Fréttablaðið - 25.05.2013, Page 99

Fréttablaðið - 25.05.2013, Page 99
LAUGARDAGUR 25. maí 2013 | MENNING | 59 Engin plata hefur selst hraðar á árinu í Bretlandi en Random Access Memories með franska rafdúettnum Daft Punk. Hún seldist í 133 þúsund eintökum á aðeins fjórum dögum og sló met Michaels Bublé, sem seldi 121 þúsund eintök af plötu sinni fyrr á þessu ári fyrstu vikuna eftir að hún kom út. Sú plata sem hefur selst hrað- ast í Bretlandi fyrr og síðar er Be Here Now með Oasis sem seldist í 600 þúsund eintökum fyrstu vik- una árið 2007. Liam Gallagher, fyrrverandi söngvari Oasis, seg- ist ekki vera hrifinn af smáskífu- lagi Daft Punk, Get Lucky, og segir að hann hefði getað samið það á einni klukkustund. Hraðamet í Bretlandi DAFT PUNK Franski rafdúettinn hefur selt plötu sína hraðast allra á árinu. NORDICPHOTOS/GETTY Fyrrverandi Bítillinn Paul McCartney hefur skrifað bréf til stuðnings Mariu Alyokh- inu, meðlimi rússnesku pönksveitar- innar Pussy Riot. Hún ætlar í hungur- verkfall vegna þess að henni var neitað um að vera við- stödd fund þar sem úrskurðað verður hvort hún fái reynslu- lausn úr fangelsi. McCartney skrifaði einnig stuðningsbréf vegna annars með- lims Pussy Riot, Nadezhdu Tolo- konnikovu, sem var neitað um reynslulausn í síðasta mánuði. Bréfin hafa verið sent til rúss- neskra yfirvalda þar sem óskað er eftir því konunum tveimur verði sleppt úr haldi. Skrifaði bréf til Rússlands PAUL MC CARTNEY Bítillinn fyrr- verandi hefur skrifað bréf til rúss- neskra yfirvalda. „Ég bjó úti í Kaupmannahöfn í ein níu ár og var í MA-námi í umhverfis verkfræði. Svo fór ég að halla mér að Bakkusi, lenti í slysi og braut á mér báðar lappirnar og varð í kjölfarið fyrir mikilli and- legri vakningu. Ég flutti síðan heim til Íslands árið 2011 og hóf mína edrúgöngu,“ segir Sverrir Steinn Sverris son, sem kveðst hafa málað sig úr umhverfisverkfræðinni og inn í nýtt líf. Sverrir er sjálfmennt- aður í málaralistinni og hélt sína fyrstu sýningu í Molanum í Kópa- vogi síðasta sumar. Hann kveðst hafa sinnt málara- listinni lítillega fyrir slysið en snúið sér í meira mæli að listinni eftir það. „Ég var í gifsi á báðum fótum upp að hnjám og gat því lítið annað gert en að mála í þrjá mánuði.“ Sýningin í Molanum bar yfir- skriftina Göngutúr með almættinu og mældist hún vel fyrir meðal sýn- ingargesta. „Eins og nafn sýning- arinnar gefur til kynna voru þetta verk sem ég hafði gert bæði áður en ég braut mig og eftir að ég var kominn aftur á fætur og farinn að ganga annan veg í lífinu.“ Í vetur ákvað Sverrir Steinn að sækja tíma hjá listakonunni Þuríði Sigurðardóttur og bæta færni sína í olíumálun. „Ég vildi fyrst og fremst læra reglurnar. Þuríður sagði að ég hefði byrjað á því að brjóta allar reglurnar og að nú yrði ég að fara eftir þeim. Sem er kannski svo lítið í takt við líf mitt,“ segir hann og hlær. Aðspurður viðurkennir Sverrir að hið nýja áhugamál hafi komið fjölskyldu hans töluvert á óvart. „Þetta kom þeim ágætlega á óvart, en þó aðallega vinum mínum. Draumurinn er að geta lagt meiri stund á málaralistina í framtíðinni,“ segir Sverrir Steinn að lokum. - sm Málaði sig úr verkfræði og inn í nýtt líf Sverrir Steinn Sverrisson sneri sér að málaralistinni eft ir slys. Hélt sína fyrstu sýningu síðasta sumar. MÁLAÐI SIG INN Í NÝTT LÍF Sverrir Steinn Sverrisson sinnir málaralistinni af miklum móð. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Söngkonan vinsæla Ke$ha hefur vakið reiði ýmissa foreldrasam- taka í Bandaríkjunum með því að drekka eigið hland í raunveru- leikaþætti sínum á MTV. Í þættinum Ke$ha: My Crazy Beautiful Life, sem sýndur var á MTV í vikunni, er atriði þar sem söngkonan pissar í plastflösku og fær sér sopa. Í viðtali við Hollywood Reporter sagðist Ke$ha sjálf lítið skilja í hamaganginum í kring- um atriðið. „Ég frétti að þetta væri hollt. Ég er líka þannig gerð að ég hræðist ekki áskoranir, svo ég prófaði þetta. En ég mæli ekki með þessu. Þetta var frekar ógeðslegt og ég græddi ekkert á þessu, svo ég myndi ekki gera þetta aftur,“ sagði söngkonan. Hlanddrykkja vekur reiði KE$HA Söngkonan skilur ekkert í hama- ganginum í kringum pissudrykkju sína. Taktu daginn frá fyrir Kvennahlaupið 8. júní Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ er orðinn fastur hluti af lífi þúsunda kvenna. Hlaupið er haldið á 90 stöðum víðs vegar um land og á 20 stöðum erlendis. Í ár er hlaupið í samstarfi við styrktarfélagið Göngum saman, sem árlega veitir myndarlega fjárstyrki til íslenskra grunnrannsókna á brjóstakrabbameini. Sjá nánar á www.sjova.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.