Fréttablaðið - 14.09.2013, Page 118
14. september 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 78
„Við erum á fullu að vinna í því að breyta
bílastæðakjallar anum um þessar mundir,“ segir Hildur
Gunnlaugsdóttir, arkítekt og umhverfisfræðingur hjá
umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Hún
er einn af skipuleggjendum hjólaskauta diskós í bíla-
kjallara Ráðhússins. Viðburðurinn fer fram þann 20.
september næstkomandi á milli klukkan 17 og 20.
„Þetta verður ofboðslega skemmtilegt. Þarna verð-
ur plötusnúður, Roller Derby-félag Íslands, sem koma
einnig að skipulagningunni, og nemendur úr Lista-
háskólanum ætla að setja upp diskókúlur og fleira,“
segir Hildur.
Í fyrra var fjórum bílastæðahúsum borgarinnar
breytt í stofu, bíósal, útsýnispall og hjólaskauta diskó
og gaf hið síðastnefnda góða raun.
„Hjólaskautadiskóið í fyrra var samt ekki jafn veg-
legt og það sem við sjáum fyrir okkur í ár,“ segir Hildur,
létt í bragði. En það eru nemendur sem útskrifuðust úr
arkítektúr úr Listaháskóla Íslands sem sjá um umgjörð
og hönnun diskósins.
Uppátækið er kostað af Bílastæðasjóði. „Þeir eru
hressir hjá Bílastæðasjóði. Það er auðvitað þeirra hags-
munamál að fólki átti sig á því hvar bílastæðahúsin eru,
enda oft illa nýtt. Við hjá Reykjavíkurborg sem önn-
umst skipu lagninguna viljum líka að fólk gerir sér betur
grein fyrir því hvað einkabíllinn tekur mikið pláss. Það
er hægt að breyta bílastæða kjallara í heilt diskó!“ segir
Hildur að lokum og bætir við: „Við ætlum líka að biðja
fólk sem á hjólaskauta og vill gefa þá eða losa sig við þá
að koma með þá í þjónustuverið hjá okkur í Borgartúni
12-14 eða í móttökuna í Ráðhúsinu.“ olof@frettabladid.is
Hjólaskautadiskó
haldið í Ráðhúsinu
Bílastæðakjallara Ráðhússins breytt í hjólaskautadiskó í september.
„Þegar ég vinn með
konum sem eru
venjulegar, ekki fyrir-
sætur, og fer með þær í
fataverslanir, þá virðist
ekki vera hægt að fá
jafn flott föt í stærðum
12 og upp úr. Hversu
fáránlegt er það?“
STJÖRNUSTÍLISTINN TIM
GUNN HNEYKSLAÐIST
YFIR ÞVÍ AÐ KONUR SEM
NOTA FATASTÆRÐ 12 OG
YFIR EIGA ERFIÐARA MEÐ
AÐ FINNA SÉR FALLEGAR
FLÍKUR Í VIÐTALI VIÐ
HUFFINGTON POST.
SKIPULEGGUR DISKÓ
Hildur Gunnlaugsdóttir
er einn skipuleggjenda
hjólaskauta diskósins í ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AF DISKÓ-
INU Í FYRRA
Hjólaskauta-
diskóið kemur
til með að
vera veglegra í
ár en í fyrra.
MYND/ANTON
SVANUR GUÐ-
MUNDSSON
Á fimmtíu ára afmælistónleikum
Hljóma í Hörpu 5. október koma
Hljómar saman í fyrsta skipti
eftir að Rúnar Júlíusson féll frá.
„Rúnar var svo stór partur af
hljómsveitinni, þetta á eftir að
vera mjög skrítið og erfitt,“ segir
Gunnar Þórðarson, tónskáld og
meðlimur Hljóma, um fyrstu tón-
leikana án Rúnars. „Þetta verður
líklega í síðasta skiptið sem við
komum saman.“
Hljómar frá Keflavík eru ein
vinsælasta hljómsveit Íslands-
sögunnar. Fimmta október verða
liðin nákvæmlega fimmtíu ár
síðan þeir stigu fyrst á svið. Það
var í samkomuhúsinu Krossinum í
Njarðvík 1963. „Ég man lítið eftir
fyrstu tónleikunum en Ólafur,
maðurinn sem sá um samkomu-
húsið lánaði okkur fyrir hljóð-
færunum og við spiluðum upp í
þau,“ segir Gunnar.
Meðlimir Hljóma munu spila
nokkur lög á tónleikunum í Eld-
borgarsal Hörpu en Júlíus Freyr
Guðmundsson, sonur Rúnars, mun
einnig koma fram með þeim. Við-
burðafyrirtækið Dægurflugan
stendur á bak við tónleikana.
-glp
Mjög skrítið og erfi tt
að spila án Rúna Júl
Hljómar koma fram í fyrsta og líklega síðasta sinn
án Rúnars Júlíussonar á 50 ára afmælistónleikum.
HLJÓMAR Í HÁLFA ÖLD Gunnar Þórðarson kemur fram með Hljómum á tónleikunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÖRLYGSMYND
Í HÁSKÓBÍÓI
Heimildamynd Garðars Arnar Arnars-
sonar um körfuboltamanninn Örlyg
Aron Sturluson var tekin til almennra
sýninga í Háskólabíói í gær. Sýningar
standa yfir fram á mánudag og munu
10% af hverjum seldum miða renna
í Minningarsjóð Ölla, sem
hefur það að markmiði að
styrkja börn sem minna
mega sín á Íslandi til
íþróttaiðkunar. Hinn
stórefnilegi Örlygur var
aðeins átján ára þegar
hann lést af slysförum
árið 2000, daginn eftir að
hann spilaði í stjörnuleik
Körfuknattleikssambands
Íslands. - fb
GLÆNÝTT LAG FRÁ
EYÞÓRI INGA
Eyþór Ingi vinnur nú, ásamt hljóm-
sveit sinni, hörðum höndum að því
að klára plötu sem kemur
út á næstu mánuðum.
Fyrsta smáskífulagið
af henni, Hárin rísa,
kemur út í vikunni.
Eyþór Ingi og hljóm-
sveit hans hafa eytt
miklum tíma í hljóð-
verinu Geimsteini
í Keflavík þar sem
upptökur hafa farið
fram undir stjórn
Stefáns Arnar
Gunnlaugssonar.
- fb
LÍFLEGT Á OKTÓBERFEST
Hið árlega Októberfest hófst á fimmtu-
daginn og kemur til með að standa
fram til kvöldsins í kvöld. Margir hafa
lagt leið sína á hátíðina, enda mikið um
dýrðir. Þá tróðu upp í opnunarpartíinu
hljómsveitirnar Dikta, Mammút, Kaleo,
1860, Einar Lövdahl og Snorri Helgason.
Meðal gesta hátíðarinnar voru
María Rut Kristinsdóttir,
formaður Stúdentaráðs,
Halldór Eldjárn og Agnes
Björt Andradóttir í Sykri,
Orri Freyr á X-inu, og
Benedikt Vals-
son og Fannar
Sveinsson í Hrað-
fréttum. - ósk
P
O
K
A
H
O
R
N
DAGUR ÍSLENSKRAR NÁTTÚRU
Kæru landsmenn
Til hamingju með Dag íslenskrar náttúru
mánudaginn 16. september.
Megi dagurinn verða okkur öllum ánægjulegur og góður til að fagna
og njóta fegurðar og gjafa íslenskrar náttúru.
Upplýsingar um dagskrá er að finna á www.umhverfisraduneyti.is