Fréttablaðið - 14.09.2013, Side 78
KYNNING − AUGLÝSINGVítamín & bætiefni LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 20134
ÚTRÝMIR SKYRBJÚG
Áður fyrr fengu sjómenn
stundum dularfulla veiki sem
í dag kallast skyrbjúgur og
einkennist af blæðingu í húð,
vöðvum og innri líffærum og gat
leitt til dauða. Læknir einn komst
að því að sjómenn sem borðuðu
sítrónur og appelsínur voru þeir
einu sem sluppu og seinna kom
í ljós að skyrbjúgur er
einkenni C-vítamín-
skorts.
Andoxunar efnið
C-vítamín
tekur þátt
í mörgum
efnahvörfum
líkamans
og virkjar
eitilfrumur
svo að ónæmis-
kerfi líkamans geti
starfað eðlilega.
C-vítamín fæst úr kartöflum,
appelsínum, sítrónum, tómötum,
jarðarberjum og grænu káli.
Afleiðing C-vítamínskorts
er skyrbjúgur. Einkenni eru
lausar tennur, tannholdsbólga,
blóðleysi, þreyta, vöðvaslen,
blæðingar, hægur gróandi sára
og aukin sýkingarhætta.
Heimild: www.vitamin.is
E VERNDAR FRUMURNAR
E-vítamín er andoxunarefni og
ein aðalvörnin gegn sindur-
efnum. E-vítamín hefur verndandi
áhrif á frumuhimnur. Skortur á
E-vítamíni er sjaldgæfur nema ef
fituupptaka er skert. Langvarandi
skortur getur valdið taugavanda-
málum og hefur áhrif á mænu og
úttaugar. Skortseinkenni koma
ekki í ljós fyrr en eftir 5-10 ára
skerta upptöku.
Jurtaolíur, egg, kjöt, gróft mjöl,
lárpera og fleira grænmeti,
hnetur og sojabaunir innihalda
E-vítamín.
E-vítamínskortur er lítt þekktur
hjá fullorðnum og kemur helst
fram í tengslum við sjúkdóma.
Hann er sjaldgæfur hjá börnum
en lýsir sér með vökvasöfnun,
sárum á húð og fækkun rauðra
blóðkorna.
Heimild: www.vitamin.is
SNEFILEFNIN NAUÐSYNLEG
Snefilefni eru samheiti yfir frumefni sem finna má í litlu magni í dýra- og plönturíkinu. Til að geta
flokkast sem snefilefni þarf magn viðkomandi frumefnis að vera minna en 0,01% af heildarmagni
frumefnis lífverunnar. Snefilefnin gegna oft mikilvægu hlutverki fyrir líkamann og getur skortur á þeim
jafnvel leitt til dauða.
Við fáum snefilefni úr fæðunni og eru þau flokkuð í þrjá flokka eftir virkni þeirra og mikilvægi. Mikil-
vægust eru þau frumefni sem leiða til skilgreindra læknisfræðilegra sjúkdómseinkenna sé skortur á
þeim. Meðal þeirra efna eru til dæmis kopar, sink, járn, magnesíum og kalsíum. Önnur frumefni sem
talin eru nauðsynleg líkamanum án þess að hlutverk þeirra sé þekkt eru til dæmis nikkel, tin og arsen.
Að lokum má nefna frumefni sem eru eitruð í of miklu magni. Þar má nefna blý, kadmíum og kvika-
silfur.
Snefilefni má meðal annars finna í fæðutegundum eins og fiski, eggjum, grænu grænmeti, rauðu kjöti,
mjólkurvörum, kornvörum og skelfiski.
Heimild: Vísindavefurinn Snefilefni má meðal
annars finna í fiski.
Ég æfi þríþraut með áherslu á hjólreiðar.
Æfingarnar eru mjög fjölbreyttar að lengd og
gæðum en lengstu æfingarnar eru 6 tímar.
Ég prófaði Nutrilenk Gold fyrir rúmlega ári
og fannst það hjálpa mér mikið. Ýmsar
rannsóknir í ritrýndum alþjóðlegum timaritum
hafa sýnt fram á jákvæða virkni innihalds-
efna sem eru í Nutrilenk án þess að þau séu
skráð sem lyf.
Ég prófaði að hætta að taka inn Nutrilenk
nokkrum mánuðum síðar en byrjaði aftur
og hef tekið Nutrilenk núna í rúmlega hálft
ár og ætla að halda því áfram enda hafa
æfingar og keppnir gengið mjög vel.
Nutrilenk er fáanlegt í flestum apótekum,
heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna
Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is
P
R
E
N
T
U
N
.IS
NUTRILENK
- hollráð við liðkvillum. Náttúruleg bætiefni fyrir liðina
Nutrilenk Gold gerir gæfumuninn
Hákon Hrafn Sigurðsson
Hvað getur Nutrilenk
gert fyrir þig?
Heilbrigður liður
Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir getur
brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna.
Mjög margir finna fyrir óþægindum og verkjum
þegar liðfletirnir núast saman, sérstaklega í liðamó-
tum í mjöðmum , hrygg og hnjám. Þess vegna er til
mikils að vinna að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan
hátt.
Náttúrulegt byggingarefni fyrir
liðbrjóskið og beinin
Nutrilenk Gold er frábært byggingarefni fyrir brjóskvef
og getur minnkað liðverki, brak í liðum og stirðleika.
Inniheldur brjósk úr fiski- og hákarlabeinum sem er
öflugt byggingarefni fyrir bein og brjósk enda ríkt af
kondritíni, kondritín súlfati, kollageni og kalki.
Hentugt fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski
og slitnum liðum
NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgum.
NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög
gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun.
Prófið sjálf - upplifið breytinguna!
Liður með slitnum
brjóskvef
Hákon Hrafn er 39 ára fjölskyldumaður,
Íslandsmeistari í þríþraut síðustu þrjú ár,
þríþrautarmaður ársins og Íslandsmeistari
í tímakeppnihjólreiðum.