Fréttablaðið - 25.05.2013, Side 36

Fréttablaðið - 25.05.2013, Side 36
25. maí 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36 Sigríður Dúna er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundi Sig-mundar Davíðs og Bjarna Ben á Laugarvatni og búin að prenta út stjórnarsáttmálann þegar blaða-mann ber að garði. Fjöldi kvenna í áhrifastöðum hefur lengi verið til umræðu í þjóðfélaginu og nú virðist konum vera að fækka bæði í ríkisstjórn og á þingi. Sigríður Dúna segir að það sé ekki gott en bætir við: „Ég er ekki í þeirri deild sem leggur mesta áherslu á að telja hausa eftir kynferði. Mestu máli skiptir hvaða hugmyndir eru í höfðinu á fólki og hvort það hefur skilning á þeim málum sem varða jafnrétti og jafnstöðu kynjanna. Það fer ekki alltaf eftir líffræði- legu kyni,“ segir hún. En hvernig finnst henni kvennabaráttan sem hún tók þátt í hafa skilað sér áfram? „Þegar hugsað er til baka um þrjátíu ár, frá því við settum saman Kvennalistann, þá hefur gífurlega margt áunnist. Vandinn er sá að hugmyndirnar um hlutverk kynjanna eru svo fastbundnar í menningunni að það tekur langan tíma að breyta þeim, miklu lengri en að breyta lögum og reglum.“ Hún tekur sem dæmi lög frá 1911 um jafnan rétt kvenna og karla til háskólanáms, styrkja og embætta. „Það leið hálf öld frá lagasetn- ingunni þar til konur fóru að ráði að sækja háskóla og 60 ár þar til fyrsta konan vígðist prestur. Því olli ekki skortur á réttindum heldur hugarfar,“ bendir hún á. Fjárhagslegt sjálfstæði stórmál Lög um jöfn laun kvenna og karla eru meðal þeirra sem dregst að framfylgja. „Mér þótti athyglisvert að í miðri nýafstaðinni kosn- ingabaráttu fengum við enn eina könn- unina um óútskýrðan launamun kynjanna en hún var varla rædd af frambjóðendum. Þegar Kvennalistinn var og hét hefði enginn komist hjá því að ræða könnum sem þessa í aðdraganda kosninga.“ Þar sem hún heldur á hinum nýja stjórnar- sáttmála Framsóknar og Sjálfstæðisflokks gluggar Sigríður Dúna í jafnréttiskaflann. Hún er ánægð að þar stendur að fjárhags- legt sjálfstæði einstaklinga sé grundvöllur jafnréttis og að huga þurfi að því, óháð hjú- skaparstöðu. „Þessi klausa lætur lítið yfir sér en er stórmál,“ segir hún. „Það er búið að samtengja fjárhag hjóna með ýmsu móti í lögum enda er nú alltaf talað um „heimilin í landinu“. Fjárhagslegt sjálfstæði kvenna, sem alla tíð hefur verið baráttumál kven- frelsissinna, hefur ekki verið á dagskrá. Það er arfaslæmt og ég velti fyrir mér hvort þetta viðhaldi meðal annars óbeint launa- mun kynjanna, að vinnuveitendur hugsi sem svo að ef þeir borga körlunum hærri laun þá komi það konunum þeirra til góða?“ Sjálf hefur Sigríður Dúna lengi verið fjár- hagslega sjálfstæð og látið fátt stoppa sig. Hún heillaðist af ævintýra-og ferðabókum sem barn og þegar hún heyrði minnst á mannfræði las hún sér til um hana í alfræði- bókum því ekkert var internetið á þeim tíma. Strax að stúdentsprófi loknu hélt hún til London til náms í mannfræði við London School of Economics. Það var árið 1972. Síðar fór hún til Bandaríkjanna og lauk doktors prófi frá Rochester en kenndi mann- fræði við Háskóla Íslands jafnhliða nám- inu. Það er hún einnig að gera í dag enda prófessor í mannfræði við HÍ. Í millitíðinni hefur hún bæði verið á Alþingi Íslendinga og í utanríkisþjónustunni. „Ég er mannfræð- ingur að ævistarfi því mannfræðin gefur ákveðna sýn á þau viðfangsefni sem mæta manni í lífinu og hún hefur nýst mér, alveg sama hvar ég hef borið niður.