Fréttablaðið - 30.03.2013, Qupperneq 24
30. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Þennan morgun í sól-inni vestra er Andri á leiðinni í tíma til Erics Schmidt , stjórnar-formanns Google og fyrrverandi forstjóra
þess. „Hann ætlar að segja okkur
frá því hvernig Google fór í gegn-
um hlutafjárútboð í fyrsta sinn,“
segir Andri spenntur. „Reglan hér
er hins vegar að það sem maður
heyrir í tímum fer ekki lengra.
Það er gert til þess að fólk eins og
hann geti talað hispurslaust um
hluti sem hugsanlega mega ekki
leka í fjölmiðla. Bransasögurnar
sem maður heyrir eru oft býsna
krassandi.“
Andri útskýrir að Stanford hafi
mjög sterka tengingu við atvinnu-
og viðskiptalífið og það sé mikið
metnaðarmál fyrir fyrrverandi
nemendur, sem margir hverj-
ir hafa gert það afar gott í Kísil-
dalnum og viðskiptum almennt,
að „gefa til baka“ til skólans með
því að kenna þar og leiðbeina nem-
endum. „Standardinn á öllu hér er
afar hár og þetta er ótrúlegt fólk,
miklir reynsluboltar sem koma að
miðla sinni þekkingu til okkar.“
Tengslanet Stanford-nemanna
verði einnig afar gagnlegt þegar
fram í sækir, að sögn Andra. „Það
gæti alveg komið til þess að maður
þyrfti til að mynda áheyrn hjá
forstjóra Nike, þá er ómetanlegt
að geta bara sent honum póst og
eiga von á svari þar sem hann fór
í gegnum sama nám á undan mér,“
segir hann sposkur.
Nálægðin við Kísildalinn og
frumkvöðlaumhverfið þar var
ein af meginástæðum þess að
Andri valdi að sækja nám í Stan-
ford. Hann hefur sjálfur starfað í
tengslum við nýsköpun og rekstur
sprotafyrirtækja um hríð en hann
stofnaði meðal annars Innovit. Það
er nýsköpunar- og frumkvöðla-
setur sem hefur hjálpað fjöl-
mörgum grasrótarverkefnum á
legg. Hann lærði verkfræði og
síðar fjármálahagfræði í Háskóla
Íslands. Stefnan sem hann tekur
í náminu eru því eðlilega tengd
nýsköpun og sprotafyrirtækjum.
En hvað tekur svo við?
Fyrst til LinkedIn
Andri segir atvinnumöguleika
samnemenda sinna afar fjöl-
breytta en hann er sjálfur búinn
að ráða sig í vinnu að námi loknu.
„Ég er að fara að vinna hjá Linked-
In, verð nokkurs konar vörustjóri
hjá þeim og mun stýra þverfaglegu
teymi verkfræðinga, hönnuða og
forritara og bera ábyrgð á ákveðn-
um hluta vefjarins.“ Langtímaplan
Andra er hins vegar að stofna sitt
eigið fyrirtæki og byggja það upp
frá Kísildalnum. „Ég vil þó öðlast
meiri reynslu áður ég helli mér
út í það. Og svo vil ég líka byggja
upp gott tengslanet innan tækni-
geirans.“
Það eru færri betri staðir til þess
en LinkedIn, sem er samfélags-
síða sem býr til faglegt tengslanet
fyrir notendur sína. „Mér finnst
þeir vera að gera gríðar lega flotta
hluti og er spenntur að taka þátt
í framtíðaruppbyggingu þeirra,“
segir Andri.
