þau fóru reyndar að
heiman sextán ára í Menntaskól-
ann á Akureyri og voru ekki mikið
heima eftir það. Við hjónin skildum
og ég var ein í Bolungar vík í átta ár.
Ég á eitt barnabarn og finnst voða
gaman að vera amma þótt lítill tími
gefist til að vera í því hlutverki.
Ömmubarnið er drengur, tveggja
ára síðan í desember. Yfirleitt er
ég með kross um hálsinn og alltaf
þegar hann sér mig grípur hann í
þennan kross. Heldur örugglega að
hann sé ömmutákn.“
Það hefur komið fram annars
staðar að þú hafir farið í gegnum
tólf spora kerfið. Stríddir þú við
áfengisfíkn?
„Nei, en kirkjan býður upp á
tólf spor sem andlegt ferðalag, án
þess að fólk hafi einhver skilgreind
vandamál. Það kemur saman og fer
í gegnum líf sitt og lán – eða ólán.
Ég tel að það hafi gagnast mér og
Ég er bara
lítil stelpa
að vestan
Hún ákvað ung að verða prestur enda kveðst
hún hafa hangið í hempufaldi föður síns sem
barn og þótt starfssvið hans afar áhugavert. Nú
hefur hún verið biskup Íslands í níu mánuði og
forvitnilegt að vita hvernig henni líkar.
MEÐ FJÖLSKYLDUNNI Á VÍGSLUDAGINN Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir,
Sigurður Hannesson, Agnes M. Sigurðardóttir, Margrét Hannesdóttir, Hannes Freyr
Berg Baldursson, Baldur Hannesson, Þórunn Sigurbjörg Berg. MYND/GUNNAR VIGFÚSSON
BISKUPINN Það skiptir máli fyrir samfélagið að konur séu sýnilegar eins og karlar. Meðal annars þess vegna tel ég gott að
konur urðu prestar og kona biskup,“ segir Agnes. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1981-1986 Æskulýðsfulltrúi Þjóð-
kirkjunnar.
1986-1994 Sóknarprestur í Hvann-
eyrarprestakalli
1994-2012 Sóknarprestur í
Bolungarvíkurprestakalli
1999-2005 Prófastur í Ísafjarðarpró-
fastsdæmi
2005- 2012 Prófastur í Vest-
fjarðaprófastsdæmi,
(fyrst sameinuðu
Ísafjarðar- og Barða-
strandarprd., 2010 bætt-
ist Hólmavíkurprestakall
við.)
Starfsferill Agnesar