Fréttablaðið - 25.05.2013, Blaðsíða 37
FERÐIR
LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2013
Löndin við Miðjarðarhafið laða marga að. Þar er hægt að finna staði fyrir matgæðinga, strandaðdáendur,
partífólk, hina rómantísku, fjölskyldustaði
og þá sem vilja reyna á sig í göngu-, hjóla-
eða fjallaferðum. Blaðamaður á netmiðli
VG í Noregi tók saman nokkra slíka staði
fyrir lesendur og víst er að þær upplýsing-
ar henta líka Íslendingum. Ef íslenskar
ferðaskrifstofur bjóða ekki ferðir á þessar
slóðir er auðvelt að fara á eigin vegum frá
Lundúnum, Kaupmannahöfn eða öðrum
borgum.
Fyrir strandaðdáendur
Sól, sumar og strönd eru í augum margra
þau þrjú orð sem þýða gott frí. Á grísku
eyjunni Lefkada er ströndin Porto Kat-
siki sem er umkringd fallegum klettum
og grænum fjallstindum. Kríthvít strönd-
in liggur þar með óendanlegu útsýni.
Á hinni fallegu Sardiníu eru paradís-
arstrendur eins og Cala Goloritze og Cala
Luna. Sardinía er stöðugt að verða vinsælli
sem ferðamannastaður, enda afar fallegt
landslag.
Á Kýpur eru margar góðar strendur sem
þar utan eru í öruggu umhverfi og sjórinn
er tær og fallegur.
Korsíka kemst einnig á blað fyrir hvítar
strendur og kristaltæran sjó. Um mitt
sumarið er þó mikið margmenni á þeim
slóðum.
Í Króatíu er afar fallegt landslag og
góðar strendur.
Fyrir partífólkið
Ibiza hefur löngum verið mikill partí-
staður. Þar eru næturklúbbarnir í röðum,
flottir plötusnúðar og nóttin er alltaf ung.
Á Ayia Napa á Kýpur eru flottir nætur-
klúbbar og þar er meðalaldur djammar-
anna á milli 20-30 ár.
Magaluf á Mallorca er þekktur partí-
staður. Mjög vinsæll djammstaður fyrir
ungt fólk.
Kos í Grikklandi er sömuleiðis þekkt-
ur partístaður. Partí, dans og drykkja allar
nætur.
St. Tropez í Frakklandi er fyrir þá efna-
meiri en klúbbarnir standa í röðum og
alltaf hægt að lenda í fjöri.
Fyrir þá ofvirku
Sierra Nevada á Spáni. Góður staður til
að fara í fjallaferðir og ýmsar skemmti-
legar göngur. Skoðið spanishhighs.co.uk.
Krít býður upp á margar óvenjulegur
gönguferðir. Skoðið Bungy.gr.
Malta hefur upp á að bjóða einhverjar
bestu dýfingaupplifanir við Miðjarðarhaf-
ið. Skoðið Scubadivingmalta.com.
Fyrir þá sem vilja fara í fallhlífarstökk
er Norður-Spánn upplagður. Skoðið skydi-
veempuriabrava.com.
Fyrir þá rómantísku
Útsýnið frá grísku eyjunni Santorini er
heimsfrægt fyrir hinn einstaka sólar-
gang. Santorini þykir ákaflega hentug
fyrir ljósmyndara og er mest myndaða
eyja í heimi.
Ítalía er afar rómantísk og marg-
ir möguleikar til að njóta rómantíkur.
Þar má nefna eyjuna Ponza, sem liggur á
milli Rómar og Napólí, eða Terracina og
Sperlonga og svo má ekki gleyma Amalfi-
ströndinni sem er einstök.
Sigling um Miðjarðarhafið er sömuleið-
is einstaklega rómantísk.
Frönsk upplifun. Leigðu bíl og keyrðu
um frönsku rivíeruna þar sem hægt er að
aka um litla og stóra bæi og njóta kvöld-
stemningar við ströndina í Nice eða á
vínbúgörðum inn til landsins.
Fyrir matgæðinga
Það er aldrei hægt að fá nóg af góðum
mat í fríinu. Á frönsku rivíerunni eru
margir möguleikar í matarupplifun.
Hægt er að nefna bæinn Eze þar sem
veitingahúsið Chevre d‘Or býður upp
Hvernig er þín draumaferð?
Margir eru líklega að velta fyrir sér draumaferðinni í sumarfríinu. Einhverjir ætla að ferðast innanlands en aðrir horfa til útlanda.
Það er misjafnt hvað fólk vill gera í fríinu, rólegheit, partí eða puð. Hvert er þá best að fara?
4