Fréttablaðið - 25.05.2013, Qupperneq 44
FÓLK|| FÓ K | HELGIN4
Fyrirtækið HUSSE hefur verið starf-andi í rúmlega 25 ár og hefur því yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á
þessu sviði. Til þess að halda kostnaði og
þar með verði í lágmarki eru HUSSE-vör-
urnar ekki seldar í hefðbundnum versl-
unum, heldur aðeins af þjálfuðum söluað-
ilum og í vefverslun HUSSE, www.husse.is.
Auður Guðmundsdóttir er söluaðili
HUSSE í Reykjavík. Hún segir að á vef-
síðunni megi finna allar þær vörur sem
HUSSE hefur á boðstólum og jafnframt
þá söluaðila sem starfa á hverju svæði.
„Einfalt er að finna söluaðila á hverju
svæði með því að fara á reitinn til hægri á
síðunni, „finna söluaðila“, og slá inn póst-
númer sitt,“ segir Auður.
„Söluaðilar Husse geta aðstoðað við að
velja rétta fóðrið því það er mikilvægt að
velja það sem hentar þínu gæludýri best.
Ef fóðrið sem þú kaupir fer ekki vel í dýrið
þitt þá tökum við það til baka og finnum
annað sem gæti hentað betur.“
Það er nauðsynlegt að hugsa vel um
dýrin okkar og því þarf að vanda valið
þegar kemur að fóðri.
Mikil breidd er í vöruvali þannig að
HUSSE á til fóður sem hentar flestum
hundum og köttum. HUSSE Valp er til
dæmis úrvals hvolpafóður og HUSSE
Senior er ætlað eldri hundum svo að
dæmi séu tekin.
Einfalt er að panta HUSSE-vörurnar.
Aðeins þarf að fara inn á vefsíðuna www.
husse.is og panta. Þegar vara hefur verið
valin þarf að skrá inn nafn og heim-
ilisfang og fleiri upplýsingar. Sölu-
aðili mun síðan hafa samband og
kanna hvenær best hentar að fá
vörurnar afgreiddar heim. Auð-
ur segir að mikil ánægja sé með
HUSSE-vörurnar hjá viðskipta-
vinum hennar í Reykjavík, enda er
mikill metnaður lagður í framleiðsluna.
HUSSE-gæludýrafóður er afgreitt beint
heim að dyrum.
HÁGÆÐAFÓÐUR FYRIR
HUNDA OG KETTI
HUSSE KYNNIR Nú eru gæludýravörur frá hinu sænska fyrirtæki HUSSE loks
fáanlegar á Íslandi. HUSSE framleiðir hágæðafóður fyrir hunda og ketti sem
það selur í yfir 40 löndum.
HUSSE
Mikil breidd er í vöruvali
þannig að HUSSE á til
fóður sem hentar
flestum hundum
og köttum.
HREYFING Lára G, Sigurðardóttir segir
að sterkar vísbendingar séu fyrir því að
hreyfing bæti lífslíkur. MYND/ANTON
Lára G. Sigurðardóttir læknir segir
að nýlegar rannsóknir sýni með
áberandi hætti fram á mikilvægi
hreyfingar fyrir heilsuna. „Hreyf-
ing er verndandi gegn ákveðnum
tegundum af krabbameini og nýleg
rannsókn sem framkvæmd var af
hinni virtu krabbameinsstofnun
Dana Farber í Boston sýndi fram á
að konur sem hafa verið greindar
með ristilkrabbamein væru tvöfalt
líklegri til að vera á lífi í lok rann-
sóknartíma ef þær stunduðu líkams-
rækt. Merkilegt er að það skipti
ekki máli hvort þær höfðu stundað
líkamsrækt áður en sjúkdómurinn
greindist. Það er því aldrei of seint
að byrja að stunda líkamsrækt,“ seg-
ir Lára en Heilsuhlaup Krabbameins-
félagsins verður haldið fimmtudag-
inn 30. maí næstkomandi.
„Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
hefur birt leiðbeiningar um létta og
þyngri líkamsrækt. Léttari æfingarn-
ar miðast við um það bil 20 mínútur
fimm daga vikunnar en þær erfiðari
miðast við 30 mínútur þrisvar í viku.
Léttari æfingar geta verið að bóna
bílinn, fara í gönguferðir, hjóla á jafn-
sléttu og þess háttar en þær erfiðari
eru eins og skokk, hlaup eða þrek-
tímar,“ segir Lára og bætir við að öll
hreyfing sé góð. „Ganga eða hjóla í
vinnuna, taka stiga í stað lyftu, allt
hjálpar þetta. Fjallganga er til dæmis
mjög góð hreyfing.“
HEILSUHLAUP
Heilsuhlaup Krabbameins-
félagsins verður haldið á
fimmtudaginn 30. maí nk.
og hefst kl. 19.00 við hús
Krabbameinsfélagsins að
Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Skráning er hafin á hlaup.is.
HREYFING –
HEILSUNNAR VEGNA
KRABBAMEINSFÉLAG ÍSLANDS KYNNIR
Nánari upp-
lýsingar á
www.husse.is.
ALMENN LEIÐSÖGN OG GÖNGULEIÐSÖGN
Leiðsöguskólinn sími: 594 4025
Draumastarfið í draumalandinu
LEIÐSÖGU
SKÓLINN
WWW.MK.IS
Ef þér finnst gaman að ferðast um Ísland og umgangast erlenda ferðamenn þá
gæti leiðsögunám verið fyrir þig.
Leiðsögunám er fjölbreytt og skemmtilegt og getur opnað dyr að áhugaverðu
og krefjandi starfi í vaxandi atvinnugrein.
INNRITUN STENDUR TIL 29. MAÍ
Kannt þú erlend tungumál?
Upplýsingar og skráning fer fram á heimasíðu s kólans www.flugskoli.is/skraning
Eða bara fljúga frjáls eins og fuglinn?