Andra verður tíðrætt um kúltúr-
inn sem einkennir bæði Stanford
og mannlífið í Kísildal. „Hér er
mikil hvatning og jákvæðni. Það
er mikið gert fyrir okkur í skól-
anum, það er til dæmis auðvelt að
fá áheyrn hjá mikilvægu fólki og
tengingar við fjárfesta en þegar þú
ert kominn inn fyrir dyrnar þarftu
sjálfur að standa á eigin fótum og
sanna þig. Ég myndi segja að í
raun séum við ekki að fá beina for-
gjöf en það eru ýmsar dyr opnar.“
Hann áréttar að metnaður-
inn sé gífurlegur og viðmiðin
há. „Það er ólíkt tilhneigingunni
heima og víðar í Evrópu þar sem
fólk keppist við að verða best á
sínu svæði. Það er ekki til hér.
Hér gildir bara hver er bestur í
heiminum. Þannig hugsa menn um
sprota fyrirtæki, ef þú ætlar ekki
að skapa eitthvað stórt á heims-
mælikvarða þá eru menn ekkert
að staldra mikið við verk þín.“
Má gera mistök
Annað sem Andri bendir á sem ein-
kennir andrúmsloftið í Kísildal er
að þar séu mistök viðurkennd sem
eðlilegur hluti af þróun fyrirtækja.
„Hér er fólk meðvitað um að það
gengur ekki allt upp, mörg, jafnvel
flest sprotafyrirtæki, ganga ekki
en það er allt í góðu. Það er jafnvel
talið fólki til tekna að hafa reynt en
mistekist og lært eitthvað af því.
Heima og víðar í Evrópu er það
mikið tabú að hafa mistekist eða
farið á hausinn og menn eru litnir
hornauga eða afskrifaðir ef þeim
tekst ekki ætlunarverk sitt.“
Hann útskýrir að þessi viður-
kenning á gagnlegu hlutverki mis-
taka geri það að verkum að fólk sé
tilbúnara að taka áhættu en líka að
fólk átti sig fyrr á því að hlutirnir
gangi ekki. „Heima er tilhneiging-
in stundum sú að þjösnast áfram og
eyða tíma og fé sínu og annarra til
að halda fyrirtækjum á floti sem
eiga kannski enga möguleika á að
ná árangri.
Spurður um starfsumhverfi
sprotafyrirtækja og frumkvöðla
hér heima segir Andri að aðstæður
séu býsna góðar og margt spenn-
andi í pípunum. „Það sem mér
finnst helst vanta heima er það
sem kallast annarrar kynslóðar
frumkvöðlar, fólk sem hefur sjálft
stofnsett tæknifyrirtæki og farið
í gegnum ferlið við að byggja upp
rekstur. Hér úti eru fjárfestar sem
skilja mun betur hvað býr að baki
uppbyggingu sprotafyrirtækja og
koma því með meira en bókstaf-
legt virði eða peninga að borð-
unum því þeir miðla af reynslu
sinni.“
Andri segist fylgjast vel með
þeim íslensku fyrirtækjum sem
leita í Kísildalinn og vera í sam-
bandi við mörg þeirra og lið-
sinna eftir megni. „Það er rosa-
lega gaman að sjá hvernig sumum
þeirra gengur vel hérna úti, þetta
er gott skref fyrir marga því hér
eru fyrirtæki nær markaðnum og
fjárfestum sem eru fljótir að átta
sig á hugmyndum þeirra.“
Hvað má bæta?
Nú er mikið rætt um mikilvægi
nýsköpunar og frumkvöðla. Andri
bendir á að velgengni slíkra verk-
efna komi ekki af sjálfu sér og
skapa þurfi heppilegt umhverfi
fyrir sprotafyrirtæki að vaxa í.
