Fréttablaðið - 14.09.2013, Síða 40

Fréttablaðið - 14.09.2013, Síða 40
14. september 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40 óþekktum manni í nóvember 1919, aðeins tveim mánuðum eftir að hann gekk í Þýska verkamannaflokkinn, sem þróaðist yfir í nasistahreyfinguna. Það gekk ýmislegt á í Þýskalandi í miðju hruninu eftir ósigurinn í fyrri heimsstyrjöldinni og enginn hefði veitt því sérstaka athygli ef óbreytti dátinn Hitler, ómenntaður og að því er best var vitað hæfileikalaus með öllu, hefði fallið fyrir morðingjahendi. Hugleiðingar um „Hvað ef“-sögu hafa hingað til ekki alltaf fengið mikið pláss í akademískum sögurannsóknum, þar hafa menn gjarnan hneigst til að líta svo á að það sem gerðist í reynd hljóti að hafa verið óhjákvæmilegt og út í hött sé að velta fyrir sér einhverjum öðrum möguleikum. En í reynd er hjásaga, eins og einnig má kalla fyrirbærið, ekki aðeins skemmti- leg, heldur getur reyndar aukið mjög við dýpt söguskilnings okkar – einmitt með vanga veltum um hvað var óhjákvæmi- legt að gerðist, og hvað var kannski háð duttlungum og tilviljunum. Varð með engu móti komist undan skelf- ingum seinni heimsstyrjaldar? Voru það á einhvern hátt örlög hinnar menningar- ríku þýsku þjóðar að standa aðgerðalaus hjá og jafnvel taka virkan þátt þegar leið- togar hennar misstu sig í einhverjum ótrú- legustu blóðfórnum sögunnar? Var engin leið að komast hjá þessu? Og hvað hefði þá gerst? Sögunni troðið í svipað mót Reyndar er það ótrúlega sterk tilhneiging þeirra sem velta fyrir sér hjásögu að troða sögunni fyrr eða síðar aftur í næstum því það sama mót og hún fór í. Nefna má skáldsöguna Making History sem leik- arinn Stephen Fry gaf út árið 1997. Þar gefur hann sér sömu forsendu og ég var að leika mér með í upphafi þessarar greinar – hann fjarlægir sem sé Hitler úr sögunni. Og niðurstaða hans er sú að það hefði litlu breytt og ef eitthvað er, hefði sagan orðið heldur verri án Hitlers en með honum. Það hefði einfaldlega komið fram einhver annar sams konar einræðisherra í Þýska- landi, nema þessi hefði ekki klúðrað stríðs- rekstrinum jafn illa og Hitler gerði, og því hefði þýskt kúgunarríki á endanum hrósað sigri í Evrópu. Þjóðernisofstopi, gyðinga- hatur og hernaðarhyggja hefðu einfald- lega verið svo sterkir þættir í þýsku þjóð- lífi eftir fyrri heimsstyrjöld að Hitler (eða einhver mjög svipaður honum) hefði verið óhjákvæmilegur. Með öllum þeim hryllingi sem á eftir fylgi. Ég held ekki. Allan þriðja áratuginn í Þýskalandi otaði Hitler fram þjóðernis- ofstopa sínum og gyðingahatri. Já, hann náði athygli og nokkru fylgi, en hvergi nærri nógu miklu til að komast til valda. Það var ekki fyrr en við kreppuna 1929 sem fylgi nasista rauk upp, en ástæðan var fyrst og fremst óánægja Þjóðverja með atvinnuleysið. Árið 1933 var fylgi nasista byrjað að dala en þá komst Hitler til valda vegna innbyrðis sundrungar ann- arra stjórnmálahreyfinga. Það hefði alls ekki þurft að gerast. Og „einhver annar“ lýðskrumari hefði ekki óhjákvæmilega náð sömu stöðu. Og Þjóðverjar þráðu ekki í stórhópum fjöldamorð á