Fréttablaðið - 18.01.2014, Qupperneq 28
18. janúar 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
➜ 12 milljarðar
Belfort var gert að greiða
fórnarlömbum sínum tólf
milljarða króna árið 2003. Hann
þarf að greiða helming allra
tekna sinna til fórnarlamba
sinna þangað til skuldin verður
greidd. Hann er búinn að greiða
um 1,3 milljarða.
➜ 120 milljónir
Jordan Belfort fékk greiddar
um 120 milljónir króna fyrir
kvikmyndaréttinn að bókinni
The Wolf of Wall Street.
➜ 2,5 milljónir
Sama ár og hann seldi
kvikmyndaréttinn borgaði hann
aðeins um tvær og hálfa milljón
til fórnarlamba sinna, sem er
langt frá þeim 50 prósentum
sem hann á að greiða.
➜ 100%
Belfort sagði á Facebook-síðu
sinni að peningurinn sem hann
fengi fyrir myndina og sam-
nefnda bók renni ekki í hans
vasa. Þvert á móti þá renni
100 prósent teknanna í vasa
fórnarlambanna.
JORDAN BELFORT
OG PENINGARNIR
Nafn mitt er Jordan Belfort. Ef það hljómar kunnuglega er það vegna þess að Leonardo DiCaprio gerði þessa línu fræga í hinni vinsælu mynd The Wolf of Wall Street,“ skrifar Belfort á vefsíðu sinni þar
sem hann selur almenningi aðgang að þekk-
ingu sinni, þar á meðal mynddiska og einka-
námskeið. Hann er greinilega staðráðinn í að
nýta sér hina auknu frægð sem myndinni fylgir.
Eins og strengjabrúður
„Þó að „Úlfurinn“ hafi verið ýktur eins og
venjan er í Hollywood, er ein staðreynd á
hreinu: Mér tókst í raun og veru að finna út
hvernig á að fá fólk til að gera hvað sem er,“
heldur Belfort áfram. „En það er bara eitt
mikil vægt atriði sem þú verður að hafa í huga:
Í röngum höndum er hægt að nota þessar
aðferðir til að stjórna viðskiptavinum þínum og
fólki sem þú þekkir eins og strengjabrúðum …
og trúið mér, ég hef gert það,“ skrifar hann en
tekur fram að hann vilji að viðskiptavinir sínir
noti þekkinguna á siðlegan máta.
Já, Belfort virkar sannfærandi á vefsíðu
sinni og er það vafalítið í eigin persónu, ef eitt-
hvað er að marka Hollywood-myndina.
Úlfur í sauðagæru
Jordan R. Belfort fæddist í New York í Banda-
ríkjunum árið 1962. Eftir að hafa hætt við að
fara í tannlæknanám ákvað hann að reyna fyrir
sér í viðskiptum. Eftir byrjunarörðugleika
fékk hann vinnu hjá verðbréfafyrir tækinu L.F.
Rothchild og þá fóru hjólin að snúast. Nokkru
síðar stofnaði hann sitt eigið fyrirtæki, Stratton
Oakmont, þar sem hann beitti klækjum sínum
til að fá fjárfesta til að kaupa alls kyns hluta-
bréf af vafasömum toga. Honum til aðstoðar
voru æskuvinir sem hann hafði ráðið í hátt-
settar stöður.
Fyrirtækið óx hratt og varð þekkt fyrir
svokallað „pump and dump“ sem snýst um að
skrúfa gengi hlutabréfa upp úr öllu valdi og
selja þau síðan á háu verði. Stratton Oakmont
varð eitt áhrifamesta verðbréfafyrirtækið
á Wall Street og var þekkt fyrir að tryggja
ungum, tryggum og lítt menntuðum starfs-
mönnum sínum, sem kallaðir voru Strattonites,
háa launatékka án mikillar fyrirhafnar. Með
því að spila á hlutabréfamarkaðinn og að setja
fyrirtæki á markað, sem sum hver voru aðeins
til á pappírunum, græddi Belfort milljarða
króna, meðal annars á Steve Madden Shoes.
Dóp og vændiskonur
Á þessum tíma var lífsstíll hans yfirgengilegur
þar sem partí voru á hverju strái. Hann flaug
um á einkaþotum, sigldi á risastórri snekkju,
neytti eiturlyfja og keypti sér þjónustu vændis-
kvenna, eins og lýst er á opinskáan hátt í The
Wolf of Wall Street. Önnur kvikmynd og öllu
hófstilltari, Boiler Room frá árinu 2000 með
Giovanni Ribisi í aðalhlutverki, sótti innblástur
í sama efnivið.
