Fréttablaðið - 14.09.2013, Blaðsíða 79
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2013 3Orkuhúsið tíu ára ●
Sjúkraþjálfun Íslands er með starfsemi á
tveimur hæðum í Orkuhúsinu. Þar starfa
26 sjúkraþjálfarar með áralanga reynslu.
Sjúkraþjálfararnir hafa fjöl breyttan
bakgrunn og eru sérhæfðir í mismunandi
vandamálum. Alls voru 45 þúsund
komur til fyrirtækisins á sl. ári og er
heildstæð þjónusta sem boðið er upp á í
Orkuhúsinu viðskiptavinum SÍ mikilvæg.
Sjúkraþjálfarar Sjúkraþjálfunar Íslands í Orkuhúsinu sinna allri hefðbundinni sjúkraþjálfun en hafa þó sérhæft sig í
bakvandamálum, íþróttameiðslum, sogæða-
nuddi og endurhæfingu eftir axlar- eða hné-
aðgerð. Margir sjúkraþjálfaranna hafa leyfi
frá Landlækni til að nota nálastungur í með-
ferðum sínum. Þá er boðið upp á þrekmæl-
ingar t.d. mjólkursýrumælingar.
„Sjúkraþjálfarar okkar eru 26 talsins,
meðalstarfsaldur þeirra er tólf ár og því
töluverð reynsla sem býr í hópnum,“ segir
Ólafur Þór Guðbjörnsson, sjúkraþjálfari og
framkvæmdastjóri Sjúkraþjálfunar Íslands.
Sjúkraþjálfarar SÍ hafa mismunandi bak-
grunn. „Margir hafa útskrifast á Íslandi en
hjá okkur starfar einnig fólk sem hefur út-
skrifast frá skólum í Ástralíu, Þýskalandi, Sví-
þjóð, Hollandi og Noregi. Margir eru einnig
með talsvert framhaldsnám á bakinu, og
þá eru tveir að vinna að mastersverkefnum
sínum og aðrir tveir að doktorsverkefnum,“
lýsir Ólafur. Hann bendir á að sjúkraþjálf-
arar SÍ hafi ekki aðeins fjölbreyttan mennt-
unargrunn og sérhæfingu heldur séu þeir í
góðum tengslum við íslenska íþróttahreyfingu
og starfi með mörgum félagsliðum og lands-
liðum Íslands.
Flestir sem leita eftir þjónustu SÍ eiga við
einhvers konar stoðkerfisvanda að stríða og
koma oft í kjölfar aðgerða, slysa eða álags-
tengdra einkenna. „Um fjörutíu og fimm
prósent af tilvísunum koma innanhúss, frá
læknum Orkuhússins, en aðrar til vísanir
koma frá heilsugæslu og víðar að,“ segir
Ólafur. Vandamálin eru vissulega af mismun-
andi toga en með sérhæfingu sjúkraþjálfar-
anna verður meðferðin skilvirkari og árang-
ursríkari fyrir viðskiptavini þar sem þeim er
vísað á þann þjálfara sem sérhæfir sig í því
vandamáli sem hrjáir viðkomandi.
ÖLL ÞJÓNUSTA Á EINUM STAÐ
Aðstaða Sjúkraþjálfunar Íslands í Orkuhús-
inu er mjög góð að sögn Ólafs. „Hver sjúkra-
þjálfari er með sitt eigið herbergi til að með-
höndla og auk þess er hér gott sameiginlegt
rými og vel útbúinn tækjasalur,“ lýsir Ólafur
en móttaka og starfsemi SÍ er á annarri hæð
Orkuhússins og á þriðju hæð er æfingasalur-
inn ásamt vinnuaðstöðu sjúkraþjálfaranna.
