Fréttablaðið - 30.03.2013, Blaðsíða 37
| ATVINNA |
Starfssvið:
• Verkefnastjórn og textagerð vegna ársskýrslu á ensku
• Verkefnastjórn vegna viðburða s.s. aðalfundar og heimsókna
fjárfesta og markaðsaðila
• Undirbúa tilkynningar á ensku og íslensku til Kauphallar Íslands
og markaðsaðila
• Mótun lifandi og upplýsandi kynninga á ársfjórðungslegri
afkomu
• Umsjón og viðhald fjárfestahluta heimasíðu Marel sem birtur
er á ensku
• Aðstoða framkvæmdastjórn vegna kynninga á fyrirtækinu
til fjárfesta
• Aðstoða við fréttatilkynningar, bæklinga, myndbönd og
textagerð á vef bæði á ensku og íslensku
• Samræma og tryggja viðeigandi upplýsingamiðlun um
fyrirtækið á ytri og innri samskiptamiðlum
Hæfniskröfur:
• Háskólagráða sem nýtist í starfi s.s. í viðskiptatengdu
fagi eða ensku
• Framúrskarandi ensku- og íslenskukunnátta, tvítyngi
er mikill kostur
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti er skilyrði auk hæfni
í mannlegum samskiptum
• Starfsreynsla í alþjóðlegu umhverfi, einkum í fjárfesta-
og/eða almannatengslum er æskileg
• Þekking á helstu fjármála- og rekstrarhugtökum
er kostur
• Skipulagshæfni, frumkvæði og færni til að sinna
mörgum verkefnum samtímis
• Framúrskarandi geta til að útbúa kynningar í helstu
forritum og reynsla af notkun vefumsjónarkerfa
• Reynsla af verkefna- og viðburðastjórnun og sam-
skiptum við fjölmiðla
Sérfræðingur
í fjárfestatengslum
www.marel.com
Marel er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki
í fararbroddi í þróun og framleiðslu tækja,
hugbúnaðar og lausna fyrir matvælaiðnað.
Hjá fyrirtækinu starfa um 4000 manns
í sex heimsálfum, þar af um 500 á Íslandi.
Við bjóðum upp á góða vinnuaðstöðu, skil-
virka starfsþjálfun, sveigjanlegan vinnutíma,
mötuneyti, barnaherbergi, framúrskarandi
íþróttaaðstöðu og gott félagslíf.
Marel leitar að metnaðarfullum einstaklingi með reynslu af upplýsingamiðlun til að aðstoða fjárfestatengil
fyrirtækisins. Starfið felur í sér að stýra undirbúningi og hafa umsjón með gerð ársskýrslu, undirbúa aðalfund
Marel og ársfjórðungslegar afkomukynningar, auk fréttatilkynninga til Kauphallar Íslands og almenn samskipti
við hluthafa og fjárfesta. Starfsmaður mun einnig vera til aðstoðar og hafa eftirlit með samræmi ytri samskipta
og kynninga eftir þörfum.
Viðkomandi mun starfa í móðurfélagi Marel og vinna náið með fjárfestatengli og framkvæmdastjóra markaðs-
og kynningarmála.
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl nk. Einungis er tekið á móti umsóknum á heimasíðu Marel, www.marel.com/jobs.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingólfur Örn Guðmundsson framkvæmdastjóri markaðs- og kynningarmála
ingolfur.gudmundsson@marel.com í síma 563 8118 eða Hrund Rudolfsdóttir framkvæmdastjóri starfsþróunarsviðs
hrund.rudolfsdottir@marel.com í síma 563 8404.
LAUGARDAGUR 30. mars 2013 3