Fréttablaðið - 14.09.2013, Síða 44

Fréttablaðið - 14.09.2013, Síða 44
KYNNING − AUGLÝSINGVítamín & bætiefni LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 20132 Ég hefði aldrei trúað því hvað spreyið virkar fljótt og vel,“ segir Sigrún, sem hefur notað magnesíumsprey frá Better You, bæði Original og Sport, síðan í vor og finnur mikinn mun á endur heimt eftir æfingar og orku. „Ég hef notað spreyið eftir erf- iðar æfingar og fæ síður harð- sperrur og er f ljótari að ná upp orkunni. Eins reif ég kálfavöðva f yrir nokkrum árum og finn stundum fyrir stífleika og vöðva- krampa þar við mikið álag en spreyið slær fljótt á það þegar slíkt gerist.“ Sigrún sýndi úðunum fyrst áhuga starfs síns vegna og lang- aði að prófa hvort þeir hjálpuðu henni enda spennandi nýj- ung og magnesíum eitt þeirra steinefna sem þarf að passa að líkaminn fái nóg af. Nú er hún farin að benda við- skiptavinum sínum á að prófa spreyin enda ansi margir sem fá harð- sperrur, vöðvakrampa, eiga erfitt með svefn eða eru með meltinguna í ólagi. „Það er frábært að geta borið þetta beint á húð- ina og að magnesíum skili sér strax inn í kerfið. Skjól- stæðingar mínir sem hafa prófað eru mjög ánægðir með árangurinn. Ég hef líka notað þetta á kvöldin því ég fæ af og til fótapirring, sérstak- lega ef ég drekk of mikið kaffi eða fæ mér eitt rauðvínsglas og þetta slær strax á fótapirringinn,“ segir Sigrún sposk á svip. Áhersla á að njóta og láta sér líða betur Sigrún hefur í gegnum tíðina ekki lagt mikla áherslu á fæðubótarefni nema í litlu magni og hvetur fólk fyrst og fremst til að borða hollan og góðan mat og hafa fjölbreyti- leikann í fyrirrúmi. „Það er ekkert bannað en fólk verður að fylgjast með því hvernig því líður eftir mál- tíðir. Það má ekki gleyma að matur er bæði félagslega og tilfinningalega tengdur ok kur og öllum hollt að skoða matar- he gðu n s í n a . Mér finnst skipta m i k l u m á l i að fólk læri að hlusta á líkam- ann og muna að góðir hlutir ger- ast hægt. Það eru ekki kíló- in sem skipta höfuð máli heldur hvort og hvernig við getum notað líkam- a n n,“ seg i r Sigrún. Hún hefur í gegn- um tíðina lagt áherslu á það við sína skjól- stæðinga að vera þakklátir fyrir það sem þeir geta gert og velja hverju þeir vilji breyta í sínu daglega lífi til að létta lífið. „Mér finnst orka, svefn og slökun skipta miklu máli og magnesíum- úðinn hefur hjálpað mér til að ná enn betra jafnvægi milli hreyfingar og slökunar. Mér líður vel og er full af orku. Ég hef prófað að spreyja beint út í baðvatnið en nú veit ég að það eru líka til magnesíumflögur frá Better You og hlakka til að prófa þær næst,“ segir Sig- rún brosandi að lokum. Kom mér á óvart hvað spreyið virkar frábærlega Sigrún Björg Ingvadóttir er einn af vinsælustu einkaþjálfurum og hóptímakennurum í World Class og hugsar vel um heilsuna. Hún leggur mikla áherslu á að hafa gaman af lífinu, setja sér raunhæf markmið og hugsa jákvætt. Hún kolféll fyrir magnesíumspreyi sem minnkar vöðvastífleika, eykur orkuna og minnkar fótapirring sem hún fær stundum á kvöldin. Magnesíumvörurnar frá Gengur vel. Sigrún Björg Ingvadóttir, einkaþjálfari og hóptímakennari í World Class, mælir með magnesíumspreyjunum frá Better You. Af hverju þarf sértöflur fyrir karla og konur? „Í stuttu máli er aukajárn í vítamíninu fyrir konur en ekki í karla-útgáfunni. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að konur tapa reglulega mun meira af járni úr líkamanum en karlmenn þar sem þær fara á blæðingar en ekki karlar,“ svarar Arnar og bætir við að ófrískar konur og konur með barn á brjósti hafi auk þess öllu meiri fjörefnaþörf en karlar og því henti þeim að fá aukalegan skammt af kalki, járni og fólati sem einmitt sé að finna í fjölvítamíninu „Allt í einni“ fyrir konur. „Það er því ákveðin ástæða fyrir því að vít- amínin okkar eru hönnuð og úthugsuð eftir þörf hvors kyns fyrir sig,“ segir Ívar. Hann bendir þó á að sameiginlegur grunnur vít- amínanna sé æði líkur. „Báðar tegundir eru með ríflegum ráðlögðum dagskammti af D-vít- amíni. Þá þurfa karlar auðvitað líka kalk, eins