Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 38
FÓLK|HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Mér finnst stundum enn eins og Sjonni hafi rétt skroppið frá og komi
aftur til baka. Fráfall hans er
óraunverulegt og ég efa að svo
óvæntur missir verði nokkurn
tímann raunverulegur,“ segir
Þórunn, sem í gær átti dýrmæta
stund með vinum og fjölskyldu
Sigurjóns Brink. Þá voru liðin þrjú
ár síðan Sjonni féll frá.
„Við hittumst í kirkjugarðinum,
gengum saman að leiðinu hans
Sjonna, kveiktum á kertum og
sungum lögin hans saman. Það
var falleg stund og gott að vera
saman á þessum degi.“
Þórunn segir tímann ekki
lækna sárin heldur geri það bæri-
legra að lifa með þau.
„Ég sakna Sjonna á hverjum
degi og þessi þrjú ár síðan hann
dó hafa auðvitað verið virkilega
erfið. Höggið var stórt og verður
ekkert auðveldara eða minna.
Það er verkefni þeirra sem lenda
í stórum missi að læra að lifa upp
á nýtt og það eru forréttindi að fá
að lifa og fylgjast með börnunum
sínum alast upp. Stundum á mað-
ur kannski erfitt með að sjá það
en það er svo óskaplega margt
fallegt í lífinu, eins og börnin hans
Sjonna sem blómstra öll fjögur og
eru ótrúlega sterkar og fallegar
mannverur.“
KYNNTIST ÁSTINNI AFTUR
Þórunn er í stjórn Ljónshjarta,
nýrra samtaka fyrir ungar ekkjur
og ekkla.
„Ég hef reynt að miðla af
reynslu minni og hef þörf fyrir að
tala við aðra sem eiga sameigin-
lega lífsreynslu. Samtökin eru
mikilvæg fyrir margar sakir, með-
al annars vegna þess að að vissu
leyti fer það mikið eftir því hvort
fráfall á sér langan aðdraganda
eða ber snöggt að hversu sterkt
netið er sem grípur syrgjendur.
Þetta þarf að laga, bæði fyrir eftir-
lifandi maka og börn. Það skiptir
sköpum að geta leitað í reynslu
annarra og yfirleitt er það svo að
báðir aðilar hjálpa hvor öðrum;
hvort sem þeir eru komnir stutt
eða lengra á veg í sorginni.“
Þórunn segir undarleg spor
að vera ung ekkja og standa eftir
með lítil börn.
„Börn eru ótrúlega dugleg og
með mikla aðlögunarhæfni. Þau
taka sorgina út í tímabilum og
öðruvísi en fullorðnir.“
Hún segir fjölbreytta verkefna-
vinnu við leik og söng hafa hjálp-
að sér mikið í sorginni. Þar hafi
skipt sköpum að hafa tækifæri
til að skapa, hafa eitthvað fyrir
stafni og eitthvað til að hlakka til
í vinnu.
„Mamma mín, fjölskylda og
vinir hjálpuðu mér líka mikið og
það að kynnast ástinni aftur. Kær-
astinn minn, Arne Friðrik Karls-
son, er yndislegur maður og hann
og dætur hans hafa tekið sonum
mínum opnum örmum og reynst
þeim óskaplega vel. Það að hafa
hann í lífi okkar hefur gert það að
verkum að við höfum aftur fundið
fegurð og gleði, til dæmis í hvers-
dagsleikanum. Hversdagsleikinn
verður nefnilega svo erfiður við
svona missi. Ég er samt að sumu
leyti eins og tvær manneskjur;
önnur er sorgmædd en hin lífs-
glöð og nýtur lífsins. Ég veit að
margir eiga erfitt með að leyfa sér
að verða ástfangnir á ný eða sjá
hið góða í lífinu eftir áföll, en það
er ekki annað í stöðunni en að
leyfa sér að lifa áfram og reyna að
njóta lífsins á meðan maður fær
það og getur.“
„ÞAÐ HEFÐI SJONNI VILJAГ
Þórunn segir sára lífsreynsluna
hafa breytt sér.
„Þeir sem lenda í miklum missi
syrgja á margan hátt sjálfan sig í
leiðinni; þá grunlausu manneskju
sem þeir voru áður en þeir vissu
hve lífið yrði sárt. Þeir sakna
áhyggjuleysis, hæfilegs kæru-
leysis og barnslegrar einlægni
sem hverfur við áfallið. Þá verður
það svo áþreifanlegt að allt getur
horfið á augabragði.“
Sjonni lést af völdum heilablóð-
falls að kvöldi 17. janúar 2011 og
var einn heima með tveggja og
fimm ára gömlum sonum þeirra
Þórunnar. Eldri sonurinn hringdi
þá í sjúkrabíl.
