Fréttablaðið - 14.09.2013, Page 78

Fréttablaðið - 14.09.2013, Page 78
KYNNING − AUGLÝSINGVítamín & bætiefni LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 20134 ÚTRÝMIR SKYRBJÚG Áður fyrr fengu sjómenn stundum dularfulla veiki sem í dag kallast skyrbjúgur og einkennist af blæðingu í húð, vöðvum og innri líffærum og gat leitt til dauða. Læknir einn komst að því að sjómenn sem borðuðu sítrónur og appelsínur voru þeir einu sem sluppu og seinna kom í ljós að skyrbjúgur er einkenni C-vítamín- skorts. Andoxunar efnið C-vítamín tekur þátt í mörgum efnahvörfum líkamans og virkjar eitilfrumur svo að ónæmis- kerfi líkamans geti starfað eðlilega. C-vítamín fæst úr kartöflum, appelsínum, sítrónum, tómötum, jarðarberjum og grænu káli. Afleiðing C-vítamínskorts er skyrbjúgur. Einkenni eru lausar tennur, tannholdsbólga, blóðleysi, þreyta, vöðvaslen, blæðingar, hægur gróandi sára og aukin sýkingarhætta. Heimild: www.vitamin.is E VERNDAR FRUMURNAR E-vítamín er andoxunarefni og ein aðalvörnin gegn sindur- efnum. E-vítamín hefur verndandi áhrif á frumuhimnur. Skortur á E-vítamíni er sjaldgæfur nema ef fituupptaka er skert. Langvarandi skortur getur valdið taugavanda- málum og hefur áhrif á mænu og úttaugar. Skortseinkenni koma ekki í ljós fyrr en eftir 5-10 ára skerta upptöku. Jurtaolíur, egg, kjöt, gróft mjöl, lárpera og fleira grænmeti, hnetur og sojabaunir innihalda E-vítamín. E-vítamínskortur er lítt þekktur hjá fullorðnum og kemur helst fram í tengslum við sjúkdóma. Hann er sjaldgæfur hjá börnum en lýsir sér með vökvasöfnun, sárum á húð og fækkun rauðra blóðkorna. Heimild: www.vitamin.is SNEFILEFNIN NAUÐSYNLEG Snefilefni eru samheiti yfir frumefni sem finna má í litlu magni í dýra- og plönturíkinu. Til að geta flokkast sem snefilefni þarf magn viðkomandi frumefnis að vera minna en 0,01% af heildarmagni frumefnis lífverunnar. Snefilefnin gegna oft mikilvægu hlutverki fyrir líkamann og getur skortur á þeim jafnvel leitt til dauða. Við fáum snefilefni úr fæðunni og eru þau flokkuð í þrjá flokka eftir virkni þeirra og mikilvægi. Mikil- vægust eru þau frumefni sem leiða til skilgreindra læknisfræðilegra sjúkdómseinkenna sé skortur á þeim. Meðal þeirra efna eru til dæmis kopar, sink, járn, magnesíum og kalsíum. Önnur frumefni sem talin eru nauðsynleg líkamanum án þess að hlutverk þeirra sé þekkt eru til dæmis nikkel, tin og arsen. Að lokum má nefna frumefni sem eru eitruð í of miklu magni. Þar má nefna blý, kadmíum og kvika- silfur. Snefilefni má meðal annars finna í fæðutegundum eins og fiski, eggjum, grænu grænmeti, rauðu kjöti, mjólkurvörum, kornvörum og skelfiski. Heimild: Vísindavefurinn Snefilefni má meðal annars finna í fiski. Ég æfi þríþraut með áherslu á hjólreiðar. Æfingarnar eru mjög fjölbreyttar að lengd og gæðum en lengstu æfingarnar eru 6 tímar. Ég prófaði Nutrilenk Gold fyrir rúmlega ári og fannst það hjálpa mér mikið. Ýmsar rannsóknir í ritrýndum alþjóðlegum timaritum hafa sýnt fram á jákvæða virkni innihalds- efna sem eru í Nutrilenk án þess að þau séu skráð sem lyf. Ég prófaði að hætta að taka inn Nutrilenk nokkrum mánuðum síðar en byrjaði aftur og hef tekið Nutrilenk núna í rúmlega hálft ár og ætla að halda því áfram enda hafa æfingar og keppnir gengið mjög vel. Nutrilenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaðanna Nánari upplýsingar á www.gengurvel.is P R E N T U N .IS NUTRILENK - hollráð við liðkvillum. Náttúruleg bætiefni fyrir liðina Nutrilenk Gold gerir gæfumuninn Hákon Hrafn Sigurðsson Hvað getur Nutrilenk gert fyrir þig? Heilbrigður liður Við mikið álag og eftir því sem árin færast yfir getur brjóskvefurinn rýrnað sem veldur því að liðirnir slitna. Mjög margir finna fyrir óþægindum og verkjum þegar liðfletirnir núast saman, sérstaklega í liðamó- tum í mjöðmum , hrygg og hnjám. Þess vegna er til mikils að vinna að styrkja liðbrjóskið á náttúrulegan hátt. Náttúrulegt byggingarefni fyrir liðbrjóskið og beinin Nutrilenk Gold er frábært byggingarefni fyrir brjóskvef og getur minnkað liðverki, brak í liðum og stirðleika. Inniheldur brjósk úr fiski- og hákarlabeinum sem er öflugt byggingarefni fyrir bein og brjósk enda ríkt af kondritíni, kondritín súlfati, kollageni og kalki. Hentugt fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski og slitnum liðum NutriLenk hefur hjálpað fjölmörgum. NutriLenk er 100% náttúruleg vara sem er mjög gagnleg þeim sem þjást af brjóskvefsrýrnun. Prófið sjálf - upplifið breytinguna! Liður með slitnum brjóskvef Hákon Hrafn er 39 ára fjölskyldumaður, Íslandsmeistari í þríþraut síðustu þrjú ár, þríþrautarmaður ársins og Íslandsmeistari í tímakeppnihjólreiðum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.