gyðingum. Þær ráðstafanir gegn atvinnuleysi sem komu landinu á skrið á ný voru flestar í undir- búningi áður en nasistar komu til, en þeir þökkuðu sér árangurinn. Og smátt og smátt fylgdi þýska þjóðin þeim út í af hengifluginu. Draumur að vera með dáta? Mín skoðun er sú að seinni heims- styrjöldin hafi ekki verið óhjákvæmileg. Ef þeir Egon og Moshe hefðu í raun staðið yfir líki Hitlers 1919 hefði kannski á end- anum komið til margvíslegra átaka í Evr- ópu en hin stóra styrjöld hefði ekki átt sér stað. Hrunið mikla 1945, sem leiddi til tví- skiptingar Evrópu í áhrifasvæði Banda- ríkjanna og Sovétríkjanna, hefði varla orðið. Þar með er því miður líklegt að margvísleg smærri stríð hefðu getað brot- ist út, jafnvel ríkja í Vestur-Evrópu, þegar enginn var sameiginlegur óvinur. Og það er algjörlega óvíst hvernig farið hefði fyrir Sovétríkjunum ef þau hefðu ekki náð tangarhaldi yfir allri Austur -Evrópu vegna feigðarflans Hitlers. Ofsóknir gegn gyðingum og öðrum minnihlutahópum hefðu sjálfsagt víða átt sér stað og af miklum hryllingi, en hin vísindalegu gyð- ingamorð hefðu alveg áreiðanlega aldrei átt sér stað. Þar með hefðu ríki Vestur- landa heldur aldrei hleypt af stokkunum Ísraelsríki og að minnsta kosti alls ekki stutt það svo dyggilega eins og raun ber vitni. Saga Miðausturlanda hefði orðið allt, allt önnur. Og raunar saga heims- ins alls – því nýlenduveldi Breta, Frakka og fleiri Evrópuþjóða hefði staðið mun lengur, ef Evrópuríkjunum hefði ekki blætt út í seinni heimsstyrjöldinni. Hvað hefði breyst á Íslandi? Engin her- seta Breta 1940, það er öruggt. Enginn draumur að vera með dáta, svo mikið er víst. FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson frétti af námskeiði um hjásögu í Háskóla Íslands og fór að brjóta heilann. Líkið lá á grúfu á snjáðum dívan. Á hnakkanum var ekkert að sjá nema einn svartan blóðblett í stuttklipptu hárinu en miklar blóðdreifar á koddanum gáfu til kynna að andlitið væri líklega stórskaddað. Gamli rannsóknarlögreglu- maðurinn Egon hlakkaði ekki til að velta skrokknum við. Meðan heimsstyrjöldin stóð hafði morðum og alvarlegu ofbeldi fækkað heilmikið í München og hann var orðinn óvanur því að horfast í augu við illa farin lík. Og þótt nú færi ofbeldis- verkum fjölgandi á ný var hann ekki búinn að venjast því. Annað en ungi nýliðinn við hlið hans sem var nýkominn á staðinn og skimaði nú kringum sig í heldur fátæk- legu leiguherberginu þar sem líkið hafði fundist. Moshe hafði verið í skotgröfunum í Frakklandi öll stríðsárin og vafalaust séð þar meiri hrylling en Egon gamla langaði einu sinni til að ímynda sér. Þótt úti væri farið að skyggja var enn næg birta í herberginu. Við hlið dívansins var lítið skrifborð sem var þakið pappírum og bókum og úti í horni kommóða. Ofan á hana hafði verið lagður stór – heljar- stór spegill, sem var eiginlega það eina óvænta í herberginu. Líkið var snyrtilega klætt en fötin ósköp fátækleg og venjuleg, svo hégómleikinn sem spegillinn gaf til kynna kom nokkuð á óvart. Að öðru leyti hafði Egon séð ótal svona herbergi áður í leiguhjöllunum í München. Þar bjuggu einhleypir karlar á ýmsum aldri, einstæð- ingar og margir hreinlega auðnuleys- ingjar, oftar en ekki fyrrverandi hermenn sem voru að flosna upp úr samfélaginu. Já, hugsaði Egon með sér meðan hann mann- aði sig upp í að snúa við líkinu, við erum ekki búnir að bíta úr nálinni með stríðið. Það á eftir að sitja í okkur lengi. Eins og því til staðfestingar heyrði hann fjarlæg öskur og læti utan af götu, þar fóru hópar fyrrverandi hermanna um með látum í til- EF ADOLF HITLER HEFÐI VERIÐ MYRTUR 1919 efni þess að í dag, 11. nóvember 1919, var rétt ár liðið frá uppgjöf Þýskalands, upp- gjöf sem þá hafði verið svo langþráð en virtist nú æ skammarlegri eftir því sem lengra leið. „Þú þarft ekki að velta honum við,“ sagði Moshe lágróma enda hafði ekki farið fram hjá honum hvað Egon kveið því að horfast í augu við tætt andlit líksins. „Ég veit hver hann er. Ég hitti húsvörðinn niðri, hann sagði mér það.“ „Nú jæja,“ sagði Egon styggur. „Og hve- nær hafðirðu hugsað þér að deila þessari þekkingu með mér?“ „Hermaður, um þrítugt,“ sagði Moshe og skaut sér ósjálfrátt í réttstöðu. „Líklega Austurríkismaður af hreimnum að dæma. Hús- vörðurinn heldur að hann sé enn í hernum en hann er þó sjaldan einkennis- klæddur. Virðist mjög æstur yfir pólitík. Með- limur í einum af þessum örlitlu æsingaflokkum sem endalaust eru að spretta upp. Kemur stundum hingað með einhverja félaga sína og þeir rausa fram á nótt. Aðal- lega er það víst hann sem talar. Og þó hann sé einn heima á kvöldin, þá talar hann víst við sjálfan sig. Heldur þrumuræður hér í holunni, aleinn. Hús- vörðurinn heldur að hann sé að æfa sig.“ „Jahérna,“ glotti Egon. „Þeir eru margir pólitíkusarnir núorðið! Hvað hét svo þessi ræfill?“ „Hitler,“ sagði Moshe. „Adolf Hitler.“ „Jæja,“ dæsti Egon. „Reynum að finna út hver drap greyið. Þótt hann hafi kannski bara verið einhver einskis verður Austur- ríkismaður, sem engu skiptir í veraldar- sögunni hvort lifir eða deyr, þá leyfist náttúrlega engum að myrða hann.“ „Hvað ef“ sagnfræði Þetta upphaf er sett saman til skemmt- unar Guðna Th. Jóhannessyni sagnfræð- ingi sem nú er farinn að kenna námskeið við Háskóla Íslands um „Hvað ef“-sögu. Hvaða afleiðingar hefði það haft í mann- kynssögunni ef eitthvað hefði farið örlítið öðruvísi en raun varð á. Ég hef ævinlega haft sérlega gaman af slíkum hugleið- ingum, og saga Adolfs Hitler hlýtur alltaf að skjóta fljótt upp kollinum þegar menn velta svona hlutum fyrir sér. Einfaldlega af því upphaf og hörmungar síðari heims- styrjaldarinnar eru í vitund okkar svo órjúfanlega tengd hans persónu. Og hvað gerist þá ef hann er tekinn út úr jöfnunni? Í því tilfelli sem ég hef búið hér til: Ef Hitler hefði nú verið myrtur af einhverjum Mín skoðun er sú að seinni heims- styrjöldin hafi ekki verið óhjá- kvæmileg. HINN ÓHJÁKVÆMILEGI? RITHÖF UND URINN SAGNFRÆÐINGURINN KAN ARÍ Bátsferð – Gay Sigling // Pikk Nikk // Gönguferð um gamla bæinn í Las Palmas // Verslunarferð í Las Palmas MEÐAL ANNARS VERÐUR BOÐIÐ UPP Á: NÁNAR Á URVALUTSYN.IS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.