“ Öryggisstúss og áhyggjur Árið 2006 fékk Sigríður Dúna launalaust leyfi frá HÍ og fór til starfa fyrir utanríkis- þjónustu Íslands í Suður-Afríku. Sigríð- ur, 12 ára dóttir hennar, fór með henni en voru þær í öruggu umhverfi? „Nei, enda fór mikill tími í öryggisstúss og áhyggjur. Við ókum í læstum bíl á milli staða og læstum að okkur þegar sólin gekk til viðar. Dóttir mín var ansi dugleg en svo þreifst hún eðli- lega ekki í þessu umhverfi og fékk þá ósk uppfyllta að fara heim til pabba síns, Frið- riks Sophussonar, sem var í fullri vinnu hjá Landsvirkjun en kom til okkar eins oft og hann gat. Ég hafði afar gaman af starfinu í Afríku en skylda mín var fyrst og fremst við dóttur mína svo ég sótti um flutning og eftir tveggja ára dvöl í Suður-Afríku var ég send til Noregs sem sendiherra. Nokkrum vikum eftir að ég kom til Óslóar varð bankahrun- ið hér og Friðrik sem ætlaði að hætta hjá Landsvirkjun var beðinn að stjórna henni ár í viðbót svo við bjuggum saman mæðgurnar í Ósló.“ Hún segir aðstæður fólks í Suður- Afríku og Noregi gerólíkar þó að bæði löndin séu rík. „Munurinn er sá að í Suður- Afríku er ríkidæmið á höndum örlítils brots þjóðarinnar en í Noregi er meiri jöfnuður.“ Leiðir göngu um slóðir Ólafíu Áður en Sigríður Dúna flutti til Óslóar hafði hún dvalið þar við heimildaöflun vegna rit- unar bókar um Ólafíu Jóhannsdóttur sem starfaði að líknarmálum í Ósló upp úr alda- mótunum 1900. „Norðmenn eru hrifnir af Ólafíu og íslenski söfnuðurinn í Ósló hefur líka haldið minningu hennar á lofti. Sóknar- prestur þar er séra Arna Grétarsdóttir og við unnum mikið saman í kjölfar banka- hrunsins því sendiráðið var bara þriggja manna og gat ekki sinnt öllum þeim vanda sem fylgdi mikilli fjölgun Íslendinga í Nor- egi. Því var stuðningur safnaðarins ómetan- legur. Meðal annars var stofnaður sjóður í nafni Ólafíu sem styrkir bágstadda Íslend- inga og þar er ég stjórnarformaður og þykir vænt um. Við vinnum í anda Ólafíu og ef fólk verður fyrir áföllum má sækja um aðstoð til okkar en aðeins einu sinni því sjóðurinn er ekki stærri en það.“ Í ár hefði Ólafía Jóhannsdóttir orðið 150 ára og í tilefni þess verður haldin Ólafíuhá- tíð 8.-9. júní í Ósló. Þá mun Sigríður Dúna leiða þriggja tíma göngu um slóðir Ólafíu í Ósló og segja frá lífi hennar og starfi. Allir eru velkomnir í gönguna sem verður 8. júní og hefst klukkan 14.00. Safnast er saman við styttu skáldsins Wergeland í miðborg Óslóar. Vannærð börn orðin sælleg En hvað var Sigríður Dúna að gera á Græn- höfðaeyjum í mars? „Ég var meðal annars að skoða breytingar sem orðið hafa á lífs- kjörum fólks þar á 30 árum, þær eru undra- verðar. Ég var þar við mannfræðirannsókn- ir 1984. Þá voru eyjarnar eitt fátækasta ríki heims. Þar var eymd, vannærð börn og von- leysi. Nú, þrjátíu árum seinna, sá ég sælleg börn, iðandi atvinnulíf og fullt af konum í vinnu. Miklu máli skipti að árið 1991 komst virkt fjölflokkalýðræði á í landinu þannig að kjósendur geta skipt um stjórnvöld ef þeim býður svo við að horfa. Vandi margra Afríkuríkja er að þar eru gömlu frelsis- hreyfingarnar enn við völd og þurfa ekki að óttast kjósendur.  