Fréttablaðið - 25.05.2013, Síða 96

Fréttablaðið - 25.05.2013, Síða 96
25. maí 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 56 36% 34% 30% STÓRUM HLUTA NEMENDA LEIÐIST Í SKÓLA MINNIHLUTI ÚTSKRIFAÐUR 4 ÁRUM EFTIR INNRITUN Í FRAMHALDSSKÓLA 2003 2006 2009 2012 50 40 30 20 10 0 ■ Strákar í 9. og 10. bekk ■ Stelpur í 9. og 10. bekk ■ Útskrifuð eft ir 4 ár ■ Dottin út ■ Enn í námi 52% 25% 23% LÓA PIND ALDÍSARDÓTTIR Sjónvarpskonan góðkunna gekk hinn hefðbundna menntaveg, sem hentar alls ekki öllum eins og brottfallstölur úr framhaldsskóla sýna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Syni mínum, sem er 22 ára í dag, gekk bara ágætlega í grunnskóla. Síðan gerist það að hann gengur á vegg um leið og hann er kominn í framhaldsskóla. Námsefnið höfðar ekki til hans og framsetning þess enn síður. Þetta varð til þess að hann hætti í skóla og fór að vinna og sem betur fer fékk hann vinnu en hann hefur verið að streitast við og leit- ast við að ná þessu stóra takmarki sem stúdentsprófið er með því að taka einn og einn kúrs með mis- jöfnum árangri,“ segir Lóa Pind Aldísardóttir, en þáttur hennar, Tossarnir, verður sýndur á Stöð 2 á sunnudögum. Í þeim fjallar Lóa um íslenska skólakerfið og beinir sjónum sínum að brottfalli í framhalds- skólum. Hún hefur haft áhuga á málefninu síðan sonur hennar hóf nám í framhaldsskóla og hvert ungmennið á fætur öðru í kring- um hana fór að slugsa í námi eða flosna upp úr framhaldsskóla. Lóa segir meðal annars gagn- rýnisvert hversu mikil áhersla er á bóknám í íslenska skólakerfinu. Hún segir að eftir að hún fór að rýna í tölur hafi henni orðið ljóst að ungmennin í kringum hana voru ekki einangruð tilvik, heldur væri brottfallið slíkt að stór hluti af hverjum árgangi gæfist upp á námi eða færi að flakka á milli skóla með tilheyrandi kostnaði fyrir sig og samfélagið. „Ég var svo svo heppin að fá tækifæri til þess að kynna mér efnið í þaula fyrir sjónvarps- þættina. Í þeirri vegferð komst ég meðal annars að því að einn meginvandi framhaldsskólanna er að það vantar fjölbreytni í náms- framboði, ég komst líka að því að brottfall nemenda á sér oft mjög djúpar rætur. Krakkar sem geng- ur illa í skóla á fyrstu árum skóla- göngunnar eiga mjög á hættu að detta úr skóla í framhaldsskóla. Tengslin við skólann hafa þá löngu trosnað og versnað. Áhugaleysi nemenda í grunnskóla getur svo leitt til þess að þau hætta í fram- haldsskóla.“ Lóa Pind segir að krakkar sem falla út úr skóla upplifi margir hverjir að þeir hafi beðið skip- brot. „Það er ekkert skrítið við það vegna þess að það er svo mikil áhersla á það að ganga hefð- bundinn menntaveg. Það er farið að gera kröfu um stúdentspróf í margvíslegum fögum og velta má fyrir sér hvort þörf sé á því, til dæmis þarf stúdentspróf til þess að gerast slökkviliðsmaður og myndlistarmaður.“ Þegar Lóa var að undirbúa þættina tók hún viðtöl við yfir 100 manns. „Ég komst að því að málið er mjög flókið og það eru kannski ekki einfaldar lausnir til, en lausnin á þessum vanda er að minnsta kosti ekki að leggja svo mikla áherslu á bóknám og nú er raunin. Brottfallið er sönnun þess að sú leið er ekki góð.“ sigridur@frettabladid.is Sonurinn innblástur að þáttaröðinni Lóa Pind Aldísardóttir fékk áhuga á brottfalli í menntaskólum þegar sonur hennar missti fótanna þegar hann kom í framhaldsskóla. Í vetur hefur hún sökkt sér ofan í efnið og birtist afrakstur rannsóknanna í nýrri þáttaröð. Í þáttum Lóu Pind, Tossarnir, er fylgst með fimm einstaklingum sem hefur gengið illa að fóta sig í skólakerfinu. „Sá yngsti er í níunda bekk en sá elsti er borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr. Honum tókst að rísa til virðingar í leiklist og stjórnmálum eins og kunnugt er en hann var algjörlega á skjön í skólakerfinu. Við förum meðal annars með honum á barna- og unglingageðdeildina, BUGL, þar sem hann dvaldi en það var talið á sínum tíma að hann væri heilaskaddaður og ekki fær um að hefja skólagöngu.“ Borgarstjórinn talinn heilaskaddaður Grafið hér til vinstri er unnið upp úr upplýsingum Rannsóknar og greiningar. Skífuritið er byggt á upplýsingum Hagstofunnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.