Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 18.01.2014, Blaðsíða 28
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28 ➜ 12 milljarðar Belfort var gert að greiða fórnarlömbum sínum tólf milljarða króna árið 2003. Hann þarf að greiða helming allra tekna sinna til fórnarlamba sinna þangað til skuldin verður greidd. Hann er búinn að greiða um 1,3 milljarða. ➜ 120 milljónir Jordan Belfort fékk greiddar um 120 milljónir króna fyrir kvikmyndaréttinn að bókinni The Wolf of Wall Street. ➜ 2,5 milljónir Sama ár og hann seldi kvikmyndaréttinn borgaði hann aðeins um tvær og hálfa milljón til fórnarlamba sinna, sem er langt frá þeim 50 prósentum sem hann á að greiða. ➜ 100% Belfort sagði á Facebook-síðu sinni að peningurinn sem hann fengi fyrir myndina og sam- nefnda bók renni ekki í hans vasa. Þvert á móti þá renni 100 prósent teknanna í vasa fórnarlambanna. JORDAN BELFORT OG PENINGARNIR Nafn mitt er Jordan Belfort. Ef það hljómar kunnuglega er það vegna þess að Leonardo DiCaprio gerði þessa línu fræga í hinni vinsælu mynd The Wolf of Wall Street,“ skrifar Belfort á vefsíðu sinni þar sem hann selur almenningi aðgang að þekk- ingu sinni, þar á meðal mynddiska og einka- námskeið. Hann er greinilega staðráðinn í að nýta sér hina auknu frægð sem myndinni fylgir. Eins og strengjabrúður „Þó að „Úlfurinn“ hafi verið ýktur eins og venjan er í Hollywood, er ein staðreynd á hreinu: Mér tókst í raun og veru að finna út hvernig á að fá fólk til að gera hvað sem er,“ heldur Belfort áfram. „En það er bara eitt mikil vægt atriði sem þú verður að hafa í huga: Í röngum höndum er hægt að nota þessar aðferðir til að stjórna viðskiptavinum þínum og fólki sem þú þekkir eins og strengjabrúðum … og trúið mér, ég hef gert það,“ skrifar hann en tekur fram að hann vilji að viðskiptavinir sínir noti þekkinguna á siðlegan máta. Já, Belfort virkar sannfærandi á vefsíðu sinni og er það vafalítið í eigin persónu, ef eitt- hvað er að marka Hollywood-myndina. Úlfur í sauðagæru Jordan R. Belfort fæddist í New York í Banda- ríkjunum árið 1962. Eftir að hafa hætt við að fara í tannlæknanám ákvað hann að reyna fyrir sér í viðskiptum. Eftir byrjunarörðugleika fékk hann vinnu hjá verðbréfafyrir tækinu L.F. Rothchild og þá fóru hjólin að snúast. Nokkru síðar stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Stratton Oakmont, þar sem hann beitti klækjum sínum til að fá fjárfesta til að kaupa alls kyns hluta- bréf af vafasömum toga. Honum til aðstoðar voru æskuvinir sem hann hafði ráðið í hátt- settar stöður. Fyrirtækið óx hratt og varð þekkt fyrir svokallað „pump and dump“ sem snýst um að skrúfa gengi hlutabréfa upp úr öllu valdi og selja þau síðan á háu verði. Stratton Oakmont varð eitt áhrifamesta verðbréfafyrirtækið á Wall Street og var þekkt fyrir að tryggja ungum, tryggum og lítt menntuðum starfs- mönnum sínum, sem kallaðir voru Strattonites, háa launatékka án mikillar fyrirhafnar. Með því að spila á hlutabréfamarkaðinn og að setja fyrirtæki á markað, sem sum hver voru aðeins til á pappírunum, græddi Belfort milljarða króna, meðal annars á Steve Madden Shoes. Dóp og vændiskonur Á þessum tíma var lífsstíll hans yfirgengilegur þar sem partí voru á hverju strái. Hann flaug um á einkaþotum, sigldi á risastórri snekkju, neytti eiturlyfja og keypti sér þjónustu vændis- kvenna, eins og lýst er á opinskáan hátt í The Wolf of Wall Street. Önnur kvikmynd og öllu hófstilltari, Boiler Room frá árinu 2000 með Giovanni Ribisi í aðalhlutverki, sótti innblástur í sama efnivið. Í lok tíunda áratugarins höfðu yfirvöld komið upp um svikastarfsemi Stratton Oak- mont og handtóku Belfort. Hann var ákærður fyrir fjársvik og peningaþvætti. Eftir að hafa gert samning við bandarísku alríkis- lögregluna, F BI, var hann dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa afvega- leitt fjárfesta með þeim af leiðing- um að þeir töpuðu stórfé. Honum var jafnframt gert að borga til baka ríf- lega tólf milljarða króna sem hann hafði haft af við- skiptavinum sínum með svindli. Sannleikanum samkvæmt B el for t , s em segist hafa verið edrú síðan 1998, hóf ritun endur- minninga sinna í fangelsinu og hafa bækurnar T he Wolf of Wall Street og Catching the Wolf of Wall Street verið gefnar út í næstum fjörutíu löndum og þýddar á átján tungumál. Hollywood- my nd i n þyk i r vera ansi trú bók- inni samnefndu. Ein- hverjir hafa dregið trúverðugleika henn- ar í efa en FBI-fulltrú- inn sem rannsakaði Bel- fort um tíu ára skeið sagði í viðtali við New York Times að allt sem hann hefði skrifað væri sannleikanum samkvæmt. Vafasamur Wall Street-úlfur Kvikmyndin The Wolf of Wall Street segir sögu verðbréfasalans fyrrverandi, Jordans Belfort, sem Leonardo DiCaprio túlkar á eftirminnilegan hátt. Á tíunda áratugnum tókst Belfort að svíkja ótrúlegar fjárhæðir í gegnum verðbréfafyrirtækið Stratton Oakmont á sama tíma og lífsstíll hann einkenndist af algjöru sukki og svínaríi. ÚLFURINN Jordan Belfort ekur um á blæjubíl umvafinn fölsuðum seðlum um það leyti sem bókin The Wolf of Wall Street kom út. NORDICPHOTOS/GETTY Leikstjóri hinnar þriggja klukkustunda löngu The Wolf of Wall Street er sjálfur Martin Scorsese og fékk hann samstarfsmann sinn til margra ára, Leonardo DiCaprio, til að leika Belfort. Með önnur stór hlutverk fara Jonah Hill, sem hafði lengi dreymt um að vinna með Scorsese, og Margot Robbie. Tökur hófust í ágúst árið 2012 og kom myndin út vestanhafs 25. desember síðastliðinn við góðar undirtektir gangrýnenda og almennings. Myndin hefur verið tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna, þar á meðal sem besta mynd og fyrir bestu leikstjórn, auk þess sem DiCaprio var tilnefndur fyrir bestan leik í aðalhlutverki. Stutt er síðan DiCaprio hlaut Golden Globe- verðlaunin fyrir frammistöðu sína. Myndin hefur einnig verið tilnefnd til tvennra Bafta-verðlauna. Að auki hefur Scorsese verið tilnefndur til hinna virtu Directors Guild-verðlauna. Wolf of Wall Street kostaði eitt hundrað milljónir dala í framleiðslu og hefur hún þénað rúmar 120 milljónir dala samanlagt í heimalandinu og erlendis í miðasölunni. Tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna GOLDEN GLOBE-HAFI Leonardo DiCaprio sem Jordan Belfort í The Wolf of Wall Street. Christina McDowell skrifaði opið bréf til Jordans Belfort og framleiðenda Wolf of Wall Street sem birtist í blaðinu LA Weekly á annan í jólum. Þar hvatti hún almenning til að sniðganga myndina og sagði að hún myndi hvetja aðra „úlfa“ eins og Belfort til dáða. Hún sagði myndina ekki gera fórnarlömbum Belfort nægileg skil. McDowell er dóttir Tom Prousalis sem var samstarfsmaður Belfort og skildi dóttur sína eftir í skuldasúpu áður en hann stakk af frá fjölskyldu sinni. „Málið er að þið eruð hættuleg. Kvikmyndin ykkar er kæruleysisleg tilraun til að halda áfram að láta sem þessir glæpir hafi skemmtanagildi, á sama tíma og þjóðin er enn að jafna sig eftir enn eitt hneykslið á Wall Street. Í hverju viljum við gleyma okkur? Þessum svikulu viðskiptamönnum, krassandi kynlífslýsingum og kókaín-ferðalögum þeirra? Við vitum sannleikann. Svona hegðun kom Bandaríkjunum á hnén,“ skrifaði hún og í kjölfarið hafa margir gagnrýnt Scorsese, DiCaprio og félaga fyrir þátttöku þeirra í myndinni. ➜ Hvatti fólk til að sniðganga myndina Freyr Bjarnason freyr@frettabladid.is Í röngum höndum er hægt að nota þessar aðferðir til að stjórna viðskiptavinum þínum og fólki sem þú þekkir eins og strengjabrúðum… og trúið mér, ég hef gert það.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.