Fréttablaðið - 25.05.2013, Blaðsíða 51
Landssamband íslenskra útvegsmanna óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Leitað er að
öflugum einstaklingi til krefjandi stjórnunar- og leiðtogastarfa þar sem reynir á samskiptahæfni,
frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.
Upplýsingar veita:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Þórir Þorvarðarson
thorir@hagvangur.is
Byrjunartími er samkomulag.
Farið verður með allar fyrirspurnir
og umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 3. júní nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfssvið
• Dagleg stjórnun skrifstofu
• Fylgir eftir stefnu og ákvörðunum stjórnar og
samþykktum aðalfundar
• Ber ábyrgð á starfsemi LÍÚ gagnvart stjórn
• Stuðlar að góðum tengslum við félög sambandsins
um allt land, styður og samhæfir starf þeirra
• Samningagerð
• Stjórnar og ber ábyrgð á starfsemi félagsins á
erlendum vettvangi
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun
• Reynsla af stjórnunarstörfum
• Þekking á sjávarútvegi æskileg
• Reynsla af erlendri samvinnu
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Miklir frumkvæðis- og skipulagshæfileikar
• Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti
• Góð tungumálakunnátta er skilyrði, a.m.k. enska
og eitt Norðurlandamál
Framkvæmdastjóri LÍÚ
Landssamband íslenskra útvegsmanna á aðild að Samtökum atvinnulífsins. Aðild að útvegsmannafélagi
og LÍÚ felur jafnframt í sér beina aðild að Samtökum atvinnulífsins með þeim réttindum og skyldum sem
kveðið er á um í samþykktum þess. Sjá nánar á www.liu.is.
Bókun ehf., sem er ungt og vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki sem þjónustar ferðaiðnaðinn,
óskar eftir að ráða söluráðgjafa til starfa.
Upplýsingar veita:
Inga Steinunn Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Vaka Ágústsdóttir
vaka@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 2. júní nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Starfssvið
• Samskipti við aðila í ferðageiranum, hótel, bílaleigur,
afþreyingafyrirtæki o.fl.
• Skipulagning og umsjón funda
• Kynning á hugbúnaðarlausn og þjónustu fyrirtækisins
• Öflun nýrra viðskiptasambanda
Hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi
• Árangursrík reynsla af sölustörfum
• Reynsla af störfum innan ferða- eða hugbúnaðarfyrirtækja kostur
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
• Góð tölvukunnátta
Söluráðgjafi
Bókun er hugbúnaðarlausn fyrir ferðaþjónustugeirann sem stuðlar að hagræðingu, aukinni sölu og betri þjónustu
við viðskiptavini. Kerfið hentar jafnt birgjum (s.s. gististöðum, ferðaskipuleggjendum, bílaleigum), ferðaskrifstofum,
bókunarþjónustum og upplýsingamiðstöðvum. Nánari upplýsingar um Bókun má nálgast á www.bokun.is
Við óskum eftir að ráða verkefnastjóra sem getur skipulagt og leitt byggingarverkefni í Osló og
nágrenni. Við leggjum áherslu á góða leiðtogahæfileika og mikla faglega kunnáttu.
Upplýsingar veita:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Inga Steinunn Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 4. júní nk.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Helstu verkefni
• Stýra verkefnum frá fyrstu stigum til verkloka
• Stýra vinnuhópum (t.d. vegna hönnunar, gerð útboðsgagna, o.fl.)
• Hafa umsjón með og bera ábyrgð á öllum samskiptum við
viðskiptavini / verkkaupa
• Umsjón og ábyrgð á framkvæmda-, fjárhags- og tímaáætlunum
• Uppsetning og frágangur tilboða í verkefni
• Ábyrgð á gæðum og framþróun verkefna
Hæfniskröfur
• Byggingaverk- eða tæknifræðingur
• Fagleg kunnátta og reynsla af sambærilegum verkefnum
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Góðir samskiptahæfileikar
• Norsku-, dönsku- eða sænskukunnátta, skrifleg og munnleg
• Þekking á norskum byggingalögum er kostur
• Góð almenn tölvukunnátta
Verkefnastjóri
Oslo ByggeAdministrasjon (OBA) var stofnað árið 1996 en í dag starfa fimm starfsmenn hjá
fyrirtækinu. OBA er með starfsstöðvar í Osló og veitir alhliða þjónustu innan verkefnastjórnunar
við byggingaframkvæmdir. Viðskiptavinir okkar eru opinberir og einkaaðilar í Osló og nágrenni,
bæði verktakar og verkkaupar.
www.hagvangur.is