Ólafur er afar ánægður með það starf sem
fram fer í Orkuhúsinu. „Sú samvinna sem
er milli fyrirtækjanna í húsinu er viðskipta-
vinum okkar til mikilla hagsbóta.“ Í Orkuhús-
inu eru, auk SÍ, Læknastöðin, Röntgen, Fótaað-
gerðastofa Helgu Ínu og verslunin Flexor, auk
þess sem stoðtækjafræðingar á vegum Stoðar
eru með móttöku í Orkuhúsinu fjóra daga
vikunnar. „Með þessum hætti fáum við víð-
tækari sýn á vandamálin og getum leyst þau
með skilvirkari hætti,“ útskýrir hann. Ólafur
tekur dæmi um viðskiptavin sem fer í kross-
bandsaðgerð á skurðstofu og þarf á sjúkra-
þjálfun að halda í framhaldinu. „Þá getum
við hitt viðskiptavin okkar strax í vöknun,
hitt lækninn sem framkvæmdi aðgerðina
og fengið hjá honum útlistun á meiðslum og
aðgerð. Þá förum við yfir það með einstak-
lingnum hvað sé fram undan í þjálfuninni.
Síðan getum við fylgt honum eftir þar til hann
nær bata,“ lýsir hann.
SÍ er með útibú í Heilsuborg og getur því
fylgt viðskiptavininum eftir enn lengur en
áður. „Með því getum við komið fólki í áfram-
haldandi þjálfun undir leiðsögn sjúkraþjálf-
ara þegar meðferð lýkur í Orkuhúsinu. Þannig
getum við fylgt viðkomandi betur eftir svo að
hann geti gert þjálfun að hluta af sínu dag-
lega lífi,“ segir hann og bætir við að það skipti
sjúkraþjálfara SÍ miklu máli að skila fólki vel
frá sér.
16 ÁRA FARSÆL SAGA
Sjúkraþjálfun Íslands var stofnuð árið 1996.
Hún var smá í sniðum í upphafi en stækkaði
mikið við samruna tveggja stofa árið 1998.
„Fyrst um sinn vorum við með starfsemi í
Fellsmúla. Árið 2001 eignaðist fyrir tækið
stofu í Hafnarhúsinu og á svipuðum tíma opn-
aði það aðra stofu í Álftamýri en þá í sam-
starfi við hóp bæklunarlækna, röntgenlækna
og stoðtækjafræðinga,“ lýsir Ólafur. Þegar
starfsemin í Álftamýri sprengdi utan af sér
húsnæðið árið 2003 flutti SÍ ásamt öðrum
samstarfsaðilum úr Álftamýrinni í húsnæði
að Suðurlandsbraut 34 og til varð Orku húsið.
„Þá sameinuðum við stofurnar í Fellsmúla,
Hafnarhúsinu og Álftamýri í eina stofu í
Orkuhúsinu þar sem við erum enn, tíu árum
síðar,“ segir Ólafur.
Nánari upplýsingar um Sjúkraþjálfun
Íslands má finna á www.sjukratjalfun.is
og á Facebook.
Sérhæfðir sjúkraþjálfarar
Ólafur aðstoðar einn af viðskiptavinum sínum í æfingasal Sjúkraþjálfunar Íslands í Orkuhúsinu. MYND/GVA
Mikið er lagt upp úr
persónulegri og notalegri
þjónustu hjá röntgendeild
Orkuhússins. Þjónusta
deildarinnar er skjót og góð
og fólk kemst yfirleitt strax
að. Í dag sinnir deildin einnig
myndgreiningarþjónustu utan
Orkuhússins.
Röntgendeildin hóf rekstur árið
1999 og hefur lengst af verið í eigu
Arnar Thorstensen og Einfríðar
Árnadóttur. Fyrir rúmlega ári
bættist svo Arnþór Guðjónsson í
hópinn og er deildin í dag í eigu
þriggja röntgenlækna. Fyrstu
þrjú árin fór starfsemin fram í
Álftamýri í Reykjavík. Árið 2003
flutti deildin ásamt samstarfsað-
ilum frá Álftamýri á Suðurlands-
braut 34 og Orkuhúsið varð til.
Síðan þá hefur deildin eflst mikið
og umsvifin aukist. Örn segir að
á þessum árum hafi tækjakostur
deildarinnar batnað samfara aukn-
um umsvifum. „Í dag ráðum við
yfir góðum tækjakosti, til dæmis
röntgentækjum, ómtæki, tölvu-
sneiðmyndatæki og tveimur segul-
ómtækjum, annað er með sterkt
segulsvið og hitt með veikt segul-
svið, sem bæði eru sniðin til út-
limarannsókna.“
GÓÐ ÞJÓNUSTA OG NOTALEGT
UMHVERFI
Mikið er gert til að veita sem besta
þjónustu. „Fólk kemst yfirleitt
strax að hjá okkur eða að minnsta
kosti mjög fljótlega. Við leggjum
líka áherslu á að læknar fái niður-
stöður eins fljótt og hægt er og
samstundis sé það nauðsynlegt,“
segir Einfríður.