„Börn leyna á sér og búa oft
yfir ótrúlegum styrk. Ég hafði
kennt syni okkar símanúmer
Neyðarlínunnar og hann hafði
séð mig bregðast við þegar bróðir
hans datt eitt sinn á höfuðið. Það
sagðist hann hafa munað þegar
hann hringdi og stóð sig eins og
hetja, aðeins fimm ára gamall.“
Þórunn nýtir frítímann vel með
sonum sínum.
„Mér finnst að þegar maður
á lítil börn eigi maður að gefa
þeim þann frítíma sem maður
getur. Þau eiga skilið að upp-
lifa og eignast góðar minningar.
Við förum í bíó, leikhús, sund og
fleira skemmtilegt og á föstudags-
kvöldum er heilög kósístund með
bíómynd og poppkorni heima.“
Í dag keppir átta ára sonur
þeirra Þórunnar og Sjonna í fyrsta
sinn í hópfimleikum og á morgun
keppir sá yngri í fótbolta í fyrsta
sinn.
„Þetta verður helgi þar sem
fjölskyldan nýtur þess að vera
saman og fylgja börnunum eftir
í áhugamálum sínum,“ segir Þór-
unn full tilhlökkunar.
Í komandi forkeppni Eurovisi-
on á Þórunn texta við lag Vignis
Snæs Vigfússonar.
„Eftir að Sjonni dó hef ég í
auknum mæli farið að semja lög
meðfram textasmíðum og syngja
sjálf, en ég gaf út lagið Days Gone
By á dánardægri hans í fyrra. Það
er gullmoli sem fannst í tölvunni
hans, líklega síðasta lagið sem
Sjonni samdi. Í vor lýk ég svo
söngnámi við Complete Vocal
Institute í Kaupmannahöfn og hef
uppgötvað alveg nýja hlið á mér
í söngnum. Fyrst og fremst er ég
þó leikkona og fæ vonandi að tak-
ast áfram á við störf í leikhúsi og
kvikmyndum í framtíðinni,“ segir
Þórunn sem er einnig með 90‘s
þáttinn Algjört möst á Bylgjunni á
fimmtudagskvöldum þar sem hún
spilar vel valdar perlur frá tíunda
áratugnum og fær til sín skemmti-
lega gesti.
„Í minningu Sjonna hvet ég fólk
til að nota tækifærið og hlusta á
tónlistina hans. Það hefði Sjonni
viljað.“ ■ thordis@365.is
GÓÐAR MINNINGAR
HELGIN Leikkonan Þórunn Erna Clausen hefur þurft að læra að lifa upp á nýtt
eftir að eiginmaður hennar, Sigurjón Brink, féll frá fyrir þremur árum.
www.fi.is
Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | S: 568 2533 | www.fi.is
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Toppaðu öræ
fatindana
Alla leið!
Skráðu þig in
n – drífðu þig
út
Alla leið! Toppaðu öræfatindana með FÍ
Ferðafélag Íslands býður nú upp á metnaðarfulla æfingaráætlun
sem byrjar í febrúar og endar á því að ganga á Hvannadalshnúk
eða Hrútsfjallstinda í lok maí eða byrjun júní.
Akrafjall, Móskarðahnjúkar, Hekla, Fimmvörðuháls,
Hvannadalshnjúkur eða Hrútfjallstindar og átta önnur fjöll.
Tólf fjallgöngur, sex æfingatímar í Elliðaárdalnum og ganga á
annaðhvort Hvannadalshnjúk eða Hrútsfjallstinda.
Tveir mögulegir tindar í lokin og tvær helgar til að velja til að toppa.
Kynningarfundur í sal Ferðafélags Íslands í Mörkinni 6
kl. 20.00, 3. febrúar n.k.
Sjá nánar um „Alla leið“ á www.fi.is
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
TILHLÖKKUN
Um helgina
taka synir
Þórunnar þátt
í sínum fyrstu
íþróttamótum
og Þórunn
hlakkar mikið til
að fylgjast með.
MYND/VILHELM
WWW.FASHIONACADEMY.IS - INFO@FASHIONACADEMY.IS - 571 5151 - ÁRMÚLI 21
SKRÁNING OG NÁNARI UPPLÝSINGAR
NÆSTU NÁMSKEIÐ HEFJAST 20. JANÚAR
NEMENDUR KOMA AÐ SKAPANDI VERKEFNUM M.A. REYKJAVIK FASHION FESTIVAL
FÖRÐUNARNÁMSKEIÐ STÍL ISTANÁM
OPIÐ HÚS
LAUGARDAGINN 18. JANÚAR MILLI 14 OG 16
FÖRÐUNARRÁÐGJÖF,
KYNNING Á NÁMI
15% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
MAKE UP FOREVER VÖRUM
ERUM AÐ LEITA AÐ
FÓLKI Á ÖLLUM ALDRI Á
CASTINGSKRÁ ELITE
HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG