Fréttablaðið - 17.05.2013, Blaðsíða 54
17. maí 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 34
Sveitaballahjómsveitin Æfing frá Flateyri
hefur gefið út sína fyrstu plötu, Fyrstu 45
árin. Alls kyns tónlistarstefnur eru á plöt-
unni, m.a. vals, kántrí, rokkabillý, ballöð-
ur, vögguvísur og hipparokk. Núverandi
meðlimir sveitarinnar eru Árni Bene-
diktsson, Siggi Björns, Jón Ingiberg Guð-
mundsson, Ásbjörn Þ. Björgvinsson og
Fjallabróðirinn Halldór Gunnar Pálsson.
Æfing var stofnuð árið 1968 og lagði í fram-
haldinu ballmarkaðinn á Vestfjörðum og
nærsveitum undir sig næstu tuttugu árin.
Eftir langt hlé var hljómsveitin endurvakin
árið 2009.
Á hvítasunnunni verða veglegir útgáfutón-
leikar á stóra sviði Samkomuhússins á Flat-
eyri. Á næsta ári spilar hljómsveitin svo á
tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísa-
firði.
Fyrsta plata Æfi ngar
Sveitaballasveitin Æfi ng frá Flateyri gefur út fyrstu plötuna.
ÆFING Strákarnir í Æfingu hafa gefið út sína
fyrstu plötu.
„Eins og er get ég lítið tjáð mig um hlut-
verkið því enn er verið að ganga frá málun-
um. En þetta er alveg þokkalegt hlutverk,“
segir leikarinn Gísli Örn Garðarsson. Hann
mun fara með hlutverk í spennumynd-
inni Terra Infirma í leikstjórn Christ-
ophers Cain. Myndinni er lýst sem „indie“
umhverfistrylli og er framleidd af banda-
ríska framleiðslufyrirtækinu Greenwomb.
Samkvæmt Gísla Erni gerist myndin í
framtíðinni og tengist söguþráðurinn meng-
un jarðar og áhrifum hennar á náttúruna.
Einn af framleiðendum Terra Infirma er
útvarpskonan og heilsufrömuðurinn Mar-
grét Hrafnsdóttir. „Margrét kom á sýningu
með Vesturporti ásamt handritshöfundi
myndarinnar, þannig að hún var kveikjan
að þessu samstarfi,“ útskýrir Gísli Örn.
Leikstjóri myndarinnar, Christopher
Cain, er gamalreyndur í faginu og leik-
stýrði meðal annars vestranum Young Guns
frá árinu 1988. Myndin skartaði bræðrun-
um Emilio Estevez og Charlie Sheen í aðal-
hlutverkum auk Kiefers Sutherland og Lous
Diamonds Phillips. „Young Guns var ein af
mínum uppáhaldsmyndum og Emilio
varð minn uppáhaldsleikari í kjöl-
farið. Ég held ég hafi séð allar
myndirnar hans eftir þetta,“
segir Gísli Örn og hlær.
Gísli heldur til Þýskalands
í júlí í þeim tilgangi að setja
upp Ofviðrið í München ásamt
Birni Helgasyni ljósahönnuði og
Berki Jónssyni leikmyndahönnuði.
Í ágúst stígur hann svo á svið í
Ósló í uppsetningu á Hamskipt-
unum. Gísli mun ekki eiga í
neinum vandræðum með að
fara með textann á norsku því hann ólst
þar upp. „Ég er altalandi á norsku og ég
hlakka mikið til að setja upp verkið
þar. Það er alltaf ákveðin nostalgía
sem fylgir því að koma aftur til
gömlu heimahaganna í Noregi.“ - sm
Vinnur með leik-
stjóra Young Guns
Gísli Örn Garðarsson er með mörg járn í eldinum. Leikarinn eyðir
sumrinu í útlöndum og leikur í glænýrri spennumynd.
Í LIÐ MEÐ CAIN Gísli Örn Garðarsson fer með
hlutverk í kvikmyndinni Terra Infirma. Christ opher
Cain leikstýrir henni, en hann á heiðurinn af
klassíkinni Young Guns. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
YOUNG GUNS Emilio Estevez
í hlutverki sínu í vestranum
vinsæla.
Jennifer Lopez
útilokar ekki að
hún muni ganga
í hjónaband með
kærasta sínum,
dansaranum
Casper Smart, í
framtíðinni. Þetta
segir hún í viðtali
við ET Online.
„Hann er mjög skapandi. Hann veit
hverju ég vil ná fram, hann hjálpar
mér og ég hjálpa honum og það virk-
ar vel,“ sagði leik- og söngkonan.
Smart hefur samið dansana fyrir
tónlistarmyndbönd Lopez, nú síðast
við lagið Live it, og sést gjarnan í
myndböndum söngkonunnar.
Lopez segir sambandið heilbrigt
og gott og útilokar ekki brúðkaup í
framtíðinni. „Mér finnst gaman að
vera gift,“ segir Lopez, en hún á þrjú
hjónabönd að baki.
Lopez útilokar
ekki brúðkaup
Bandaríska þungarokkhljómsveitin Slayer
hefur tilkynnt að athöfn verði haldin í
Hollywood í næstu viku til minningar um
gítarleikarann Jeff Hanneman.
Hann lést fyrir tveimur vikum
úr lifrarbilun eftir að hafa verið
bitinn af könguló. Hinn 49 ára
Hann-
eman,
sem
samdi
lög Slayer á
borð við Raining
Blood og Angel of
Death, var bitinn
árið 2011 og hafði
glímt við erfið
veikindi síðan þá.
Athöfnin verður á
tónleikastaðnum Holly-
wood Palladium og á
að standa yfir í fjórar
klukkustundir.
Til minningar
um Hanneman