Fréttablaðið - 30.03.2013, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 30.03.2013, Blaðsíða 78
30. mars 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 62 Melkorka spilar með sveitinni á næsta tónleikaári í einhvern tíma en í lok reynslutímabilsins verður svo ákveðið hver fær vinnuna. „Þetta er raun bara eitt skref í ferlinu en vissulega skref í rétta átt og tilefni til að fagna. Það er gríðarlegt framboð af frábærum tónlistarmönnum í heiminum svo ég er virkilega þakklát fyrir þetta tækifæri og hlakka til að takast á við næsta skref.“ alfrun@frettabladid.is „Ég er auðvitað mjög glöð og stolt yfir að fá tækifæri til að spila í þessari frábæru hljóm- sveit,“ segir flautuleikarinn Mel- korka Ólafsdóttir. Hún hefur hlotið reynslutíma hjá einni fræg- ustu sinfóníuhljómsveit heims, Lundúna fílharmóníunni. Melkorka vinnur sem flautu- leikari í Japan og sótti um í Lond- on upp á von og óvon. Um 100 til 200 flautuleikarar sækja um stöður á borð við þessa hjá sin- fóníuhljómsveitum af þessari stærðargráðu. Valið er úr hópi umsækjenda og Melkorku var boðið að koma til Lundúna og spila í eins konar áheyrnaprufu. „Mér var boðið að koma með stuttum fyrirvara og ég var ekki viss um að ég kæmist frá. Ég stend á haus í undirbúningi fyrir einleiks- tónleika og konsert með hljóm- sveitinni minni hér í Japan. En það vildi svo heppilega til að ég átti einmitt þriggja daga frí frá vinnu á þessum tíma,“ segir Mel- korka sem flaug því yfir hálfan hnöttinn, tuttugu tíma ferðalag hvora leiðina á þremur dögum, og spilaði. „Þetta er með því klikkaðra sem ég hef gert og ég borðaði ekk- ert nema flugvélamat í þrjá daga. Mér datt í raun ekki í hug að þetta gæti mögulega gengið upp en maður verður að grípa tækifærin þegar þau gefast.“ Melkorka sér ekki eftir þessu ferðalagi í dag enda var henni í kjölfarið boðinn reynslutími hjá Fílharmóníusveitinni ásamt nokkrum öðrum, en það geta verið allt að fimmtán manns sem eru á reynslutíma í einu. Það þýðir að Á reynslu hjá Lundúna- fílharmóníunni Flautuleikarinn Melkorka Ólafsdóttir spilar með Lundúna fílharmóníunni á næsta tónleikaári til reynslu. Hún segist bæði stolt og glöð yfi r að hafa hreppt þetta eft irsótta sæti en milli 100 og 200 fl autuleikarar sóttu um stöðuna. STOLT OG GLÖÐ Mel- korka er mjög þakklát fyrir að fá tækifæri til að spila með Lundúna- fílharmóníunni þótt um reynslutíma sé að ræða en hún segir það vera skref í rétta átt. „Sigur reddar öllu.“ ÞESSI SKILABOÐ SETTI GOLFARINN TIGER WOODS Á FACEBOOK EFTIR AÐ HANN SIGRAÐI Í KEPPNINNI ARNOLD PALMER INVITATIONAL UM HELGINA EN SIGURINN KOM HONUM AFTUR Í FREMSTU RÖÐ. NÚ VIRÐIST ALLT VERA Á UPPLEIÐ HJÁ WOODS EFTIR ERFIÐLEIKA SÍÐUSTU ÁRA. Mikið uppnám ríkir í Útsvarsliði Reykjavíkur eftir að ljóst varð að Óttarr Proppé mætti ekki keppa áfram fyrir hönd sveitarfélagsins vegna framboðs hans fyrir Bjarta framtíð. Liðsfélagar Óttarrs, þau Börkur Gunnars son og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, hafa enn ekki fundið neinn sem fyllt gæti það skarð er Óttarr skilur eftir sig. Lið Reykjavíkur tryggði sér sæti í undan úrslitum spurningaþáttarins Útsvars á föstudaginn var, en þrjár vikur eru þar til liðið keppir næst. Börkur viðurkennir í samtali við Fréttablaðið að hann og Auður Tinna hafi þrýst á Óttarr að draga framboð sitt til baka svo hann gæti áfram keppt fyrir hönd Reykja- víkur. Að hans sögn þarf arftaki Óttarrs ekki að vera rokkstjarna en þau skil- yrði eru sett að hann eða hún geti gengið í háum hælum líkt og söngvar- inn. „Manneskjan þarf að hafa óeðli- lega mikinn áhuga á jaðarlistum, það er sérsvið Óttarrs. Ef einhver þarna úti býr yfir þessum eigin leikum þá höfum við fundið okkar mann eða konu,“ segir Börkur. - sm Leita að arft aka Óttarrs Proppé Óttarr Proppé má ekki keppa í Útsvari vegna framboðs fyrir Bjarta framtíð. UPPNÁM Í REYKJAVÍKURLIÐI Óttarr Proppé má ekki keppa fyrir hönd Reykja- víkur í Útsvari vegna framboðs síns. Börkur Gunnarsson viðurkennir að hann og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir hafi enn ekki fundið arftaka Óttarrs. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÍSLENSKIR HARÐJAXLAR Tískuvefsíðan Fashionista.com fjallaði um íslenskar konur og hönn- uði á mánudaginn. Greinin fjallar um það hvernig hönnun veitir konum styrk og vald. „Kannski er ástæðan sú að í kjölfar efnahagshrunsins þurfa allir, konur jafnt sem karlar, að finna styrkleika sína og frumkvöðulinn í sjálfum sér. Kannski er ástæðan einfaldlega sú að víkingakonur er harðjaxlar.“ Í greininni er meðal annars rætt við Unu Hlín Kristjánsdóttur, hjá Andersen & Lauth. - sm 8. APRÍL KJÓSUM KRAMHÚSIÐ HEFJAST NÝ NÁMSKEIÐ PILATES YOGA LEIKFIMI Skapandi dans frá 3ja ára Djass og spuni Hiphop og break Dans fyrir börn og unglinga: SKRÁNING STENDUR YFIR Rekstrarvörur - vinna með þér Rekstra rvörur - vinna með þ ér Rek stra rvö rur - vin na með þé r Re ks tra rv ör ur - v inn a m eð þé r FIMM KOMIN Á SAMNING Fimm af tíu útskriftarnemum úr leik- listardeild Listaháskólans eru komnir á samning hjá stóru leikhúsunum. Það mun vera fáheyrt að svo stór hluti útskriftarhóps komist þar að og það áður en námi er lokið. Áður hefur komið fram að Arnar Dan Kristjánsson og Hildur Berglind Arndal væru komin á samning hjá Borgarleikhúsinu og Elma Stefanía Ágústs- dóttir hjá Þjóðleikhús- inu. Nú hafa Þorleifur Einarsson og Salóme Rannveig Gunnars- dóttir einnig landað samningum hjá Þjóð- leikhúsinu. - þeb MYND/RUT SIGURÐARDÓTTIR HREFNA OG BJÖRN EIGNUÐUST DÓTTUR Landsliðskokkurinn Hrefna Rósa Sætran og Björn Árnason ljós- myndari eignuðust sitt annað barn í gærmorgun. Parið eignaðist litla stúlku en fyrir eiga þau soninn Bertram Skugga sem er eins og hálfs árs gamall. Segja má að Björn hafi fengið stúlk- una litlu í afmælisgjöf, því feðginin deila afmælis- deginum 29. mars. - þeb
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.