Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 52
| ATVINNA |
Lausar eru til umsóknar tvær námsstöður deildarlækna
í lyflækningum og vísindarannsóknum við Landspítala.
Stöðurnar eru veittar til allt að þriggja ára frá 1. mars 2014
eða síðar eftir samkomulagi. Um fullt starf og nám er að
ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinna og nám á legu-, dag- og göngudeildum ásamt
vaktþjónustu við lyflækningadeildir Landspítala.
» Vinna við ráðgjöf lyflæknis á öðrum deildum Landspítala,
undir umsjón sérfræðilækna.
» Kennsla kandídata, læknanema og annarra fagstétta
heilbrigðisstarfsmanna.
» Þátttaka í vísindavinnu.
» Framhaldsnám í almennum lyflækningum.
» Vinna að skilgreindu rannsóknarverkefni. Sérnámið skiptist
til helminga milli rannsókna og starfsnáms í lyflækningum,
t.d. þrjá mánuði til skiptis í rannsóknum og í starfsnámi á
deildum Landspítala eða eftir nánara samkomulagi.
Hæfnikröfur
» Læknir skal hafa lokið kandídatsári og hafa lækningaleyfi á
Íslandi eða uppfylla kröfur til þess.
» Áhugi á að starfa við lyflækningar
» Áhugi á vísindarannsóknum
» Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi ákveðið rannsóknarverkefni
og leiðbeinanda þegar hann hefur störf. Umsjónaraðilar
framhaldsmenntunar geta aðstoðað við val á leiðbeinendum
og rannsóknarverkefni.
Landspítali býður
» Fyrri hluta sérfræðináms í lyflækningum í allt að þrjú ár.
Námið hefur farið í gegnum gagngera endurskoðun.
» Handleiðara.
» Fimm kennslustjóra sem taka að sér tiltekin verkefni
sem snúa að náminu, auk rúmlegra eitt hundrað
sérfræðilækna með breiða þekkingu í lyflækningum.
» Rannsóknarverkefni undir handleiðslu ákveðins
leiðbeinanda, sbr. að ofan.
» Nám samhliða starfi.
» Námsráðstefnur í tvær vikur á ári, önnur erlendis.
» Hvatningu til að taka þátt í unglæknastarfi við
Evrópusamtök lyflækna (EFIM).
» Námsefni í lyflækningum.
» Að námslæknar sæki um að stunda meistaranám eða eftir
atvikum doktorsnám við Læknadeild Háskóla Íslands.
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 2014.
» Upplýsingar veitir Friðbjörn Sigurðsson, yfirlæknir almennra
lyflækninga og framhaldsmenntunarstjóri lyflækninga, sími
543 6550 og 824 5795, netfang fridbjor@landspitali.is.
» Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um námsferil og fyrri
störf.
» Umsækjendum sem uppfylla skilyrði verður boðið í
viðtal og byggir ráðning m.a. á frammistöðu í viðtali og
innsendum gögnum.
LYFLÆKNINGAR
Deildarlæknar
Rannsóknar- og framhaldsnám
Lausar eru til umsóknar allt að tíu námsstöður deildarlækna
í lyflækningum við Landspítala. Stöðurnar eru veittar til allt
að þriggja ára frá 1. mars 2014 eða síðar eftir samkomulagi.
Um fullt starf og nám er að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Vinna og nám á legu-, dag- og göngudeildum ásamt
vaktþjónustu við lyflækningadeildir Landspítala.
» Vinna við ráðgjöf lyflæknis á öðrum deildum Landspítala,
undir umsjón sérfræðilækna.
» Kennsla kandídata, læknanema og annarra fagstétta
heilbrigðisstarfsmanna.
» Þátttaka í vísindavinnu.
» Framhaldsnám í almennum lyflækningum.
Hæfnikröfur
» Læknir skal hafa lokið kandídatsári og hafa lækningaleyfi á
Íslandi eða uppfylla skilyrði til þess.
» Áhugi á að starfa við lyflækningar.
» Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum.
Landspítali býður
» Fyrri hluta sérfræðináms í lyflækningum í allt að þrjú ár.