og gefur að skilja, enda mikil- vægt steinefni fyrir líkamann,“ segir Ívar. Helsti kalkgjafi Íslendinga er mjólk en þeir félagar segja orðið algengt að fólk drekki litla sem enga mjólk. „En inntaka kalks er öllum mikilvæg og þar kemur vítamínið okkar í góðar þarfir,“ segja þeir. En af hverju að taka vítamín? „Vitað er að vítamínsskortur getur skert starfshæfni líkamans verulega og auk þess getur hann haft töluverð áhrif á andlega líðan. Mönnum verður þó ekki ljóst að líkamann skortir vítamín fyrr en á reynir. Sá skortur getur lýst sér sem allt frá smávægi legum trufl- unum á líkamsstarfsemi til alvarlegra líkamlegra einkenna,“ segir Arnar og bendir á að vítamínskortur geti einnig valdið þunglyndi og magnað kvíða. „Það að taka eina fjölvítamíntöflu á dag stuðlar því að því að maður sé fær í flestan sjó og í standi til að tak- ast á við daginn. Við höfum sem sagt reynt að hugsa fyrir öllu, hugsað fyrir vellíðan þinni, þó hér sé bara stiklað á stóru,“ segir hann. Allt í einni er sem sagt til í tveimur útgáfum en þær eru í grunnatriðum líkar. „Hjón geta síðan fylgst betur með vítamíntöku hvort ann- ars, sem kemur best í ljós þegar a n n a r a ð i l i n n klárar úr boxi sínu en ek k i hinn. Við mæl- umst til þess að bæði karlar og konur taki fjöl- víta mínin sín reglulega og verði hraust og heil- brigð,“ segir Ívar og bætir við með áherslu: „Og munið: Best er að taka vítamínin með stærstu máltíð dagsins. Þannig nýtast fjörefnin líkam- anum sem allra best.“ Smá fróðleikur um D-vítamín Allt of marga Íslendinga skortir D-vítamín og ná ekki nægjanlegum dagskammti þess svo mánuðum skiptir. D-vítamín er meðal ann- ars mikilvægt líkamanum til að nýta kalk svo að viðhald og uppbygging tanna og beina sé eðlilegt. Skortur á D-vítamíni getur til dæmis leitt til þess að börn fái beinkröm sem lýsir sér þannig að beinin verða lin og barnið hjólbein- ótt eða kiðfætt. Fullorðnir sem þjást af D-vít- amínsskorti fá beinþynningu sem þýðir að beinin verða kalklítil og brothætt. Oft finnur fólk fyrir þessu í baki, mjöðmum og fót- leggjum. D-vítamín er hægt að fá úr sólar- ljósi. Sólin þarf að skína á líkam- ann í u.þ.b. tvo klukkutíma á dag svo líkaminn myndi ráð lagðan dagskammt af D-vítamíni. Það er því augljóst hér á norður- slóðum að öllum Íslendingum er alveg sérstaklega hollt að taka inn D-vítamín frá sept- embermánuði og fram í maí. Eftir sólar lítið sumar eins og við fengum í ár mælum við sérstaklega með háum D-vít- amínskömmtum daglega. Þeir sem eru mikið inni við eins og aldraðir og unga- börn ættu líka alltaf að taka D-vítamín í fæðubótarformi. Það kemur í veg fyrir sjúkdóma og eykur hreysti þeirra. En D- vítamín er ekki bara í sól, það er auðvitað líka að finna í feitum fiski og eggjarauðu. Allt í einni töflu Líkamsræktarfrömuðirnir Arnar Grant og Ívar Guðmundsson hafa sett á markað fjölvítamínin Allt í einni. Tegundirnar eru tvær, önnur hentar konum og hin körlum. ILLGRESI NÝTT OFURFÆÐI Plantan Sea buckthorn, Hippo- phea upp á latínu, inniheldur meira C-vítamín en kíví og meira E-vítamín en sojabaunir. Plantan þyrnótta vex í stórum breiðum við strendur Skotlands og hefur hingað til verið álitin ágengt illgresi þar í landi en nú telja vísindamenn að hún gæti verið næsta ofurfæðið. Frá þessu er greint á fréttasíðunni BBC. Plantan ber skær appelsínugul ber sem eru uppfull af vít- amínum, steinefnum og andoxunarefnum. Vísindamenn við Queen Margaret-háskólann í Edinborg hafa rannsakað plöntuna í fimm ár og vinna nú að því að nýta ber hennar í ýmsan mat. Skotar hafa ekki nýtt berin hingað til þar sem uppskeran reynist erfið, auk þess sem berin eru fremur súr á bragðið. Þau hafa hins vegar verið nokkuð vinsæl í Kína, Noregi, Rússlandi og Frakklandi. Stundum eru þau notuð í safa en einnig er vinsælt þar að setja þau út á morgunkorn eða í eftirrétti. HVAR? Fæst í flestum apótekum, Heilsu- húsinu, Lifandi Markaði, Fjarðarkaup, Systrasamlaginu, Crossfit Reykjavík, Crossfit Hafnarfirði og TRI Suður- landsbraut. GoodnightOriginalSport
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.