Einnig var efnahags- kerfi eyjanna opnað og erlendri fjárfest- Á VINNU- STOFUNNI Ég er mannfræðing- ur að ævistarfi því mannfræðin gefur ákveðna sýn á þau viðfangsefni sem mæta manni í lífinu og hún hefur nýst mér, alveg sama hvar ég hef borið niður,“ segir Sigríður Dúna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Mestu máli skiptir hvaða hugmyndir eru í höfðinu á fólki og hvort það hefur skilning á þeim málum sem varða jafnrétti og jafnstöðu kynjanna. Það fer ekki alltaf eftir líffræðilegu kyni. Hugarfarið skiptir öllu máli Sigríður Dúna Kristmundsdóttir prófessor svaraði í símann á Grænhöfðaeyjum við Afríkustrendur í mars síðastliðnum þegar reynt var að fá hana í viðtal vegna 30 ára afmælis Kvennalistans sem hún tók hún þátt í að stofna og sat á þingi fyrir. Viðtalinu var þá slegið á frest. Nú ber það upp á þann dag sem verið er að mynda nýja ríkisstjórn á Íslandi. Í ár hefði Ólafía Jóhannsdóttir orðið 150 ára og í tilefni þess verður haldin Ólafíuhátíð 8.-9. júní í Ósló. Þá mun Sigríður Dúna leiða þriggja tíma göngu um slóðir Ólafíu í Ósló og segja frá lífi hennar og starfi. Allir eru velkomnir í gönguna sem verður 8. júní og hefst klukkan 14.00. Safnast er saman við styttu skáldsins Wergeland í miðborg Oslóar. ➜ Ólafíuhátíð ingu hleypt inn í landið. Ríkið er með þeim fremstu í Afríku í dag í efnahags- og stjórn- málalegri þróun og mikilvæg fyrirmynd í þessum heimshluta.“ Sendiráði Íslands í Suður-Afríku var lokað eftir bankahrunið í sparnaðarskyni. Sigríði Dúnu þykir það miður. „Menn halda að í Afríku sé tóm eymd, ofbeldi og alnæmi og að við höfum ekkert þangað að gera nema kannski í þróunarstarfi. En Afríka er að rétta úr kútnum, þar er nýr, stór markaður að opnast og honum fylgja mikil viðskipta- tækifæri fyrir íslenskt atvinnulíf ekki síst í tæknigreinum og orkuiðnaði.“ Spurð hvort tölvusamskipti geti ekki í sumum tilfellum komið í stað sendiherra svarar hún: „Sumt geta tölvurnar en ekkert kemur í stað pers- ónulegra samskipta sendiherra við ráða- menn á vettvangi.“ Þú ert orðin amma Við höfum ekkert farið út í persónuleg mál Sigríðar Dúnu. Skyldi hún vera orðin amma? „Já,“ segir hún brosandi. „Ég varð amma fyrir tæpum fimm árum, akkúrat í miðju bankahruni. Þann 13. október 2008 var ég að tala í síma snemma morguns við hollenska sendiherrann út af Icesave og á annarri línu var sonur minn að segja: „Þú ert orðin amma!“ Það var nú heldur betur hressandi í miðju fárinu. Í ágúst síðastliðnum kom svo lítil stúlka í heiminn og nú á ég tvö barna- börn auk allra þeirra sem ég á á ská með Friðriki. Það er sko kátt í höllinni þegar við komum saman get ég sagt þér.“ Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.