Í lok tíunda áratugarins höfðu yfirvöld komið
upp um svikastarfsemi Stratton Oak-
mont og handtóku Belfort. Hann var
ákærður fyrir fjársvik og
peningaþvætti. Eftir að
hafa gert samning við
bandarísku alríkis-
lögregluna, F BI,
var hann dæmdur í
fjögurra ára fangelsi
fyrir að hafa afvega-
leitt fjárfesta með
þeim af leiðing-
um að þeir töpuðu
stórfé. Honum var
jafnframt gert að
borga til baka ríf-
lega tólf milljarða
króna sem hann
hafði haft af við-
skiptavinum
sínum með svindli.
Sannleikanum
samkvæmt
B el for t , s em
segist hafa verið
edrú síðan 1998,
hóf ritun endur-
minninga sinna
í fangelsinu og
hafa bækurnar
T he Wolf of
Wall Street og
Catching the Wolf
of Wall Street
verið gefnar út í
næstum fjörutíu
löndum og þýddar
á átján tungumál.
Hollywood-
my nd i n þyk i r
vera ansi trú bók-
inni samnefndu. Ein-
hverjir hafa dregið
trúverðugleika henn-
ar í efa en FBI-fulltrú-
inn sem rannsakaði Bel-
fort um tíu ára skeið sagði
í viðtali við New York Times að
allt sem hann hefði skrifað væri
sannleikanum samkvæmt.
Vafasamur Wall Street-úlfur
Kvikmyndin The Wolf of Wall Street segir sögu verðbréfasalans fyrrverandi, Jordans Belfort, sem Leonardo DiCaprio
túlkar á eftirminnilegan hátt. Á tíunda áratugnum tókst Belfort að svíkja ótrúlegar fjárhæðir í gegnum verðbréfafyrirtækið
Stratton Oakmont á sama tíma og lífsstíll hann einkenndist af algjöru sukki og svínaríi.
ÚLFURINN Jordan Belfort ekur um á blæjubíl umvafinn fölsuðum seðlum um það leyti sem bókin The Wolf of Wall Street kom út. NORDICPHOTOS/GETTY
Leikstjóri hinnar þriggja klukkustunda löngu The Wolf of Wall Street er
sjálfur Martin Scorsese og fékk hann samstarfsmann sinn til margra
ára, Leonardo DiCaprio, til að leika Belfort. Með önnur stór hlutverk fara
Jonah Hill, sem hafði lengi dreymt um að vinna með Scorsese, og Margot
Robbie.
Tökur hófust í ágúst árið 2012 og kom myndin út vestanhafs 25.
desember síðastliðinn við góðar undirtektir gangrýnenda og almennings.
Myndin hefur verið tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna, þar á meðal sem
besta mynd og fyrir bestu leikstjórn, auk þess sem DiCaprio var tilnefndur
fyrir bestan leik í aðalhlutverki. Stutt er síðan DiCaprio hlaut Golden Globe-
verðlaunin fyrir frammistöðu sína. Myndin hefur einnig verið tilnefnd til
tvennra Bafta-verðlauna. Að auki hefur Scorsese verið tilnefndur til hinna
virtu Directors Guild-verðlauna.
Wolf of Wall Street kostaði eitt hundrað milljónir
dala í framleiðslu og hefur hún þénað rúmar 120
milljónir dala samanlagt í heimalandinu og
erlendis í miðasölunni.
Tilnefnd til fimm Óskarsverðlauna
GOLDEN GLOBE-HAFI Leonardo DiCaprio
sem Jordan Belfort í The Wolf of Wall
Street.
Christina McDowell skrifaði opið bréf
til Jordans Belfort og framleiðenda Wolf of
Wall Street sem birtist í blaðinu LA Weekly
á annan í jólum. Þar hvatti hún almenning til
að sniðganga myndina og sagði að hún myndi
hvetja aðra „úlfa“ eins og Belfort til dáða. Hún
sagði myndina ekki gera fórnarlömbum Belfort
nægileg skil.
McDowell er dóttir Tom Prousalis sem var
samstarfsmaður Belfort og skildi dóttur sína eftir í
skuldasúpu áður en hann stakk af frá fjölskyldu sinni.
„Málið er að þið eruð hættuleg. Kvikmyndin ykkar er
kæruleysisleg tilraun til að halda áfram að láta sem þessir
glæpir hafi skemmtanagildi, á sama tíma og þjóðin er enn
að jafna sig eftir enn eitt hneykslið á Wall Street. Í hverju
viljum við gleyma okkur? Þessum svikulu viðskiptamönnum,
krassandi kynlífslýsingum og kókaín-ferðalögum þeirra?
Við vitum sannleikann. Svona hegðun kom Bandaríkjunum
á hnén,“ skrifaði hún og í kjölfarið hafa margir gagnrýnt
Scorsese, DiCaprio og félaga fyrir þátttöku þeirra í myndinni.
➜ Hvatti fólk til
að sniðganga myndina
Freyr
Bjarnason
freyr@frettabladid.is
Í röngum höndum er hægt
að nota þessar aðferðir til
að stjórna viðskiptavinum
þínum og fólki sem þú þekkir
eins og strengjabrúðum…
og trúið mér, ég hef gert það.