Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 54
| ATVINNA |
HealthCo ehf / www.ahr.is óskar eftir að ráða
hjúkrunarfræðing í stöðu viðskiptastjóra.
Um er að ræða 50-100% starfshlutfall eða eftir
samkomulagi. Starfið felst í sölu og þjónustu við
núverandi viðskiptavini félagsins og öflun nýrra
viðskipta.Við leitum að kröftugum einstaklingi með
frumkvæði, jákvætt viðmót, skipulagshæfileika
og metnað til að ná árangri í starfi.
HealthCo ehf er sölu- og þjónustufyrirtæki á
heilbrigðissviði. Fyrirtækið er umboðsaðili fyrir
stærstu framleiðendur lækningatækja í heiminum
svo sem GE Healthcare og Physio Control.
Helstu viðskiptavinir okkar eru sjúkrahús,
heilsugæslustöðvar, einkareknar læknastofur,
slökkvilið, Landhelgisgæslan og íþróttafélög um land allt.
Umsóknir skulu sendar til HealthCo ehf Hliðarsmára 1,
201 Kópavogi eða á netfangið HealthCo@healthco.is
fyrir 1 febrúar 2014.Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Hreiðarsson framkvæmdarstjóri,
gudmundur@healthco.is
Hjúkrunarfræðingur/
Viðskiptastjóri
Sérfræðingur í lyflækningum
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) óskar eftir
að ráða sérfræðing í almennum lyflækningum
Hæfniskröfur:
Sérfræðileyfi á Íslandi í almennum lyflækningum.
Æskilegt er að umsækjandi hafi einnig sérfræðileyfi
í undirsérgrein og talsverða reynslu af störfum við
almennar lyflækningar. Áhersla er lögð á hæfileika á
sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Frekari upplýsingar um starfið
Starfið skiptist milli vinnu á sjúkradeild og móttöku
sjúklinga á göngudeild.
Um er ræða framtíðarstarf og æskilegt er að
umsækjandi geti hafið störf 1.maí 2014.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra
og Læknafélags Íslands.
Senda skal umsóknir, sem greina frá menntun og
starfsreynslu, til Steingerðar Önnu Gunnarsdóttur,
yfirlæknis, Skólavegi 6, 230 Reykjanesbæ eða með
tölvupósti á netfangið steingerdur@hss.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi,
auk bakvakta.
Umsóknarfrestur er til 3.febrúar 2014
Nánari upplýsingar veitir
Steingerður Anna Gunnarsdóttir, yfirlæknir
sjúkrahússvið sími 422-0500 eða með tölvupósti
á netfangið steingerdur@hss.is
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmdastjóra lækninga.
Leitað er eftir farsælum, kraftmiklum og metnaðarfullum stjórnanda. Framkvæmdastjóri lækninga
situr í framkvæmdastjórn Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og heyrir undir forstjóra. Starfshlut-
fall er 100% og er ráðið í starfið til 5 ára.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármála- og efnahagsráðherra.
Sótt er um starfið rafrænt á heimasíðu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. www.heilsugaeslan.is,
undir „laus störf“. Ef ekki eru tök á að sækja um rafrænt má nálgast umsóknareyðublöð hjá mannauðsdeild,
Álfabakka 16. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningar í laus störf
í Heilsugæslunni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar:
• Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2014.
• Starfshlutfall er 100% og verður ráðið í starfið til
5 ára frá og með 1. ágúst n.k. eða eftir nánara
samkomulagi.
• Umsóknir, ásamt kynningarbréfi þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar, skulu berast
Heilsugæslunni rafrænt.
• Umsóknum fylgi staðfestar upplýsingar um
menntun, fyrri störf og reynslu af kennslu-,
vísinda-, rit- og stjórnunarstörfum, ásamt afriti af
greinum sem umsækjandi hefur skrifað.
• Upplýsingar veitir Svava Kr. Þorkelsdóttir,
mannauðsstjóri,netfang
svava.kristin.thorkelsdottir@heilsugaeslan.is,
sími 585-1317.
• Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt
skulu berast, í tvíriti, mannauðsdeild,
Álfabakka 16, 109, Reykjavík.
• Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar hjá
Landlæknisembættinu.
• Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun
umráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Framkvæmdastjóri lækninga
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta - Framþróun
Helstu viðfangsefni og ábyrgð
• Leiðtogi við framkvæmd stefnu heilsugæslunnar
• Stefnumótun og þróun, m.a. á sviði markmiða,
árangurs, gæða og öryggis í þjónustu
• Innleiðing nýjunga og breytinga, ásamt því að
stuðla að öryggi, gæðum og hagkvæmni
• Fagleg samhæfing og eftirlit á sviði lækninga
• Samhæfing starfsemi Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins
• Gerð og efling klínískra leiðbeininga
• Gæðaeftirlit
Hæfnikröfur:
• Læknir með sérfræðileyfi
• Stjórnunarreynsla í heilbrigðisþjónustu
• Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi
• Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
• Frumkvæði og áræðni
• Vilji til að helga sig sýn og gildum heilsugæslunnar
Hlutverk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er að veita íbúum höfuðborgar-
svæðisins aðgengilega, samfellda og alhliða heilsugæsluþjónustu. Þjónustan
grundvallast á sérþekkingu á sviði heimilislækninga, hjúkrunar og heilsuverndar
og byggir á víðtæku þverfaglegu samstarfi. Hún samanstendur af fimmtán heilsu-
gæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsumdæmi, Kópavogi, Garðabæ
og Hafnarfirði, Þroska- og hegðunarstöð, Göngudeild sóttvarna, Geðheilsu-eftir-
fylgd/iðjuþjálfun og stjórnsýslu Heilsugæslunnar. Hjá Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins starfa nálægt 600 manns.
Starfatorg.is
Laus störf hjá ríkinu og upplýsingar um málefni ríkisstarfsmanna
Starf Stofnun Staður Nr. á vef
Forstöðulæknir Heilbrigðisstofnun Austurlands Neskaupstaður 201401/048
Doktorsnemi í vélaverkfræði Háskóli Íslands Reykjavík 201401/047
Doktorsnemi Háskóli Íslands, menntavísindasvið Reykjavík 201401/046
Yfirgeislafræðingur Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Reykjanesbær 201401/045
Sérfræðilæknir LSH, meltingarlækningar Reykjavík 201401/044
Námsstöður deildarlækna LSH, lyflækningar Reykjavík 201401/043
Námsstöður deildarlækna LSH, lyflækningar og vísindaranns. Reykjavík 201401/042
Hjúkrunarfræðingur LSH, hjartadeild Reykjavík 201401/041
Sérfræðingar Seðlabanki Íslands Reykjavík 201401/040
Skipaeftirlitsmaður Samgöngustofa Kópavogur 201401/039
Sérfræðingur Landbúnaðarháskóli Íslands Hvanneyri 201401/038
Sérfræðingur í lyflækningum Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Reykjanesbær 201401/037
Vélamaður Vegagerðin Höfn 201401/036
Lögreglufulltrúi Ríkislögreglustjóri Reykjavík 201401/035
Rannsóknarlektor Stofnun ÁM í íslenskum fræðum Reykjavík 201401/034
Verkefnisstjóri Stofnun ÁM í íslenskum fræðum Reykjavík 201401/033
Starfsmaður fagráðs Mennta- og menningarmálatráðun. Reykjavík 201401/032
Húsvörður
Óskum eftir að ráða húsvörð í 65 íbúða fjölbýlishús fyrir
eldri borgara í austurbæ Reykjavíkur.
-
Starfið felst í aðstoð við íbúana, almennu eftirliti og
umsjón með húseignum.
-
Leitað er að jákvæðum, liprum og laghentum starfsmanni
sem hefur ánægju af mannlegum samskiptum. Hreint
sakavottorð skilyrði.
-
Starfið er metið hálft starf að meðtalinni bakvakt.
Innifaldar eru ræstingar og umsjón eignarinnar.
Falleg 85 fm íbúð fylgir starfinu.
-
Ráðið verður í starfið frá og með 1. mars 2014.
Umsóknir berist fyrir 28. janúar nk.
-
Í skriflegum umsóknum komi ma. fram hæfni, menntun,
starfsreynsla og amk. tveir meðmælendur.
Umsóknir verði sendar í tölvupósti:
starfsumsokn@eignaumsjon.is, merktar B4145
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR14