Fréttablaðið - 25.05.2013, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 25.05.2013, Blaðsíða 86
25. maí 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 46TÍMAMÓT „Ég hef velt fyrir mér hvort það boði einhver undur og stórmerki að verða sjötugur en býst við að láta það ganga yfir á sem einfaldastan hátt, án mikils umróts. Átta mig samt á því að dags- planið breytist töluvert við að hætta að vinna og held að brýnt sé að vera með eitthvert plan fyrir daginn,“ segir Markús Örn Antonsson, forstöðumaður Þjóðmenningarhússins, sem er sjötugur í dag. Hann hefur ánægju af göngu- og hjólatúrum og býst við að fjölga þeim með auknum frítíma. Annað áhugamál er eiginlega framlenging af hans fyrra starfi sem ljósvakamaður en það er margmiðlun. „Ég hef alltaf haft áhuga á tækni í fjölmiðlun og lagt töluverða áherslu á að setja mig inn í það sem er að gerast í þeim efnum,“ segir hann og kveðst vinna talsvert með hljóð- og myndefni í tölvunni eftir að hann eign- aðist handhæga myndbandsupptökuvél í sextugsafmælisgjöf og einnig hafa gaman af útlitshönnun á blaðaefni. Fimmtíu ár eru frá því að Markús Örn fór af stað með sinn fyrsta útvarps- þátt í félagi við Andrés Indriðason. „Við Andrés föluðumst eftir að vera með þátt fyrir ungt fólk og fengum tækifæri til þess. Þátturinn hét einfaldlega Með ungu fólki og þar var rætt við ungt fólk í ýmsum greinum. Einnig var mik- ill tónlistarflutningur, unglingahljóm- sveitir sem voru að hasla sér völl, við spiluðum Bítlalög sem þá voru ný af nálinni og aðrar plötur sem við feng- um frá einhverjum sem höfðu verið í Bretlandi. Þetta var nýlunda því ekki var mikið efni ætlað þessum aldurs- hópi í dagskrá Ríkisútvarpsins á þess- um árum.“ Leið bæði Markúsar og Andrésar lá síðan inn í sjónvarpið að fást við hina ólíkustu hluti. „Útsendingar hófust haustið 1966 og mitt hlutverk var aðal- lega á fréttastofunni. Við vorum tveir fréttamenn í byrjun, Magnús Bjarn- freðsson og ég, enda var bara sent út tvö kvöld í viku í upphafi en fljótlega voru útsendingarkvöldin orðin sex svo auðvitað fjölgaði í starfsliðinu,“ rifjar hann upp. Eftir fréttamannsárin varð Markús Örn borgarfulltrúi, síðar borgarstjóri, útvarpsstjóri og sendiherra og kveðst þakklátur forsjóninni fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna að fjöl- breyttum verkefnum. Markús Örn er kvæntur Sigrúnu Ármannsdóttur kennara, sem starfar á menntasviði Reykjavíkurborgar. Þau eiga tvö börn, dótturina Sigrúnu Ásu, sem er búsett í London og starfar fyrir uppboðsfyrirtækið Christie‘s í Hong Kong eins og er, og soninn Anton Björn hæstaréttarlögmann. Inntur eftir veisluhöldum í tilefni afmælisins svarar Markús Örn: „Ég ætla að kveðja samstarfsmenn mína í Þjóðmenningarhúsinu með því að bjóða þeim heim til okkar Sigrúnar. Hins vegar sé ég til með afmælisveisluna vegna þess að sonardóttir okkar, Katrín Steinunn Antonsdóttir, er að útskrifast sem stúdent úr Verslunarskólanum og ég ákvað að gefa henni allan forgang að deginum. Hún ætlar að vera með sína gesti heima hjá sér, þar á meðal okkur foreldrana. En hver veit nema við skell- um upp veislu ef dóttir mín og tengda- sonur eiga heimangengt úr sinni vinnu síðar á árinu.“ gun@frettabladid.is Átta mig á að dags- planið breytist töluvert Markús Örn Antonsson, fyrrverandi borgarstjóri og útvarpsstjóri, lítur yfi r farinn veg, sjötugur. Hann er þakklátur fyrir að hafa fengið að vinna að fj ölbreyttum verkefnum. Markús Örn Antonsson ólst upp í Bústaðahverfi og fór í skólabíl öll barnaskóla- árin í Laugarnesskóla. 1965 Útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík 1966-1970 Fréttamaður hjá Ríkissjónvarpinu 1970-1985 Borgarfulltrúi í Reykjavík 1983-1985 Forseti borgarstjórnar 1991-1994 Borgarstjóri í Reykjavík 1985-1991 og 1998-2005 Gegndi embætti útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins 2005-til 2008 Sendiherra Íslands í Kanada Forstöðumaður Þjóðmenningarhúss frá 2008 en lætur af því embætti um næstu mánaðamót. Ferillinn í stuttu máli MEÐ SIGRÚNU KONU SINNI OG AFASTELPUNUM „Við erum þrjú sem erum samanlagt 100 ára á þessu ári því Katrín Steinunn varð tvítug í mars og Ísabella Tara verður 10 ára í júlí,“ segir Markús Örn ánægður á svip. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru, MARÍU JÓNÍNU SIGURÐARDÓTTUR hárgreiðslumeistara, Þórunnarstræti 91, Akureyri. Sérstakar þakkir færum við Oddfellow- reglunni á Akureyri og starfsfólki hjúkrunarheimilisins Lögmannshlíðar fyrir einstaka umhyggju. Gunnar Jónsson Svanhildur Daníelsdóttir Daníel Gunnarsson Sigurður Þorri Gunnarsson Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGIRÍÐUR VILHJÁLMSDÓTTIR lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk laugardaginn 18. maí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 28. maí nk. kl. 13.00. Ásthildur Salbergsdóttir Friðrik F. Söebech Vilhelmína Þ. Salbergsdóttir Jóhann G. Hálfdanarson Karólína Árnadóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, LAUFEY GUÐBRANDSDÓTTIR sem lést 15. maí á hjúkrunarheimilinu Grund, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28. maí kl. 15.00. Berent Th. Sveinsson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, sonur, sambýlismaður og bróðir, BERGUR JÚLÍUSSON lést af slysförum fimmtudaginn 16. maí. Útförin fer fram frá Glerárkirkju á Akureyri mánudaginn 27. maí kl. 13.30. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Landsbjörg. Júlíus Pétur Bergsson Gyða Ósk Bergsdóttir Stefán Andri Stefánsson Helga Bergsdóttir Rögnvaldur Björnsson Júlíus Bergsson Anna Þorsteinsdóttir Halla Björk Ragnarsdóttir og systkini hins látna. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma, ÓLÖF HELGA BENÓNÝSDÓTTIR lést 21. maí á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík. Jarðarförin fer fram frá Kristkirkju Landakoti, fimmtudaginn 30. maí kl. 15.00. Innilegar þakkir til starfsfólks Sóltúns fyrir einstaka alúð. Benóný Ásgrímsson Kristín Ingibjörg Gunnarsdóttir Ása Ásgrímsdóttir Júlíus Elliðason Hjördís Halldóra Benónýsdóttir ömmubörn og langömmubörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, VIGDÍSAR DANÍELSDÓTTUR Ásbraut 19, Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahjúkrunar Kópavogs og krabbameinsdeildar 11E fyrir hlýhug og góða umönnun. Guðlaug B. Olsen Árni Hilmar Jónsson Jónína B. Olsen Guðmundur Kristjánsson Daníel Olsen Hrafnhildur Svendsen Sveinborg Steinunn Olsen Unnar Geir Holman Klara Björg Olsen Bjarni Bentsson Jóhanna Þórunn Olsen Magnús Helgi Sigurðsson Bárður Olsen Kristín Vilhjálmsdóttir Bryndís Olsen Kristinn Bragi Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GERÐU JÓNSDÓTTUR Vesturgötu 7, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum Fossvogi 27. apríl 2013. Bálför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Einar Ólafsson Jónína Margrét Davíðsdóttir Margrét Sólveig Ólafsdóttir Gústav Kristján Gústavsson Berglind Gerða Libungan Bjarni Berg Elfarsson Lisa Anne Libungan Kjartan Benediktsson Nói Steinn Einarsson Ingunn Eyþórsdóttir Hafsteinn Þór Einarsson Eva Hrund Guðlaugsdóttir Sóley Ósk Einarsdóttir Baldur Freyr Óskarsson Sindri Fannar Ólafsson Daníel Pálmar Ólafsson og barnabarnabörn. Hjartans þakkir fyrir samúð og vinarhug við andlát og útför MARGRÉTAR GUÐJÓNSDÓTTUR Dalsmynni. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Brákarhlíðar fyrir góða umönnun. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.