Starfsfólk deildarinnar legg-
ur mikinn metnað í að búa við-
skiptavinum vinsamlegt umhverfi.
Stór þáttur í velferð viðskipta-
vinanna er aðkoman. Bið stofan
er rúmgóð, björt og aðlaðandi
og stórir gluggar opna útsýni í
fallegan garð. Á biðstofunni er af-
þreyingar efni, til dæmis nýjustu
tímaritin, leiksvæði fyrir börn,
kaffi á könnunni og þráðlaust net-
samband. Á biðstofunni er einnig
stórt sjónvarp þar sem ýmislegt
fræðsluefni um starfsemi deildar-
innar er sýnt auk þess sem ýmis-
legt skemmtiefni er á boðstólum
að sögn Arnar. „Stundum sitja við-
skiptavinir hlæjandi frammi þegar
við köllum þá inn og þegar stærri
viðburðir eru sýndir í sjónvarp-
inu, eins og til dæmis landsleikur
í fótbolta, myndast oft góð stemn-
ing. Eftir rannsóknirnar hefur fólk
sest aftur og klárað það sem það
var að horfa á.“
SÍVAXANDI STARFSSEMI
Arnþór segir að upphaflega hafi
deildin eingöngu þjónað bækl-
unarlæknum í Orkuhúsinu en nú
sé það breytt. „Í dag er almenn
myndgreiningarþjónusta deild-
arinnar utan Orkuhússins orðinn
stærri þáttur og fer sífellt vax-
andi. Þar er um að ræða heimilis-
lækna og aðra sérfræðinga, mest
á höfuðborgarsvæðinu, en einnig
utan af landi. Einnig þjónum við
Heilbrigðisstofnun Vestmanna-
eyja enda er þetta allt rafrænt
í dag. Við þurfum ekki að vera á
sama stað og tækin sjálf, heldur er
hægt að senda rannsóknir rafrænt
og greiningarvinnan getur þá farið
fram annars staðar.“
Sérsvið deildarinnar er sjúk-
dómar í stoðkerfi en hún fram-
kvæmir í raun allar hefð bundnar
myndgreiningarrannsóknir að
sögn Arnar. „Þetta gengur þannig
fyrir sig að fólk hittir lækninn
sinn sem sendir beiðni til okkar,
yfirleitt rafrænt. Við hringjum svo
í fólk og gefum tíma í viðkomandi
rannsókn eða þá að fólk kemur
beint til okkar. Við framkvæm-
um rannsóknirnar og sendum
svörin til læknanna. Þessi svör
eru einnig send rafrænt þannig
að læknirinn fær svarið án tafar.
Einnig getum við faxað eða sent
svarið sé þess óskað. Margir halda
að rannsóknin sé send til viðkom-
andi læknis en við á röntgendeild-
inni sjáum um myndgreininguna.
Þó er það þannig að læknar geta
fengið beinan aðgang að rann-
sóknum sjúklinga sinna hjá okkur.
Það getur einnig verið mjög gagn-
legt.“ Í dag starfa þrír læknar í
fullu starfi hjá deildinni og einn í
hálfu starfi. Auk þeirra starfa sex
geislafræðingar þar og þrír mót-
tökuritarar. Öll þjónusta læknarit-
unar er á hendi Læknaritunar ehf.
Allar nánari upplýsingar má
finna á www.rontgen.is.
Skjót og góð þjónusta í notalegu umhverfi
SJÚKRAÞJÁLFUN ÍSLANDS
RÖNTGENDEILD ORKUHÚSSINS Eigendur Röntgendeildar Orkuhússins,
frá vinstri, Örn Thorstensen, Einfríður
Árnadóttir og Arnþór Guðjónsson.
MYND/GVA