Fréttablaðið - 30.03.2013, Page 54
30. mars 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 38TÍMAMÓT
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ÖNNU PÁLU SVEINSDÓTTUR.
Sigrún Reilly Dermot Reilly
Guðbjörg Vignisdóttir Kristján Ármannsson
Arnbjörg Vignisdóttir Sigmundur Brynjar Sigurgeirsson
Guðrún Vignisdóttir Ásmundur Jónasson
Anna Pála Vignisdóttir Páll Loftsson
Þóra Jóna Jónatansdóttir
og barnabörn.
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Sverrir
Einarsson
Kristín
Ingólfsdóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35, Reykjavík • Símar 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Alúð - virðing - traust
Áratuga reynsla
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
Ástkær faðir okkar, afi og bróðir,
AUÐUN PÉTUR GÍSLASON
Stórholti 2, Reykjavík,
lést á heimili sínu föstudaginn 22. mars
sl. Útför hans fer fram frá kirkju Óháða
safnaðarins miðvikudaginn 3. apríl kl 15.00.
María Ása Auðunsdóttir
Lóa Auðunsdóttir
Mía Pálína Gunnarsdóttir
Ólafía Ingibjörg Gísladóttir
Viggó Kristinn Gíslason
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
sonur, bróðir og afi,
JÓN PÁLMI SKARPHÉÐINSSON
rafvirkjameistari og framhaldsskólakennari,
Sólvallagötu 8, Keflavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar fimmtudaginn
21. mars á gjörgæsludeild Landspítalans
við Hringbraut. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 3. apríl kl. 13.00.
María Jónsdóttir
Skarphéðinn Jónsson Guðmunda Inga Gunnarsdóttir
Einar Jónsson
Skarphéðinn Jónsson Rósa Anna Bjarnadóttir
bræður og barnabörn.
Fjölbreytt úrval legsteina
Frí áletrun og uppsetning
Sjá nánar á granithollin.is sími 555 38 88
Bæjarhrauni 26 (á móti Fjarðarkaupum)
Bæjarhrauni 26 - 220 Hafnarfirði
www.granithollin.is
Sími 555 38 88
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSA ARNFRÍÐUR KOLBEINSDÓTTIR
Víðilundi 24, Akureyri,
lést á Furuhlíð þann 19. mars sl. Útförin fer
fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 2. apríl
klukkan 13.30.
Kolbrún Friðgeirsdóttir Kristján Jóhannesson
Ása A. Kristjánsdóttir Sigurður T. Þórisson
Hilmar Kristjánsson Herdís Elín Jónsdóttir
Friðgeir J. Kristjánsson
og langömmubörn.
Faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN MAGNÚSSON
loftskeytamaður,
Dalbraut 27, Reykjavík,
lést á Landspítalanum 22. mars. Hann
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu
miðvikudaginn 3. apríl kl. 14.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Magnús Þ. Jónsson
Aðalheiður Gústafsdóttir
VirðingReynsla & Þjónusta
Allan sólarhringinn
www.kvedja.is
571 8222
82o 3939 svafar
82o 3938 hermann
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
„Já, ertu að spekúlera í fertugs-
afmælinu?“ spyr Auður Jónsdóttir
rithöfundur þegar hún kemst á snoðir
um hver er á línunni. „Það var afmæli
hjá syni mínum síðasta laugardag –
það er sko bara vika á milli afmæl-
anna okkar – og ég er enn að laga til
[á mánudag].“
Þú nærð vonandi að ljúka því áður
en þitt partý brestur á. Ætlarðu ann-
ars ekki að halda eitthvað upp á dag-
inn?
„Sko gamla æskuheimilið mitt,
Jóns tóft uppi í Mosfellsdal, það er
orðið að gistiheimili þannig að ég
ætla að fara þangað með systkinum
mínum, mökum okkar og börnum, já
og Dóra frænda mínum DNA, elda
þar um kvöldið og gista eina nótt.
Það er afmælisnóttin og svo er páska-
morgunn daginn eftir og þá getum við
borðað páskamorgunmat saman.“
Og páskaeggin… „Já, og falið ein-
hver egg úti í garði handa krökkun-
um. Ég hlakka mikið til. Yngsta systir
mín kemur alla leið frá Þýskalandi til
að vera með okkur. Dóri DNA er eigin-
lega eins og bróðir okkar, hann er ein-
birni og fær að vera með. Mamma
hans býr þarna hinum megin, rétt hjá.
Það verður gaman að koma í þetta hús
og jafnframt dálítið skrítið.
Ég held ég hafi komið síðast inn í
það þegar ég var um tvítugt.“
En áttir sem sagt heima þar þegar
þú varst að alast upp? „Já, pabbi minn
smíðaði þetta hús, það er að segja
annan hluta þess, sem er mjög hippa-
legur og sætur. Svo giftist mamma
mín þýskum kvikmyndaframleið-
anda, hann byggði líka og þá var
kumbaldi sem bættist við – þýska
stálið. Þannig að húsið er dálítið geð-
klofið. Annars vegar hippalegur tré-
kofi og hins vegar stór steinklumpur.
Ég veit ekki hvað pabba finnst ef ég
segi að húsið sé hálfgert reðurtákn,
en hann er nú orðinn ýmsu vanur frá
mér.“
Auður kveðst vera mikil afmælis-
manneskja. „Ég á stjarnfræðilega
systur, afmælissystur, sem fæddist
á sama hálftímanum og ég, á sama
stað. Hún heitir Helga Soffía Einars-
dóttir og er þýðandi. Við erum búnar
að vera á leiðinni að hittast í margar
vikur til að plana eitthvað. En erum
báðar miklir frestarar – kannski er
það í stjörnumerkinu okkar. En við
höfum tvisvar eða þrisvar haldið upp
á afmælin okkar saman og við eigum
eftir að gera það núna líka, þó að það
verði ekki á afmælisdaginn sjálfan.
Við erum svo óskipulagðar – hugsan-
lega af því við erum fæddar á þessum
hálftíma.“ gun@frettabladid.is
Heldur upp á afmælið
í geðklofnu húsi
Auður Jónsdóttir rithöfundur er fertug og ætlar að eiga notalegt kvöld í góðum hópi í
gamal kunnu húsi. Síðar mun hún halda upp á tímamótin með stjarnfræðilegri systur sinni.
Dóri DNA er eiginlega
eins og bróðir okkar, hann er
einbirni og fær að vera með.
Mamma hans býr þarna
hinum megin, rétt hjá.
AUÐUR JÓNS „Ég
veit ekki hvað pabba
finnst ef ég segi að
húsið sé hálfgert
reðurtákn en hann
er nú orðinn ýmsu
vanur frá mér.“
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Okkar ástkæri sonur, bróðir,
mágur og frændi,
ANDRI MÁR ÞÓRÐARSON
lést af slysförum í Flórída, laugardaginn
23. mars. Útförin verður auglýst síðar.
Alda Kolbrún Haraldsdóttir Guðmundur Sveinsson
Þórður Kristjánsson
Jóhann Geir Karlsson Stefanía Gunnarsdóttir
Birgir Örn Karlsson Tinna Valbjörnsdóttir
Lív Eyþórsdóttir
Eydís Eyþórsdóttir Björn Óskarsson
Egill Örn Þórðarson
Adrían Birgisson