Fréttablaðið - 25.05.2013, Síða 45
Verkefnastjóri
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða til afleysingar
verkefnastjóra á skrifstofu æskúlýðsmála sem hefur
yfirumsjón með tómstundamiðstöðvum ÍTH sem staðsettar
eru í grunnskólum Hafnarfjarðar. Starfið tekur til starfsemi
félagsmiðstöðva og frístundaheimila sem heyrir undir
skrifstofu æskulýðsmála í Hafnarfirði ásamt að sinna öðrum
verkefnum sem skrifstofu ÍTH er falið að sinna.
Helstu verkefni:
• Skipulagning, framkvæmd og umsjón með verkefnum og
viðburðum tengdum frístundastarfi
• Fagleg forysta
• Samskipti við samstarfsaðila og forráðamenn
Menntunar og hæfniskröfur:
• Umsækjandi þarf að hafa lokið háskólamenntun í Tóm-
stunda- og félagsmálafræði eða sambærilegri menntun.
• Reynsla af störfum á vettvangi frítíma
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Möguleiki er á sveigjanlegum vinnutíma á ársgrundvelli.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um þessi
störf.
Nánari upplýsingar veita Linda H. Leifsdóttir
lindah@hafnarfjordur.is og Geir Bjarnason starfandi
æskulýðsfulltrúi geir@hafnarfjordur.is eða hafa samband
við skrifstofu æskulýðsmála í síma 585-5500.
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí. næstkomandi.
Umsóknum skal skilað í þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar
merktar „Verkefnastjóri frístundastarfs“ eða með rafrænum
hætti á ith@hafnarfjordu.is
Verkfræðistofan Vista hefur um árabil sérhæft sig í
mælingum og eftirliti með þeim allt frá uppsetningu á
búnaði, söfnun gagna og framsetningu þeirra.
www.vista.is
Verkfræðistofan Vista er reyklaus og
fjölskylduvænn vinnustaður
Við leitum að sjálfstæðum og úrræðagóðum
starfsmanni til að fást við hönnun og smíði
mæli- og stjórnkerfa, og viðhald og umsjón eldri kerfa.
Hæfniskröfur:
Verk- eða tæknifræði á rafmagnssviði
Reynsla sem nýtast mun í starfi
Góð enskukunnátta
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
UMSÓKNARFRESTUR er til og með 2. júní.
Tekið er á móti umsóknum og ferilskrám á
netfangið vista@vista.is
Fyrirspurnir um starfið skal senda til vista@vista.is
RAFMAGNS-
VERK- EÐA TÆKNIFRÆÐINGURUmsjónarkennari á miðstigi.
Grunnskóli Grindavíkur auglýsir eftir kennara til
starfa á næsta skólaári. Um er að ræða umsjón
og kennslu á miðstigi.
Skólinn er heildstæður, einsetinn grunnskóli, með um 450
nemendur í tveimur starfsstöðvum. Í Grunnskóla Grin-
davíkur er starfað eftir Uppbyggingarstefnunni og lögð
áhersla á að skapa þannig umhverfi að öllum líði vel og
allir læri að bera virðingu fyrir sjálfum sér og umhverfi
sínu. Starfsemin skal einkennast af fjölbreytni, sveigjan-
leika og víðsýni þar sem tekið er tillit til mismunandi þarfa,
áhuga og getu nemenda. Allur aðbúnaður og umhverfi
skólans er til fyrirmyndar. Sjá nánar á heimasíðu skólans
http://www.grindavik.is/grunnskolinn .
Grindavíkurbær er um 2.900 íbúa samfélag í næsta ná-
grenni höfuðborgarsvæðisins. Í Grindavík er lögð áhersla
á fjölskylduvænt umhverfi, íþróttastarf og heilsueflingu í
skóla og leikskóla. Starfsmenn Grindavíkurbæjar eru um
170, en bærinn býður upp á alla helstu opinbera þjónustu.
Starfsmenn Grindavíkurbæjar hafa sett sér eftirfarandi
gildi sem unnið er eftir í starfsemi bæjarins, þau eru jafn-
ræði, jákvæðni, þekking, framsækni og traust.
Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands.
Umsóknir skulu berast Grunnskóla Grindavíkur Ásabraut
2, 240 Grindavík eða sendist á netfangið halldorakm@
grindavik.is í síðasta lagi 5. júní næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Halldóra K. Magnúsdóttir
skólastjóri í síma 420-1150.
Sinfóníuhljómsveit Íslands auglýsir stöður
tónleikastjóra og tónlistarstjóra lausar til
umsóknar frá og með 1. september 2013
ber ábyrgð á skipulagningu tónleikahalds hljómsveitarinnar
og framkvæmd tónleika.
Hann hefur yfirumsjón
með sviðsmálum og öðrum praktískum málum vegna tónleikahalds á sviði og í sal.
Tónleikastjóri hefur yfirumsjón með skipulagningu og framkvæmd tónleikaferða.
Hann vinnur náið með tónlistarstjóra og listrænum stjórnanda að mótun
tónleikadagskrár. Tónleikastjóri heyrir beint undir framkvæmdastjóra.
Krafist er háskólamenntunar, sem nýtist í starfi og
æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu og þekkingu á starfsemi
sinfóníuhljómsveita. Reynsla af stjórnunarstörfum og/eða verkefnastjórnun er
nauðsynleg. Krafist er góðrar íslensku- og enskukunnáttu og þekking á tónlist og
íslensku tónlistarlífi er jafnframt mikilvæg. Áhersla er lögð á frumkvæði,
skipulagshæfni og fylgni til framkvæmda.
eggur drög að dagskrá komandi starfsára Sinfóníu-
hljómsveitarinnar og gerir tillögur um hljómsveitarstjóra og aðra listamenn, sem
koma fram með hljómsveitinni. Hann annast samskipti við umboðsskrifstofur, bókar
listamenn og gerir drög að verkefnavali. Tónlistarstjóri starfar náið með listrænum
stjórnanda við að framfylgja listrænni stefnu Sinfóníuhljómsveitarinnar. Hann
kemur að ritun fræðsluefnis og öðrum textaskrifum, styður við fræðslustarf
hljómsveitarinnar ásamt því að taka þátt í kynningarstarfi með ýmsum hætti.
Tónlistarstjóri heyrir beint undir framkvæmdastjóra.
Skilyrði er að umsækjendur hafi yfirgripsmikla
þekkingu á sígildri tónlist, nútímatónlist og tónlistarsögu. Góð þekking á íslensku
tónlistarfólki og tónskáldum er nauðsynleg, en þekking á alþjóðlegum
tónlistarmarkaði er kostur. Nauðsynlegt er að umsækendur hafi mjög góð tök á
rituðu og töluðu íslensku máli og góða tungumálakunnáttu almennt, einkum
ensku. Krafist er háskólaprófs í tónlist og/eða á fræðasviðum tónlistar. Áhersla er
lögð á frumkvæði, skipulagshæfni og fylgni til framkvæmda.
er til og með 10. júní nk.
veitir nánari upplýsingar, en viðtalstími er
frá kl. 13-15, á meðan á umsóknarferli stendur. Vinsamlega sendið starfsferilskrár
til ásamt viðeigandi prófgögnum.
er ein stærsta menningarstofnun landsins með um
100 manna starfslið. Hljómsveitin heldur úti fjölbreytilegri tónleikadagskrá,
hljóðritar til innlendrar og erlendrar útgáfu, fer í tónleikaferðir innanlands og utan,
auk þess sem hún stendur fyrir viðamiklu fræðslustarfi fyrir börn og fullorðna.
Starfsstöð Sinfóníuhljómsveitarinnar er í tónlistarhúsinu Hörpu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Umsóknarfrestur Vinsamlega athugið að
fyrirspurnum verður eingöngu svarað hjá STRÁ Starfsráðningum ehf.
Guðný Harðardóttir, gudny@stra.is
stra@stra.is
Sinfóníuhljómsveit Íslands
l
Tónleikastjóri
Tónlistarstjóri
Hann sér um samninga við umboðsskrifstofur og annast
samningagerð við listamenn og þá sem koma að tónleikum.
www.sinfonia.is
www.stra.is
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441