Fréttablaðið - 25.05.2013, Síða 52

Fréttablaðið - 25.05.2013, Síða 52
| ATVINNA | Leikskólinn Aðalþing vill ráða fleiri leikskólakennara til starfa með haustinu Þingforseti óskast til starfa á þing yngstu barnanna í Aðalþingi. Stöðunni svipar til stöðu deildarstjóra í kjarasamningi leikskólakennara við sveitarfélögin en kjörin eru að mati Félags leikskólakennara töluvert betri. Núna starfa a.m.k. þrír leikskólakennarar á öllum þingum (deildum) í Aðalþingi, því mun væntanlegur þingforseti vinna með stórum hópi kennara og hafa verulegan faglegan stuðning. Leitað er að einstaklingi með starfsréttindi leikskólakennara, farsæla reynslu af stjórnun og framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og eða uppeldis- og kennslumála. Jafnframt er gerð krafa um færni í vinsamlegum samskiptum og að viðkomandi hafi áhuga á að vinna í leikskóla sem vill starfa í anda Reggio Emilia og hafi brennandi áhuga á að læra meira með okkur. Staðan er laus frá 1. ágúst eða samkvæmt samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 15. júní en nánari upplýsingar gefur Hörður skólastjóri í síma eða á hordur@adalthing.is Leikskólakennarar með umsjón þróunarverkefna óskast til starfa við leikskólann Aðalþing. Stöðu leikskólakennara með umsjón þróunarverkefna svipar til stöðu verkefnastjóra í kjarasamningi leikskólakennara við sveitarfélögin en staðan er þó ekki tímabundin. Leitað er að einstaklingum með starfsréttindi leikskólakennara. Jafnframt er gerð krafa um færni í vinsamlegum samskiptum og að umsækjendur hafi áhuga á að vinna í leikskóla sem vill starfa í anda Reggio Emilia og hafi brennandi áhuga á að læra meira með okkur. Stöður leikskólakennara með umsjón þróunarverkefna eru lausar samkvæmt samkomulagi við umsækjendur. Umsóknarfrestur er til 15. júní en nánari upplýsingar gefur Hörður skólastjóri í síma eða á hordur@adalthing.is. Leikskólinn Aðalþing er austast í Kópavogi, í sex mínútna akstursfjarlægð frá Hafnarfirði og í göngufæri við efstu hluta Breiðholts. Veffang skólans er www.adalthing.is og símanúmerið er 515 0930 Leikskólakennarar Nánari upplýsingar veita Helgi Kr. Sigmundsson framkvæmdastjóri lækninga, í síma 450 4500 eða netfanginu helgi@hvest.is og Þröstur Óskarsson, forstjóri, í síma 450 4500 eða netfanginu throstur@hvest.is. Yfirlæknir lyflæknissviðs Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða sérfræðing í lyflækningum í stöðu yfirlæknis. Leitað er eftir lækni með fjölþætta reynslu í almennum lyflækningum og bráðalækningum. Um er að ræða 100% stöðu frá 1.8.2013, eða eftir nánara samkomulagi. Starfið felur í sér bakvaktir. Laun samkvæmt kjarasamningi og stofnanasamningi. Umsóknarfrestur er til 18. júní 2013. Vinsamlegast sendið umsóknir til Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða bt. Þrastar Óskarssonar, Torfnesi, 400 Ísafirði. Umsóknareyðublað er að finna á vefnum www.hvest.is undir viðkomandi starfs- auglýsingu eða í afgreiðslu á Torfnesi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning hefur verið ákveðin. Rauðarárstíg 27 - 105 Reykjavík - Sími: 5458980 -Netfang: iceida@iceida.is Starfsþjálfun – þrjár stöður Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir eftir ungu háskólafólki sem hefur áhuga á 4 mánaða starfsþjálfun í tengslum við verkefni á sviði þróunarsamvinnu í þremur samstarfslöndum stofnunarinnar. Starfstími á vettvangi er frá 16. ágúst til 15. desember, með möguleika á framlengingu í allt að einn mánuð á heimaskrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík. Hæfniskröfur: Umsækjendur skulu hafa lokið grunnnámi í háskóla (BA, BSc eða sambærilegri gráðu) og ekki vera eldri en 33 ára. Mjög góð enskukunnátta er skilyrði, þar á meðal geta til að skrifa góðan texta, góð tölvukunnátta og undirstöðuþekking í aðferðafræði. Gerð er krafa um sjálfstæð vinnubrögð, ábyrgð, áreiðanleika og lipurð í mannlegum samskiptum. Þekking á þróunarmálum, þróunarstarfi og afrískri menningu er ákjósanleg. Verkefni starfsnema í Malaví: Tilfallandi verkefni á skrifstofu eða fyrir þróunarverkefni stofnunarinnar. Meðal helstu verkefna er upplýsingaöflun í tengslum við áætlanagerð, greining og úrvinnsla gagna og aðstoð við tölfræðilegan samanburð á grunnskólum. Verkefni starfsnema í Mósambík: Tilfallandi verkefni á skrifstofu eða fyrir þróunarverkefni stofnunarinnar. Meðal helstu verkefna er upplýsingaöflun í tengslum við áætlanagerð, greining og úrvinnsla gagna og aðstoð við undirbúning menntaverkefna. Kunnátta í portúgölsku eða spænsku er nauðsynleg. Verkefni starfsnema í Úganda: Tilfallandi verkefni á skrifstofu eða fyrir þróunarverkefni stofnunarinnar. Meðal helstu verkefna er upplýsingaöflun í tengslum við áætlanagerð, greining og úrvinnsla gagna og aðstoð við undirbúning og skipulag. Umsóknir skulu hafa borist skrifstofu Þróunarsamvinnustofnunar Íslands fyrir 6. júní nk. Ertu tungumála-áhugamanneskja/fjölskylda? Hey! Ég heiti Tarjei (Þorgeir á íslensku), og mig langar til að búa á eyjunni í sumar. Ég get unnið (t. d. starfað sem au pair) fyrir mat og skjóli og dálítið af vasapeningum. Ég hef líka áhuga á því að læra tungumálið betur. Ef þú ert áhugamanneskja um tungumál vildi ég gjarnan heyra frá þér. Þú getur kennt mér íslensku eða ensku, og ég get kennt þér norsku. Vinsamlegast sendu mér tölvupóst á tarjeif90@gmail.com. Ég vonast til að heyra frá þér. Veislan veitingaeldhús á Seltjarnarnesi óskar eftir að ráða: • Matreiðslumann sem fyrst í framtíðarstarf. Dagvinna og helgarvinna önnur hvor helgi eða jafnvel þriðja hver. • Sölufulltrúi /Skrifstofustarf. 100% starf dagvinna frá 9-17. Óskast sem fyrst. Framtíðarstarf Matreiðslumaður og sölufulltrúi óskast sem fyrst Fáið endilega upplýsingar hjá okkur í síma 5612031 Eða sendið póst á arny@veislan.is 25. maí 2013 LAUGARDAGUR8
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.