Námið hefur farið í gegnum gagngera endurskoðun.
» Handleiðara.
» Fimm kennslustjóra sem taka að sér tiltekin verkefni
sem snúa að náminu, auk rúmlegra eitt hundrað
sérfræðilækna með breiða þekkingu í lyflækningum.
» Rannsóknarverkefni undir handleiðslu ákveðins
leiðbeinanda.
» Nám samhliða starfi.
» Námsráðstefnur í tvær vikur á ári, önnur erlendis.
» Námsefni í lyflækningum.
» Hvatningu til að taka þátt í unglæknastarfi við
Evrópusamtök lyflækna (EFIM).
» Að námslæknar sæki um að stunda meistaranám við
Læknadeild Háskóla Íslands.
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til 10. febrúar 2014.
» Upplýsingar veitir Friðbjörn Sigurðsson, yfirlæknir almennra
lyflækninga og framhaldsmenntunarstjóri lyflækninga, sími
543 6550 og 824 5795, netfang fridbjor@landspitali.is.
» Umsókn fylgi staðfestar upplýsingar um námsferil og fyrri
störf.
» Umsækjendum sem uppfylla skilyrði verður boðið í
viðtal og byggir ráðning m.a. á frammistöðu í viðtali og
innsendum gögnum.
LYFLÆKNINGAR
Deildarlæknar
Framhaldsnám Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa á hjartadeild 14E/G við
Hringbraut. Deildin er 32 rúma legudeild og eina sérhæfða
hjartadeildin á landinu. Starfar þar öflugur og áhugasamur
hópur hjúkrunarfræðinga. Lögð er áhersla á að taka vel á
móti nýju fólki og veita góða einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Sérhæfð hjúkrun sjúklinga með margvíslega
hjartasjúkdóma s.s. kransæðasjúkdóm, hjartabilun og
hjartsláttartruflanir
» Fylgjast með nýjungum í faginu
» Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfnikröfur
» Íslenskt hjúkrunarleyfi
» Faglegur metnaður
» Góð samskiptahæfni
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 3. febrúar 2014.
» Starfið er laust frá 1. mars 2013 eða eftir samkomulagi.
» Starfshlutfall er 50 - 100%, unnið er í vaktavinnu og er
vinnufyrirkomulag samkomulagsatriði.
» Upplýsingar veita Bylgja Kærnested, deildarstjóri,
bylgjak@landspitali.is, sími 825 5106 og Þórgunnur
Hjaltadóttir, mannauðsráðgjafi, torghjal@landspitali.is,
sími 825 5136.
HJARTADEILD
Hjúkrunarfræðingur
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Við leitum að rétta einstaklingnum í starf markaðs - og
kynningarfulltrúa Akraneskaupstaðar. Við erum fyrst og
fremst að leita að kraftmiklum einstaklingi sem hefur
mikinn metnað og hefur sýnt árangur í sölu og markaðs-
málum. Viðkomandi þarf að þekkja vel til á Akranesi
og hafa gott tengslanet t.d. við aðila í ferðaþjónustu.
Meðal helstu viðfangsefna:
• Kynna Akranes sem áhugaverðan kost fyrir fyrirtæki
• Kynna Akranes sem áfangastað fyrir innlenda og
erlenda ferðamenn
• Umsjón með upplýsingamiðstöð ferðamanna
• Markaðsrannsóknir
• Almenn upplýsingamiðlun til íbúa og kynning á
viðburðum
Við mat á hæfni umsækjenda mun
Akraneskaupstaður meðal annars
meta eftirfarandi þætti:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Reynslu af starfi t.d. sem markaðs- eða sölustjóri
og/eða við ferðaþjónustu
• Reynslu og hæfni í notkun samfélagsmiðla
• Þekkingu á staðháttum og tengslanet
• Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
• Færni í samskiptum og tjáningu
• Íslensku- og enskukunnáttu
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um
starfið á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is
fyrir 31. janúar næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Regína Ásvaldsdóttir
bæjarstjóri í síma 433 1000 eða í gegnum netfangið
baejarstjori@akranes.is
MARKAÐS- OG
KYNNINGARFULLTRÚI
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR12