Fréttablaðið - 25.05.2013, Síða 92
25. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 52
➜ Við reynum að
draga fram þær
heimildir sem til
eru um þetta fólk
á handritadeildinni.
Við fengum líka
Halldór Baldurs-
son til að teikna
myndir af mörgum
af þeim einstak-
lingum sem eru til
umfjöllunar og það
glæðir hana lífi.
Sýningin Utangarðs? verður opnuð
í Þjóðarbókhlöðunni í dag í sam-
starfi við Listahátíð í Reykja-
vík. Á henni verður brugðið ljósi
á það hvernig var að vera nið ur-
setn ingur, fatlaður, geð veikur,
glæpamaður, drykkju maður eða
lista maður á seinni hluta átjándu
aldar og fram á 20. öld. Ólafur J.
Engilberts son er sýningarstjóri en
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir og
Halldóra Kristinsdóttir eru höf-
undar texta.
„Hugmyndin kom upphaflega frá
Sigríði Hjördísi, sem hafði rann-
sakað skjöl um glæpamenn á 19.
öld,“ segir Ólafur. „Hún einbeitti
sér í fyrstu að Svani Jónssyni,
ungum manni með listræna hæfi-
leika sem ólst upp við slæm skil-
yrði og lenti upp á kant við sam-
félagið. Svanur var dæmdur fyrir
smáglæpi, þjófnaði á harðfiski og
öðru smálegu, og endaði ævi sína
í betrunarhúsi í Kaupmannahöfn.“
Saga Svans varð þannig kveikj-
an að sýningunni og til er mikið af
efni um fólk sem var utanveltu og
utangarðs í handritadeild Lands-
bókasafnsins.
„Sumir eru auðvitað þekkt-
ir, eins og Sölvi Helgason, en við
vildum draga fram sögur af öðru
fólki sem lítið hefur verið fjallað
um fram að þessu.
Margir voru listamenn; skáld,
tón list armenn og leikarar og
nokkrir voru vatns berar – á
meðan sú starfs grein var enn við
lýði. Enn aðrir höfðu tekjur af ein-
hverri sérgáfu líkt, eins og Gvend-
ur dúllari sem „dúllaði“ eða söngl-
aði, og aðrir voru með leikrænar
uppákomur.“
Einnig verður fjallað um sér-
kenni utangarðs fólks og hvaða
atvinnu það stundaði helst.
„Örar þjóðfélagsbreytingar fólu
í sér breytta stöðu þeirra sem lentu
utangarðs við kjarnafjölskylduna
og sam fé lagið eða nutu ekki þeirr-
ar aðhlynn ingar sem völ er á í
dag,“ segir Ólafur. „Lög og reglu-
gerðir um flakk og ómagafram-
færslu breyttust, vistarbandið var
afnumið og ýmis störf lögðust af.
Sæmundur með sextán skó var
til dæmis vatnsberi, en það starf
lagðist af í kringum aldamótin
1900. Með því að segja sögu þess-
ara einstaklinga viljum við bregða
ljósi á samfélagsgerðina og hvern-
ig hún var að breytast. Á tímabili
fór ómögum fjölgandi en svo fækk-
aði þeim aftur.“
Ólafur segir að það hafi verið
snúið að miðla efninu í sýningu.
„Að hluta til er þetta „ósýni-
legt“ málefni. Við reynum að draga
fram þær heimildir sem til eru um
þetta fólk á handritadeildinni. Við
fengum líka Halldór Baldursson
til að teikna myndir af mörgum
af þeim einstaklingum sem eru til
umfjöllunar og það glæðir hana
lífi, auk þess sem til eru ljósmynd-
ir af sumum þessara einstaklinga.“
Sýningin Utangarðs stendur til
30. september.
bergsteinn@frettabladid.is
Svanur var dæmdur
fyrir smáglæpi, þjófnaði
á harðfiski og öðru
smálegu og endaði ævi
sína í betrunarhúsi í
Kaupmannahöfn.
Athyglinni beint að
utangarðsmönnum
Hlutskipti utangarðsfólks frá seinni hluta átjándu aldar og fram á þá tuttugustu er
til umfj öllunar í sýningunni Utangarðs? sem verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í
dag. Saga þessa hóps endurspeglar örar þjóðfélagsbreytingar á þessum tíma.
AÐSTANDENDUR Ólafur J. Engilbertsson sýningarstjóri ásamt Sigríði Hjördísi Jörundsdóttur og Halldóru Kristinsdóttur, sem
semja texta sýningarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
MENNING
DELUXE
STILLANLEGT HEILSURÚM
* með 3,5% lántökugjaldi
og 340 kr. greiðslugj. pr. afb.
2x90x200 cm
Tilboðsverð
kr. 375.750
Fullt verð 477.000
S
T
IL
LA
N
LE
GT
Á FRÁBÆRU
V
ER
Ð
I20%
Afsláttur VA
X
T
A
LA
U
SA
R
AFBORGANIR Í 1
2
M
Á
N
*
Aðeins
32.573
kr. á mán.
FYRIR ÞÍNAR
BESTU STUNDIR