Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 47
Vegna skipulagsbreytinga óskar Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
eftir að ráða í störf deildarstjóra á skrifstofu sviðsins
Upplýsingar veita:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Inga Steinunn Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og
með 2. febrúar 2014.
Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi Reykjavíkurborgar og
viðkomandi stéttarfélags. Um er að
ræða fullt starf og þarf viðkomandi
að geta hafið störf sem fyrst.
Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkur-
borgar um að jafna hlut kynja í
störfum og að vinnustaðir borgar-
innar endurspegli það margbreyti-
lega samfélag sem borgin er.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar fer með ábyrgð á velferðarþjónustu borgarinnar, þ.m.t. almennri félagsþjónustu og sértækri
þjónustu við fatlað fólk, aldraða og börn. Í því felst stefnumótun í velferðarmálum, áætlanagerð, samþætting velferðarþjónustu,
eftirlit í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri, þróun nýrra úrræða og gerð
þjónustusamninga við þriðja aðila. Framkvæmd velferðarþjónustu fer fram á sex þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar og
hjá Barnavernd Reykjavíkur.
Á Velferðarsviði starfa rúmlega 2.000 starfsmenn á um 100 starfseiningum í borginni, sem margar veita þjónustu allan
sólarhringinn. Velferðarsvið þjónustar um 20.000 einstaklinga á ári og eru áætluð útgjöld sviðsins árið 2013 um 21 milljarður króna.
Velferðarsvið starfar með velferðarráði og barnaverndarnefnd.
Nánari upplýsingar um starfsemi Velferðarsviðs má sjá á vef Reykjavíkurborgar; www.reykjavik.is
Deildarstjóri stuðningsþjónustu
Deildarstjóri húsnæðis og búsetu
Deildarstjóri heimaþjónustu
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar
• Ábyrgð á starfsmannahaldi og fyrirkomulagi starfa á deildinni
• Ábyrgð á faglegu starfi, vinnubrögðum, uppbyggingu og skipulagi
sinnar deildar
• Samstarf og samvinna við þjónustueiningar og aðrar skrifstofur á
Velferðarsviði sem tengjast starfsemi deildarinnar
• Þróun stuðningsþjónustu
• Þróun notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar
• Áætlunargerð vegna þjónustuþátta
• Innleiðing hugmyndafræði um sjálfstætt líf í þjónustu við fatlað fólk
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis-
eða menntavísinda
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
• Haldgóð reynsla af stjórnun
• Yfirgripsmikil reynsla af málaflokknum
• Þekking og reynsla af málaflokki fatlaðs fólks æskileg
• Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
• Skipulags- og forystuhæfileikar
• Framúrskarandi lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar
• Ábyrgð á starfsmannahaldi og fyrirkomulagi starfa á deildinni
• Ábyrgð á faglegu starfi, vinnubrögðum, uppbyggingu og
skipulagi sinnar deildar
• Samstarf og samvinna við þjónustueiningar og aðrar skrifstofur
á Velferðarsviði sem tengjast starfsemi deildarinnar
• Þarfagreining og kortlagning þjónustuþátta deildarinnar
• Stýring úthlutunarteyma og úthlutunar í almennt félagslegt
leiguhúsnæði, þjónustuíbúðir og sértækt húsnæði
• Þróun búsetuáætlunar í sértækum húsnæðisúrræðum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði félags- eða menntavísinda
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
• Haldgóð reynsla af stjórnun
• Yfirgripsmikil reynsla af málaflokkum velferðarþjónustu
• Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
• Skipulags- og forystuhæfileikar
• Framúrskarandi lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á daglegum rekstri deildarinnar
• Ábyrgð á starfsmannahaldi og fyrirkomulagi starfa á deildinni
• Ábyrgð á faglegu starfi, vinnubrögðum, uppbyggingu og
skipulagi sinnar deildar
• Samstarf og samvinna við þjónustueiningar og aðrar skrifstofur á
Velferðarsviði sem tengjast starfsemi deildarinnar
• Áætlanagerð vegna þjónustuþátta
• Þróun félagslegrar heimaþjónustu og heimahjúkrunar
• Umsjón með framkvæmd sameiningu heimaþjónustu út í hverfi
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði heilbrigðis- eða félagsvísinda
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi
• Haldgóð reynsla af stjórnun
• Yfirgripsmikil reynsla af málaflokkum velferðarþjónustu
• Þekking á opinberri stjórnsýslu æskileg
• Skipulags- og forystuhæfileikar
• Framúrskarandi lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
• Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Skrifstofa Þjónustu heim ber ábyrgð á samhæfingu einstaklingsbundinnar þjónustu sem
veitt er á heimilum einstaklinga sem og þjónustu sem styður við búsetu á eigin heimilum,
í samvinnu við þjónustueiningar. Ber ábyrgð á að þróun sé í takti við þarfir notenda með
virku notendasamráði og í samræmi við bestu þekkingu hverju sinni með virku samstarfi við
sérfræðinga innan og utan sviðsins.
Skrifstofa Þjónustu heim