Hann segir að hvatningin skipti
mestu máli. „Við þurfum að heyra
sögurnar, bæði af velgengninni
og mistökunum, og leggja rækt
við grasrótina. Þar er kraftur-
inn, hjá einstaklingum og sprota-
fyrirtækjunum sjálfum. Stjórn-
völd heima virðast því miður
leggja dálítið ranga áherslu í
stuðningi sínum við nýsköpun,
það er ættgengt heima og víðar
á Norðurlöndunum að stjórnvöld
vilji gera allt sjálf. Ég tel að það sé
ríkisins að skapa gott regluverk en
því er tiltölulega ábótavant heima,
svo ég tali nú ekki um gjaldeyris-
höft og fleira.“
Hann áréttar að stjórnvöld
ættu fremur að leggja áherslu á
hvetjandi umhverfi. „Ég held að
það séu mistök hjá stjórnvöldum
að veita hundruð milljóna í opin-
berar stofnanir sem eiga að hjálpa
nýsköpunarfyrirtækjum og búa til
svona skref-fyrir-skref ferli fyrir
þau. Það er ákveðin þversögn í því
að ætla að ferlavæða nýsköpun.
Í grunninn á nýsköpun rót í ein-
hverju sem er kaotískt og skap-
andi, þar mætast ólíkir kraftar
– eins og til dæmis hjá CCP þar
sem forritarar og listafólk vinn-
ur saman. Það er líka erfitt að spá
fyrir um hvernig sprotafyrirtæki
þróast.“
Andri segir að það besta sem
stjórnvöld hafi gert hingað til sé
að koma Tækniþróunarsjóði á
laggirnar. Hann vill sjá meira fjár-
magn veitt beint til fyrirtækjanna
sjálfra gegnum slíka sjóði. „Þetta
er forvitnilegt í samhengi við
raunveruleikann hér. Hér dettur
engum í hug að sækja um opinbera
styrki og það vælir enginn í stjórn-
völdum yfir því að fyrir tækið
þeirra gangi ekki. Svo ég skjóti
nú aðeins á frumkvöðlana líka þá
detta sumir í þann gír heima að
vesenast og væla yfir því að hafa
ekki fengið opinberan stuðning eða
yfir því að einhver skilji ekki hug-
myndirnar þeirra. Hér er ábyrgð-
in alltaf hjá frumkvöðlinum sjálf-
um og sagt í gríni og alvöru að ef
amma þín skilur ekki viðskipta-
hugmyndina þína þá ertu ekki að
koma henni nógu vel frá þér.“
Reglan hér er hins
vegar að það sem maður
heyrir í tímum fer ekki
lengra. Það er gert til
þess að fólk eins og hann
geti talað hispurslaust
um hluti sem hugsanlega
mega ekki leka í fjölmiðla.
Kristrún Heiða
Hauksdóttir
kristrunheida@gmail.com
Lærir af
þeim bestu
Kísildalurinn í Kaliforníu er Mekka tæknigeirans
og saga dalsins er samofin sögu einnar virtustu
menntastofnunar Bandaríkjanna, Stanford-
háskóla. Andri Heiðar Kristinsson er að ljúka
MBA-námi í viðskiptafræði frá skólanum, sem
fóstrað hefur marga af farsælustu viðskipta-
mönnum og frumkvöðlum dalsins. En Andri er
rétt að byrja.
Í Kaliforníuríki eru um 18.000
fyrirtæki sem stofnuð hafa verið
af fyrrverandi nemendum eða
starfsfólki Stanford-háskóla. Hjá
þessum fyrirtækjum starfa yfir
þrjár milljónir manna og árs-
velta þeirra er yfir 1,27 billjónir
dala. Ef fyrirtæki sem Stanford-
nemar hafa stofnað gegnum árin
mynduðu eitt ríki væri hagkerfi
þeirra það tíunda stærsta í heimi.
Meðal þessara fyrirtækja má
nefna Google, Hewlett-Packard,
Yahoo, Nike og Cisco Systems.
Samkvæmt World University
Ranking hjá Time Magazine fyrir
árið 2012-13 er Stanford annar
besti háskóli í heimi.
18.000 fyrirtæki
KRAFTURINN ER HJÁ SPROTAFYRIRTÆKJUM Í grunninn
á nýsköpun rót í einhverju sem er kaotískt og skapandi, þar
mætast ólíkir kraftar– eins og til dæmis hjá CCP þar sem
forritarar og listafólk vinnur saman.