Fréttablaðið - 30.03.2013, Page 32
30. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
Listaverk gerð úr sandi endast ekki lengi. Ind-verj i n n S uders a n Pattnaik lætur það ekki á sig fá heldur sér-hæfir sig í þessari list-
grein. Hann athafnar sig gjarn-
an á ströndinni við Puri, borg á
austanverðu Indlandi þar sem
hann fæddist fyrir 36 árum. Þar
á ströndinni byrjaði hann strax á
barnsaldri að búa til sandkastala
eins og fleiri krakkar. Á seinni
árum hafa verk hans hafa vakið
athygli víða um heim, ekki síst
fyrir það að hann lætur sig ýmsa
Fangar athygli heimsins
Indverski sandlistamaðurinn Sudersan Pattnaik hefur árum saman stundað það að búa til stór myndverk á ströndinni við
Puri á austanverðu Indlandi. Myndverkin eru oftar en ekki tengd heimsviðburðum en líftími verkanna er skammur.
FRANS PÁFI Kardínálarnir í Róm höfðu ekki fyrr kosið félaga sinn frá
Argentínu nýjan páfa en Pattnaik sýndi hróðugur þetta verk sitt, til
heiðurs hinum nýkjörna. NORDICPHOTOS/AFP
JÓLASVEINAR
Í desember
síðastliðnum
dundaði Patt-
naik sér við það
að búa til meira
en 500 jóla-
sveina úr sandi
á ströndinni við
Puri.
BARACK
OBAMA Í haust
óskaði indverski
listamaðurinn
Barack Obama
til hamingju
með endurkjör
í embætti
forseta Banda-
ríkjanna. Patt-
naik endurtók
þar leikinn
frá því fjórum
árum áður,
þegar hann
óskaði Obama
til hamingju
með svipuðum
hætti.
ÓLYMPÍU-
LEIKARNIR
Í LONDON
Sudarsan Patt-
naik fylgdist
með Ólympíu-
leikunum í
London og
óskaði löndum
sínum vel-
gengni.
INDVERSKA GYÐJAN DURGA Sudar-
san Pattnaik leggur lokahönd á mynd
sína af hindúagyðjunni Durga í Siliguri
á Indlandi árið 2011.
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
MALALA YOUSUFZAI Pakistanska stúlkan Malala Yousuf-
zai komst í heimsfréttirnar í haust þegar ráðist var á hana
og vinkonu hennar í skólabifreið, fyrir það að hún hafði
opinberlega gagnrýnt talibana og barist fyrir réttindum
kvenna. Pattnaik óskaði henni velfarnaðar.