Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 86
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 50
„Þetta eru bæði skúlptúrar og
teikningar og ég er líka með
verk í glugganum, sem liggur í
hinu hárfína bili milli listheims-
ins og verslunargötunnar. Gegn-
umgangandi þráður í sýningunni
eru mörk eða tálmar sem minna á
kort eða hnit enda heitir sýningin
H N I T,“ segir Haraldur Jónsson
myndlistarmaður um verk á sýn-
ingu sem hann opnar í dag í Hafn-
arborg í Hafnarfirði, nánar til-
tekið í Sverrissal á neðri hæðinni.
Hann segir hnitin vísa í margar
áttir, til dæmis í kortlagningu á
lífi og tilfinningum sem líkst geti
völundarhúsi, og sömuleiðis hug-
takinu að fara „yfir strikið“, inn
í persónulegt rými annars í ein-
hverjum skilningi.
H N I T er fyrsta einkasýning
Haraldar í nokkurn tíma en hann
er á meðal þeirra sem sett hafa
svip sinn á íslenskt listalíf um ára-
bil. Hefur og haldið fjölda sýninga
um víða veröld.
Samhliða þessari sýningu kemur
út bókverkið H O L D, sjálfstætt
listaverk sem endurspeglar hug-
myndir sýningarinnar. Að útgáfu
bókverksins koma, auk Hafnar-
borgar, bókaútgáfan Útúrdúr og
hönnuðurinn Ármann Agnarsson.
Á morgun, 19. janúar klukkan 15
tekur Haraldur þátt í leiðsögn um
sýninguna og ræðir við gesti um
verk sín. gun@frettabladid.is
Lífi ð getur líkst völundarhúsi
Haraldur Jónsson opnar sýningu á nýjum verkum í Sverrissal Hafnarborgar í dag
klukkan 15. Titill hennar, H N I T, liggur eins og leiðarstef gegnum hana.
MYNDLISTARMAÐURINN Haraldur
við uppsetningu á verkum sínum í
Hafnarborg. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þetta er saga um mann sem
óverðskuldað fer illa út úr skiln-
aði. Hann er örvæntingarfullur og
sýn hans á lífið er orðin svo dökk
að honum finnst mannlífið vera
ein samfelld slysagildra,“ segir
Steinunn Sigurðardóttir rithöfund-
ur um efni leikritsins Slysagildran,
sem Útvarpsleikhúsið flytur á
morgun klukkan 13. Síðan kemur
aðeins lengri útgáfa: „Ungi maður-
inn kemur að torkennilegum stað.
Þar er dyravörðurinn Petra sem
reynir að ráðskast með hann og
gera upp gamlar syndir, segir hann
meðal annars hafa yfirgefið börn-
in sín. Hann bregst ókvæða við því
hans hlið á málinu er sú að konan
hans fyrrverandi hafi gert honum
ókleift að umgangast börnin.“
Steinunn kveðst ekki hafa séð
það fyrir að rétt fyrir flutning leik-
ritsins í útvarpi kæmi fram sönn
frétt í fjölmiðlum um að margir
feður á Íslandi byggju í iðnaðar-
húsnæði og gætu ekki hitt börnin
sín. „Ég þekki engin persónuleg
dæmi um þetta en það er auðvelt að
ímynda sér að fólk geti farið illa út
úr skilnaði. Samt verður að halda
því til haga að leikritið er sam-
bland af raunsæi þar sem talað er
um tilfinningar, ástand og aðstæð-
ur og undarlegri tilveru, þannig að
það liggur á vissum mörkum.“
Með aðalhlutverk í Slysa-
gildrunni fara Ólafur Sveinn
Gunnarsson og Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir. Leikstjóri er Hlín
Agnarsdóttir. „Mér finnst það
tíðindi að Steinunn Ólína skyldi
láta hafa sig í þetta verkefni því
hún er hætt að leika fyrir áratug.
Þarna leikur hún skrítna persónu
sem er kannski ekki að öllu leyti
mennsk en henni tekst að laða fram
bæði hörku skrifræðisins og mann-
lega hlýju með röddinni einni,“
segir Steinunn.
Verkið var unnið í samstarfi við
Listahátíð í Reykjavík og frumgerð
þess var leiklesin af sömu flytjend-
um á síðustu Listahátíð.
gun@frettabladid.is
Er mannlíf slysagildra?
Slysagildran, nýtt leikrit eft ir Steinunni Sigurðardóttur, verður fl utt á Rás 1 á
morgun klukkan 13. Það fj allar um heitt mál í samtímanum á sérstakan hátt.
HÖFUNDUR OG LEIKSTJÓRI Þær Steinunn og Hlín skapa dularfullan heim í Útvarpsleikhúsinu á morgun.
Fagráð valdi úr innsendum tillög-
um um framlag Íslands á Feneyja-
tvíæringnum 2015 og samdóma
álit þess er að tillaga Christophs
Büchel myndlistarmanns uppfylli
allar þær forsendur sem leitað var
eftir. Hún þykir hugmyndafræði-
lega sterk og eiga erindi við sam-
tímann í íslensku og alþjóðlegu
samhengi.
Sýningarstjóri er Nína Magnús-
dóttir.
Christoph Büchel fæddist í
Basel í Sviss 1966 en hefur búið á
Íslandi frá árinu 2007. Hann er vel
þekktur á alþjóðavettvangi fyrir
konseptverk sín. Hann vinnur í
ýmsa miðla en er hvað þekktast-
ur fyrir hugmyndafræðileg verk
og stórar og aðstæðubundnar inn-
setningar. - gun
Büchel til Feneyja
Tillaga myndlistarmannsins Christoph Büchel verður
framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum 2015.
LISTAMAÐURINN Tillaga Christophs
Büchel vekur fólk til umhugsunar um
stöðu og þróun samfélaga, skilgrein-
ingar og sjálfsmynd.
Bryndís Halla Gylfadóttir selló-
leikari flytur þrjár af sellósvítum
Johanns Sebastians Bach í Norður-
ljósasal Hörpu á morgun 19.
janúar. Tónleikarnir eru á vegum
Kammermúsíkklúbbsins og hefjast
klukkan 19.30. Sellósvítur Bachs,
sex að tölu, eru meðal þekktustu
einleiksverka tónlistarsögunnar.
Heildarflutningar á þeim er ávallt
merkisviðburður en Bryndís Halla
sem ræðst nú í fyrsta sinn í þetta
stórvirki, mun flytja seinni þrjár
svíturnar að ári.
Sellósvítur Bachs
BRYNDÍS HALLA Hún ræðst í fyrsta
skipti í það stórvirki að leika þrjár af
sellósvítum Bachs.
Kiljutilboð
Þorsti
Esther Gerritsen er ein fremsta
skáldkona Hollendinga af
yngri kynslóðinni. Í bókinni
sýnir hún á afar fallegan hátt
hvernig sambandsleysi móður
og dóttur er á endanum það
sem tengir þær.
2.699
2.699
Sandmaðurinn
„Sandmaðurinn er ein sterkasta
lestrarupplifun ársins í
glæpasagnageiranum.
Sá sem hættir sér inn í myrkustu
heima Keplers fær það ríkulega
launað.“
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t
ok
tó
be
r–
de
se
m
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot
á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum
25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar
þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex
daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu.
Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða
þjónustu beint inn á heimilin.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
MENNING